05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1991 í B-deild Alþingistíðinda. (2559)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Hinn 9. apríl var minnzt á hér á Alþingi, að komið hefðu viðtöl við mig í sænskum blöðum, sem gæfu tilefni til, að þau væru rædd. Ég lýsti því þá þegar yfir, að í þessum blaðagreinum skakkaði mörgu frá því, sem ég hefði sagt, og tók það fram, að ég mundi leiðrétta það. Þann 10. apríl kom svo leiðrétting á þessu í Alþýðublaðinu, þar sem sérstaklega tveim atriðum var mótmæl. Annað atriðið var það, að ég hafi átt að segja, að ef Bandaríkin hefðu ekki fengið samning um afnot af Keflavíkurflugvellinum, þá mundu Rússar hafa krafizt þess. Hitt var það, að flugvallarsamningurinn væri frávikning frá sjálfstæðispólitík Íslands. Samdægurs sendi ég svo bréf til sendiherra Svía, þar sem ég óskaði eftir, að hann kæmi þessum leiðréttingum til blaðadeildar sænska utanrn. Þá sendi ég líka sendiherra Íslands í Stokkhólmi skeyti varðandi þetta mál. Þann 12. apríl fékk ég bréf frá sendiherra Svía, þar sem hann kvittar bréf mitt og getur þess,. að sér sé ljúft að verða við þessum óskum mínum, o. s. frv. Nú hefur mér enn borizt bréf frá sendiherra Svía ásamt úrklippum úr sænsku blöðunum, þar sem birtar eru afsakanir og leiðréttingar á umræddum missögnum og rangfærslum. Hér fara á eftir þessar leiðréttingar blaðanna í lauslegri þýðingu, með leyfi hæstv. forseta.
Dagens Nyheter, 28/4 1947: Í viðtali, sem hin þrjú stóru morgunblöð í Stokkhólmi áttu við forsrh. Íslands, Stefán Jóh. Stefánsson, voru ummæli um Keflavíkurflugvöllinn. Forsrh. hefur látið þess getið við þessi þrjú blöð, að hann hafi aldrei sagt, að ef ekki hefði verið gerður samningur við Bandaríkin um afnot af Keflavíkurflugvellinum, mundu Rússar hafa krafizt þess að fá afnot. Forsrh. hefur ekki heldur sagt, að samninginn við Bandaríkin mætti skilja sem frávik frá sjálfstæðispólitík Íslands. Dagens Nyheter harmar fyrir sitt leyti, að viðtölin skyldu fá þetta form.
Svenska Dagbladet, 27/4 1947: Forsrh. Íslands, Stefán Jóh. Stefánsson, hefur beint því til þriggja stórblaðanna í Stokkhólmi, sem hinn 28. marz s. l. birtu viðtal við hann, að leiðrétta frásögn, sem þar var birt. Forsrh. mótmælir því, að hann hafi sagt, að ef Bandaríkin hefðu ekki fengið samning um afnot Keflavíkurflugvallarins, þá mundu Rússar hafa krafizt þess að fá að nota hann.
Stokkholmstidningen, 27/4 1947: Viðtal um Keflavíkurflugvöllinn. Í viðtali, sem fulltrúar fyrir stórblöðin í Stokkhólmi áttu við forsrh. Íslands, Stefán Jóh. Stefánsson, var meðal annars að finna ummæli um Keflavíkurflugvöllinn. Forsrh. hefur beint því til þessara blaða, að hann hafi ekkert sagt um það, að Rússar mundu hafa krafizt þess að fá löndunarrétt á Íslandi, ef Bandaríkin hefðu ekki gert samning um það. Að sjálfsögðu harmar Stokkholmstidningen það, að þessi ummæli skyldu af misskilningi hafa slæðzt í viðtalið.
Þannig hljóða leiðréttingar blaðanna. Ég hef aðeins viljað láta þetta koma fram, af því að þessu máli var hreyft hér á Alþ. og það á þann hátt, að það skyldi notað sem pólitísk sprengja, en ég vænti, að allir sjái, að sú bomba hefur sprungið án þess að af henni hlytist tjón nema fyrir þá, sem henni vörpuðu.