05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (2562)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það er alveg rétt, að það er mjög erfitt að fá blöð til þess að leiðrétta það, sem þau hafa sagt. En mér hefði þótt eðlilegra og áreiðanlega heppilegra fyrir málstað Íslands, að þessi mótmæli hefðu komið strax frá forsrh. í stað þeirra orðalenginga, sem hann hafði, þegar ég vakti máls á þessu fyrst, því að þá sagði hann, að hann teldi óþarft að mótmæla erlendis, þó að ég óskaði eftir því, enda þótt hann kannist ekki við það nú. Hins vegar, eins og ég áður tók fram, verða ummæli, sem einu sinni hafa komið fram, ekki kveðin niður, þó að þeim sé mótmælt, og sízt þegar þau eru þess eðlis, sem hér um ræðir.