05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1992 í B-deild Alþingistíðinda. (2561)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Forsrh (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Herra forseti. Út af orðum 2. þm. Reykv. um það, hverju ég hafi svarað fyrirspurnum hans, þá vil ég taka það fram, að ég sagðist mundu gera ráðstafanir til þess að mótmæla, enda var sú leiðrétting birt í Alþýðublaðinu daginn eftir. Síðan lét ég þetta fara eðlilegar leiðir, eins og ég hef nú þegar tekið fram. Hins vegar vil ég geta þess, að blaðaummæli þessi hefðu aldrei vakið slíka eftirtekt, ef hinum erlendu blöðum hefði ekki verið gefið í skyn, að þau hefðu á réttu að standa, en ég hefði rangt fyrir mér. Svo er líka annað atriði, að blöðum er yfirleitt ekki ljúft að birta leiðréttingar á missögnum sínum. Annars vænti ég, að íslenzkum málstað sé sómasamlega borgið með því, sem nú hefur verið birt um þetta mál.