13.12.1946
Sameinað þing: 18. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1974 í B-deild Alþingistíðinda. (2531)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég get ekki alls kostar setið hjá, þegar minnzt er á þetta mái og því er hreyft fyrst og fremst af formanni Héraðsdómarafélags Íslands, því að það má öllum vera ljóst, og ekki sízt honum, bæði sem forvígismanni héraðsdómaranna og einnig sem reyndum manni, eins og hann líka hér hefur bent á, hvers konar fordæmi er verið að skapa hér, ef það á að líðast, sem hér hefur átt sér stað í þessu máli, eða verða enn þá meir áberandi en það er orðið nú þegar.

Ég ætla ekki að ræða efnishlið þessa máls. Ég álít það ekki á þessu stigi viðeigandi, en vil þó geta þess, að það er alls ekki útilokað, að svo verði gert, þótt ekki verði það að þessu sinni, því að auðsætt mál er það, að það er atriði, sem snertir dómgæzlu og réttargæzlu í þessu landi ekki lítið, að dómgæzlan gangi jafnt yfir alla borgara í þessu þjóðfélagi. Sú krafa, sem efnislega er gerð til þess manns, sem þarna á hlut að máli, hlýtur þess vegna að dómi þessarar virðulegu samkundu að vera gerð samstundis gagnvart öllum öðrum embættismönnum í þessu landi. En um það ætla ég ekki að ræða, heldur áskil mér rétt til þess að benda á þau atriði síðar. Efnishlið þessa máls, álít ég, að eigi að liggja á milli hluta, meðan ekki er lengra komið, en ég hef alveg nægilegt efni í þann þátt umr.

Ég ætla svo aðeins að víkja að því, hvers konar málsmeðferð þetta er, sem um er rætt hér. Það er nú eitt út af fyrir sig, að hlutaðeigandi dómara er vikið frá um stundarsakir, meðan rannsókn fer fram. Það er nú yfirleitt ekki síður í þessu landi, þar sem ekki hefur verið tekið með sérstökum krafti á málum, sem ég skal hvorki lofa né lasta, að víkja mönnum frá embætti, þótt hafin sé rannsókn á málum þeirra, nema maðurinn sé hættulegur fyrir embættið, meðan rannsókn á sér stað. Það mætti nefna fjölda mörg dæmi í þessu sambandi, þar sem rannsókn hefur verið hafin gegn embættismanni út af tilteknu atriði og ekki hefur þótt ástæða til að víkja honum frá um stundarsakir, heldur láta rannsókn fara fram og bíða úrskurðar dóms um það, hvort þess sé þörf að víkja embættismanninum frá um stundar sakir. En hér er farið þannig að, sem ég skal ekki fetta fingur út í út af fyrir sig, ef ekki væri fleira athugavert við málið, að manni er vikið frá embætti meðan rannsókn fer fram um það, hvort höfða eigi mál eða ekki. Við skulum segja, að sú rannsókn sé ekki ýkja flókin. Hún er sett til dómara, sem settur er til þess að framkvæma þessa rannsókn, og ef dómarinn hefur málið 7–8 daga — eins og hér átti sér stað, að sá tími var liðinn síðan málið, sem ég hef nefnt, var sett til dómara og þangað til hæstv. dómsmrh. (FJ) fór úr landi —, þá er sá tími, 7–8 dagar, vissulega miklu meira en nógur tími til þess að ákveða, hvort málssókn skuli hafin um svona mál eða málshöfðun skuli falla niður. Þetta er ástæðan til þess, að þessi meðferð þess máls, sem ég hef minnzt hér á, er ekki aðeins mjög óviðfelldin, heldur alveg óforsvaranleg, því að það er ekki hægt fyrir neinn dómsmrh. að afsaka sig með því í svona máli, að hann hafi þurft að fara úr landi. Dómsmrh. í einu landi er embættismaður, eða hvað maður vill kalla það institute —, sem alltaf er til og heldur alltaf áfram að vera það, hvort sem þessi eða hinn maðurinn er utan lands eða innan. Það er ekki til, að einn dómsmrh. geti beðið góðvin sinn að taka mál og leggjast á það, — það er ekki til í landi, þar sem er réttarfar í lagi. Ég held, að við verðum að gera okkur ljóst, að þær afsakanir, sem hér hafa komið fram, eru alveg óframbærilegar og mega ekki heyrast hér í sölum Alþ. Mál á að afgreiða að réttum l., hver sem er dómsmrh., en ekki eftir því, hvort einn kunningi dómsmrh. tekur við embætti hans og lofar ráðh., sem frá fer um stund, eins og t. d. vegna utanferðar, að leggjast á eitthvert tiltekið mál. Hvar erum við eiginlega komnir með réttarvenju, ef slík réttarvenja skapast? Væri þá ekki hægt að taka hvern embættismanninn eftir annan og setja frá embætti „um stundarsakir“. Hefði þá ekki t. d. alveg eins verið hægt að setja vitamálastjóra frá embætti um stund og gefa honum að sök, að hafnargarðurinn í Hafnarfirði, sem hann á að sjá um byggingu á, sökk niður að framan? Ég nefni þetta sem dæmi, en ekki af því, að ég álíti, að svona hefði átt að fara að né að það ætti að gefa vitamálastjóra sök á þessu. En væri ekki alveg eins hægt að gera þetta og tortryggja, að vitamálastjóri hefði undirbúið verkið með nægilegri rannsókn á botninum, ef venja ætti að skapast á þá lund eins og meðferð þess máls, sem hér hefur verið rætt, málsins gagnvart sakadómara? Er ekki hægt að taka prófessor við háskólann fyrir það, að hann hafi ekki haft eftirlit með unglingunum á einhverju ferðalagi, og víkja honum frá um stundarsakir, fá svo rannsókn í málinu, en svo er hikað við að höfða mál, vegna þess að grundvöllur er ekki fyrir hendi? En að bíða með hvort tveggja, láta mann bíða í 1–2 mánuði og halda honum utan við embætti, þetta er nákvæmlega hliðstætt við að setja mann af án þess að láta ganga dómsúrskurð. Það má halda manni utan við embætti án þess að fella úrskurð um það, að málið skuli niður falla eða að það skuli höfða mál.

Það hefur verið talað um það, að ekki hafi verið spurt um þetta mál fyrr. Vitanlega hefði átt að spyrja um það fyrr, því að úrskurður hefði átt að vera kominn fyrir löngu. En við veiðum að gæta að því, að því lengur, sem mál dregst, því meir óviðunandi er málsmeðferðin, og því mun nú verða fylgzt með þessu máli upp frá þessum degi.

Ég hefði gjarnan viljað taka þátt í umr. um þetta mál, en við hæstaréttarmálaflutningsmenn tökum annað slagið þátt í dómstörfum í hæstarétti, og hef ég fengið skilaboð um að vera þar kl. 2 og verð því að fara, enda vænti ég, að svo margir séu samþykkir þeim sjónarmiðum, sem ég hef viljað setja hér fram, að þau muni ekki vanta málsvara, þótt ég fari.