09.04.1947
Neðri deild: 108. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1988 í B-deild Alþingistíðinda. (2551)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Ég ætla ekki að lengja þessar umr., en vil aðeins fullvissa menn um, að hershöfðingi sá, sem hér um ræðir, er alls ekki búsettur hér á landi eða hefur slíka stjórn á flugvellinum sem hv. 2. þm. Reykv. hafði eftir hinum erlendu blaðamönnum. Þessi maður var staddur hér sömu dagana og þessir blaðamenn, en er nú farinn af landi burt. Það mun rétt vera, að maður þessi hafi verið hershöfðingi í bandaríska hernum, en hann fór úr herþjónustu löngu áður en félag það, er hann starfar hjá, fékk umboð Bandaríkjastjórnar til að taka við þessum velli. Þetta er mér af tilviljun kunnugt af samtölum við hann og aðra, þótt ég hafi ekki kynnt mér þetta sérstaklega. Mér þótti rétt að svara þessari fyrirspurn hv. 2. þm. Reykv., og ég vil geta þess, að það, sem blöðin segja um þennan mann, er mjög málum blandað, hvað svo sem um hitt má segja, er þau skýra frá. Ég hef ekki séð nema lítið af þessum viðtölum. En þar er talað um einhvern dósent Sigurð Guðmundsson, sem ég kannast ekki við. Hins vegar kannast ég við blaðamann hjá Þjóðviljanum, sem heitir Sigurður Guðmundsson. Ég skal samt ekkert fullyrða um það, hvort hann sé upphaflega sögumaður þess, sem þar er greint frá. En það er auðséð, að hér er eitthvað málum blandað, þar sem þessi dósent, Sigurður Guðmundsson, sem blaðið gerir að heimildarmanni sínum, er alls ekki til, þótt annar pólitískur maður sé hér með því nafni.