09.04.1947
Neðri deild: 108. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1985 í B-deild Alþingistíðinda. (2548)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur hér látið í té. Við skulum nú athuga þetta mál nánar, og er þá í fyrsta lagi þetta munu þessir blaðamenn, sem eiga allir viðtal við forsrh. í einu, ekki geta haft rétt eftir honum. Mér finnst nú harla einkennilegt, ef þrjú blöðin, Dagens Nyheter, Stockholmstidningen og Svenska Dagbladet, koma upp með það sama, alveg sömu ummæli, ef svo enginn fótur er fyrir þeim upplýsingum, sem þau segjast hafa fengið. Og ég skil ekki annað en að við þetta komi „dementeri“, svo fremi að þetta væri fram borið við amerískan blaðamann. Við vitum mæta vel, hvernig svona orð eru uppblásin. Ég er nú hræddur um, að lík orð hafi áður fallið frá öðrum ráðh. Alþfl., að er flugvallarsamningurinn var gerður við Bandaríkin, hafi verið valið á milli Rússa og Bandaríkjamanna. Að minnsta kosti hafði hv. þm. Ísaf., fyrrv. dómsmrh., slík orð í frammi hér á Alþingi í umr. um þennan samning. Og ég er smeykur um, að blaðamaður frá Alþýðublaðinu, sem er einn blaðamaður Alþfl., hafi látið líkt í veðri vaka, er hann fór til Norðurlanda í boði flugfélagsins ameríska, og virðist hér því vera um pólitíska ráðstöfun að ræða. Svo bætist það við, að þrír blaðamenn frá sænskum blöðum, sem eru nú ekkert slæm út í hæstv. forsrh., sem er nú mikill vinur Svía og er í miklum hávegum hafður þar, ég skil varla, að þessir blaðamenn hafi ástæðu til þess að snúa út úr eða rangfæra framburð hans svona. Ef svo er, þá á að „dementera“ þessa hluti. Það kunna að koma fram vitleysur í einstökum blöðum, og er það mál út af fyrir sig, en það er alvarlegt atriði, þegar þrjú stærstu blöð Svía taka upp ummæli, sem geta haft mjög slæmar afleiðingar fyrir íslenzka ríkið og Íslendinga. Þá er það skylda íslenzku ríkisstj. að „dementera“ það mjög skarplega. Að öðrum kosti verður Alþ. að hindra, að svona lagað geti komið frá ríkisstj. landsins. Þetta verður að „dementera“, svo framarlega sem það er sýnt og sannað, að þessi blöð hafi haft þetta ranglega eftir hæstv. forsrh. En það er eins og ég sagði sýnu alvarlegra, þar sem þessi skoðun hefur komið fram áður af hálfu Alþfl., og þessi skoðun er útbásúnuð, sérstaklega í Bandaríkjunum, eins og stendur. Við vitum, að þótt svona málum sé mjög skarplega fylgt á eftir, þá er miklu hægara að skapa rangt almenningsálit en að leiðrétta slíkt með því að „dementera“. Það er sérstaklega varhugavert, að annað eins skuli koma fram, og ég er hræddur um, að sams konar skoðun hafi einmitt verið ítrekuð af hálfu eins blaðamanns frá Alþbl., sem var á ferð í Stokkhólmi um sama leyti.

Ég held það sé nauðsynlegt, að ríkisstj. geri ráðstafanir, sem heimurinn taki eftir, viðvíkjandi þessum málum. Það er ánægjulegt, að hæstv. forsrh. skuli neita því að hafa sagt á þá lund, að þetta væri herstöðvasamningur og hann bryti í bága við sjálfstæði Íslands. Og það þyrfti ekki sízt að „dementera“ slíkt. Í þessum blöðum er einnig upplýst, að einn af færustu herforingjum ameríska flugflotans hafi verið gerður að yfirmanni Keflavíkurflugvallarins. Þetta er einn af þeim mönnum, sem sérstaklega hefur haft með höndum sprengjuflugvélar og hafði undir sinni stjórn flugvélar þær, sem flugu frá Bandaríkjunum til Englands. Blöðin enda öll á því sama, að þegar nauðsyn krefji, þá geti Bandaríkin fyllt Keflavíkurflugvöllinn með flugvélum B-29, hlöðnum atomsprengjum, og öðrum langdrægum orrustuflugvélum, og að frá Keflavíkurflugvellinum sé hægt að leggja í rústir iðnað Vestur-Evrópu og öll rússnesk iðnaðarhéruð, bæði í Síberíu og Úral. Ég held það sé einmitt sérstök nauðsyn fyrir ríkisstj. að gefa einhverjar skýringar á þessu.

Hæstv. forsrh. sagði, að það fengju engir landgönguleyfi af starfsmönnum American Overseas Airlines nema með samþykki dómsmrh. Það væri gott að fá upplýst, hvort búið væri að veita slík leyfi, og ef svo væri, þá hvort það væri rétt, að slíkt leyfi hefði verið veitt einhverjum þekktasta herforingja ameríska flughersins. Sannleikurinn er sá, að full ástæða er til að neita um slíkt leyfi. Það er engin ástæða til að setja meiri hernaðarlegan blæ á þennan flugvöll en nauðsynlegt er varðandi þær ferðir, sem farnar eru til Þýzkalands. Það er ekki nóg að „dementera“, það verður að gera ráðstafanir til þess, að Keflavíkurflugvellinum verði stjórnað þannig, að ekki sé hægt að koma fram með annað eins og nú hefur verið gert í blöðum og það auk þess stutt við ummæli forseta Íslands og forsrh. Það er svo annað mál, að þegar íslenzkir ráðh. eða embættismenn láta blaðamönnum í hendur slík viðtöl sem þessi, þá er nauðsynlegt, að þau séu látin af hendi skrifleg. Annað er í raun og veru ófært. Við verðum að reyna að hindra það, að sú aðstaða, sem Ísland er nú í, sé misnotuð út á við eins hræðilega og nú er gert. Í raun og veru er verið að skapa það álit út á við, að Íslendingar hafi neyðzt til að semja við Bandaríkin vegna þess, að Sovétríkin hafi verið í þann veginn að fá herstöðvar hér. Þess vegna er það, að þegar við sem smáþjóð komumst inn í heimsstjórnmálin, þá er nauðsynlegt að viðhafa alla gætni. Ríkisstj. ber því að gera ráðstafanir vegna þessara ummæla voldugustu blaða Svíþjóðar. Þessi ummæli verða ekki aftur tekin, og það þarf skynsamlegar ráðstafanir til þess að breyta þessu almenningsáliti.