09.04.1947
Neðri deild: 108. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1987 í B-deild Alþingistíðinda. (2550)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Einar Olgeirsson:
Ég held það sé ástæða til að ræða öll þessi mál betur en hægt er að gera utan dagskrár. Í ræðu hæstv. forsrh. hefur það ekki komið í ljós, að ríkisstj. hafi gert nokkrar ráðstafanir til að „dementera“ vegna þessara ummæla sænsku blaðanna. Það er ekkert „dementeri“, þótt eitthvað sé sagt við Alþýðublaðið. Það er ekkert „dementeri“ af hálfu ríkisstj. í svo stóru utanríkismáli sem þetta er. Ég spurði að því, hvað íslenzka ríkisstj. hefði gert til þess að koma í veg fyrir, að því væri haldið fram, að Ísland væri herstöð fyrir Bandaríkin, þar sem það hefur sýnt sig, að blaðamenn styðja sig í því efni við viðtal við hæstv. forsrh. Og það viðtal virðist hafa leitt það í ljós, að forsrh. hafi gert sér ljósa grein fyrir þessu eðli samningsins. Allir blaðamennirnir virðast einmitt undirstrika þetta. Þessu hefur ekki verið svarað. Eins spurði ég að því, hvort það væri satt, að helzti flughershöfðingi Bandaríkjanna væri hér. Því var heldur ekki svarað. Einnig spurði ég, hvað liði reglugerðinni um framkvæmd samningsins við Bandaríkin. Þar er margt í óvissu um ýmis framkvæmdaratriði.
Ég held það sé einmitt full ástæða til að taka upp sérstakar umr. um þetta, séð út frá því ástandi, sem nú ríkir, og vitna ég til þess, að hæstv. fyrrv. forsrh. mótmælti einmitt þessum skilningi á samningnum, sem sænsku blaðamennirnir hafa eftir hæstv. núverandi forsrh., er hann kom fram hjá hæstv. fyrrv. dómsmrh. undir umr. um samninginn á sínum tíma. Það er óhjákvæmilegt að taka þetta til nýrrar athugunar, þegar því er haldið fram, að Íslendingar hafi hagað málum sínum þannig, að flugvöllurinn sé orðinn einn af hættulegustu stöðum jarðarinnar fyrir meiri hluta mannkynsins.