05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (2567)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :
Ósannindi verða ekki að sannleika, þó að þau séu margendurtekin. Og það, sem gerzt hefur í sambandi við Keflavíkurflugvöllinn, er samkvæmt þeim samningi, sem við Íslendingar höfum fúsir og óþvingaðir gert, bæði löggjafinn og ríkisstj. Það hefur ekki komið neitt fram, sem bendi til þess, að sá samningur verði ekki haldinn af gagnaðilanum.