27.02.1947
Neðri deild: 82. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1982 í B-deild Alþingistíðinda. (2543)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Í morgun barst skeyti frá sendiherra Íslands í Washington, þar sem m. a. segir: Tillaga Gerharts congressmanns felur í sér „heimild fyrir forseta U. S. A. til að bjóða Íslandi að verða ríki í Bandaríkjunum (the American Union), enn fremur til að hefja samninga við Danmörku til að kaupa Grænland, enn fremur til að semja við Stóra-Bretland, Frakkland og önnur ríki um kaup á öllum eyjum undan strönd meginlands Bandaríkjanna í Karabíska hafinu og Kyrrahafinu.“

Í ræðu í þinginu í fyrradag mælti Gerhart á þessa leið: „Við höfum heyrt uggvekjandi fregnir um, að Rússland krefjist umboðsstjórnar yfir Dardanella-sundum, herstöðva í Spitsbergen, veðurathugunarstöðva á Íslandi og Grænlandi. Enn fremur er sagt, að Rússland hafi hernumið tilteknar eyjar í Skagerak og Kattegat og heimti Kurileyjar og aðra staði, sem hafi hernaðarlega þýðingu. Enn fremur segir Gerhart: „Ísland og Grænland liggja í leið hvers þess rángjarns stórveldis, sem hefur í hyggju að leggja undir sig heiminn. Ef Ísland stæði eitt, þegar það yrði fyrir árás, þá mundi það vera máttvana. Í heimsstyrjöld, sem við (Bandaríkin) lentum í, þá eru þeir (sennilega Íslendingar) ómissandi fyrir vernd okkar og Íslands. Íslendingar og Ameríkanar komast ekki hjá því að skilja nauðsyn félagsskapar til gagnkvæmra varna. Við höfum mikið að bjóða Íslandi: hervernd, virðuleik og frelsi til handa borgurum þess, nýting hafna og auðlinda landsins, aðgang að beztu mörkuðum heimsins fyrir afurðir þess. Þegar íslenzki og ameríski fáninn blakta hlið við hlið, þá mun harðstjórinn vissulega skjálfa og einræðisherrarnir örvænta, en frelsisunnandi þjóðir hvarvetna gleðjast, því að vegna sameiningar þessara tveggja miklu þjóða, þá mun hverfa úr huga þeirra, sem sækjast eftir heimsyfirráðum, eitt af því, sem freistar þeirra einna mest til að ráðast á hinar máttarlitlu þjóðir heimsins“ .

Þá segir Thor Thors sendiherra frá því, er hann í gær fór í utanrn. Bandaríkjanna til að láta þar uppi skoðun Íslendinga á tiltæki Mr. Gerharts á þá leið, sem ég lýsti á fundi sameinaðs Alþingis í gær. Í því tilefni lét Dean Acheson, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, það uppi, að samkv. stjórnarfyrirkomulagi Bandaríkjanna væri hvaða þingmanni, sem er, algerlega frjálst að stinga upp á hvaða löggjöf sem hann óskar, alveg á sama hátt og í öðrum lýðfrjálsum löndum, svo sem á Íslandi, þar sem hvaða alþingismaður sem er má láta uppi einkaskoðun sína á hverjum sem er. Enn fremur lýsti Mr. Acheson yfir því, að tillaga Mr. Gerharts um, að Ísland gerðist eitt af Bandaríkjunum, lýsi hvorki skoðunum, tilgangi né stefnu Bandaríkjastjórnar fremur en talið verði, að ýmsar fullyrðingar, er hafi í sér fólgnar árásir á Bandaríkin og einstakir alþingismenn hafi haft í frammi, lýsi skoðunum íslenzku stjórnarinnar eða yfirgnæfandi meiri hluta íslenzku þjóðarinnar.

Þessi skoðun Mr. Achesons og þar sem hann þar með fyrir hönd Bandaríkjastjórnar ótvírætt afneitar tillögu Mr. Gerharts og íslenzka stjórnin hefur þegar látið uppi, hve illa hún telur til fundið, að slík fjarstæða sem tillaga Mr. Gerharts skuli borin fram á Bandaríkjaþingi, og þar sem ummæli tillögumannsins sjálfs sanna það, sem ég sagði hér í gær eftir sendiherra Íslands í Washington, að tillöguna er ekki unnt að taka alvarlega, þá sé ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í þessu máli nema nýtt tilefni gefist.