10.04.1947
Neðri deild: 109. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1996 í B-deild Alþingistíðinda. (2574)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Áki Jakobsson:

Ég ætlaði að leyfa mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. fors.- og félmrh. í sambandi við l. um verkamannabústaði.

Þannig er ástatt á Siglufirði, að það er verið að byggja 30 íbúðir af Byggingarfélagi verkamanna þar, sem munu kosta um tvær millj. kr. allar saman upp komnar. Það mun vera á aðra millj. kr., sem Byggingarsjóður verkamanna á að lána til bygginga verkamanna þarna á staðnum, þegar þær eru komnar upp. Nú eru þessar byggingar mjög langt á veg komnar, og er búizt við, að þær verði í maí n. k. tilbúnar til íbúðar. En ekki hefur fengizt lánað nema rösk ein millj. kr. til þessara bygginga hjá Byggingarsjóði verkamanna, og þeir, sem tekið hafa að sér stjórn bygginganna, standa með stórar kröfur gagnvart byggingarfélaginu, og þeir eru komnir í þrot og hafa tilkynnt félaginu, að þeir verði þess vegna að gera einhverjar ráðstafanir. Og þó að þeim þyki það leiðinlegt, sjá þeir sér ekki fært annað en að rifta samningi og ganga að félaginu. Á Sauðárkróki, í Ólafsfirði, á Dalvík og Húsavík gengur þetta, að því er mér er tjáð, einnig þannig.

Ég hef staðið í stöðugu stappi við byggingarsjóðsstjórnina. En formaður hennar, Magnús Sigurðsson bankastjóri, er ekki á landinu nú. En hún getur ekkert úr þessum vandræðum greitt, nema hún hefur nú fyrir þremur eða fjórum vikum fengið 600 þús. kr. til þess að lána, og hefur hún útbýtt þessu fé að láni. Í hlut Siglufjarðarfélagsins kom af því 200 þús. kr., en skuldir munu hafa verið orðnar eitthvað á sjötta hundrað þús. kr. Þetta lán hrökk því mjög skammt. Ég hef líka átt samtal við starfsmann þessarar byggingarfélagsstjórnar og eftir því sem nú liggur fyrir, veit hann ekki til, að nein ráð séu fyrir hendi til að greiða úr þessum vandræðum. Það segir sig sjálft, að við svo búið má ekki standa í þessu efni, að þessar verkamannabústaðabyggingar verði stöðvaðar. Og það er ekki vafi á því, að ef farið verður að rifta samningi um byggingu þessara íbúða og farið út í málaferli út af greiðslum, þá er það ófyrirsjáanlegur skaði, sem byggingarfélögin, sem í hlut eiga, verða fyrir.

Ég vil út af þessu ástandi bera fram við hæstv. félmrh. þá fyrirspurn: Hvaða ráðstafanir hyggst ríkisstj. að gera til þess að fyrirbyggja, að byggingar verkamannabústaða stöðvist? — Hvað byggingarfélagið á Siglufirði snertir, þá er óhjákvæmilegt, að það verður að fá peninga þegar í stað, því að búið er að þenja þetta eins og mögulegt er. Þeir menn, sem tóku að sér byggingar þessar á Siglufirði, eru komnir í þrot, og sparisjóðurinn á Siglufirði er búinn að leggja fram þegar að láni mikið fé, og hann veit ekki, hvenær hann fær þær kröfur greiddar, og hann getur ekki meira.

Vandræði eru mikil á Siglufirði nú, m. a. vegna þess að Síldarverksmiðjur ríkisins hafa keypt uppundir 20 íbúðir og í þessar íbúðir hefur flutt aðkomufólk, sem eru ýmsir fagmenn, sem vinna fyrir síldarverksmiðjurnar, og fólk þeirra. Þetta hefur að þessu leyti tekizt af þeim íbúðum, sem fast búsett fólk á Siglufirði annars hefði notað. Og þó að Síldarverksmiðjur ríkisins hefðu að vísu átt að byggja sjálfar yfir þetta fólk sitt, þá er ekkert við því að segja, þótt þær gerðu það ekki, ef aðrir hefðu í stað þess getað byggt á Siglufirði. En þessi íbúðarkaup síldarverksmiðjanna gera byggingar verkamannabústaðanna miklu meir aðkallandi en annars hefði verið.

Ég vildi mælast til þess við hæstv. félmrh., að hann gefi upplýsingar um það, hvað ríkisstj. muni gera í þessu efni, af því að honum er kunnugt um, hvað í l. stendur um skyldur ríkisvaldsins í þessu efni.

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) : Herra forseti. Út af ræðu hv. þm. Siglf. skal ég leyfa mér að geta þess, að það eru allmikil vandkvæði, eins og nú standa sakir, um lánaútvegun til bygginga verkamannabústaða. En það hefur verið reynt að vinna að því, eftir því sem föng frekast hafa leyft, að afla þó fjár til þeirra bygginga, sem nú eru í gangi af verkamannabústöðum.

Fyrir einu eða tveimur árum síðan var gerð veruleg tilraun með það að bjóða út stórt lán fýrir Byggingarsjóð verkamanna. Sáralítið af þessu láni fékkst. Sjóðurinn hefur ekkert fé, eins og sakir standa, en Landsbankinn hefur lánað honum um 4 millj. kr. eins og nú er. — Mér er kunnugt um, að þessi vandræði steðja að á Siglufirði, sem hv. þm. hefur hér lýst, og ég hef líka vonir um, að það verði hægt að ráða fram úr því á þann veg, að verktaki haldi áfram byggingum þarna á Siglufirði, en á því er mikil nauðsyn, eins og undirstrikað var af hv. þm.

Annars er það svo um byggingar verkamannabústaða, eins og hv. þm. Siglf. veit, að í löggjöfinni um það mál er gert ráð fyrir, að byggingarsjóður fái lán til þess að veita einstökum byggingarfélögum verkamanna hingað og þangað um landið. Þetta hefur sjóðurinn reynt, árangurslítið eða jafnvel árangurslaust, og hefur þess vegna orðið að grípa til þess til bráðabirgða að fá lán í Landsbankanum til þess að geta haldið áfram þeim byggingum, sem eru nú á ferð, einkum á Norðurlandi, einmitt á þeim stöðum, sem hv. þm. taldi upp. — Ég vil vænta, að það takist að útvega svo lán til þessara bygginga, að þær geti haldið áfram, því að það er mikil nauðsyn á því. En hvað snertir útvegun á miklu stærri lánum til bygginga verkamannabústaða, þá er ekki hægt að segja um það mál á þessu augnabliki. En mér er kunnugt um, að stjórnin muni á sínum tíma taka til athugunar, hvaða möguleikar væru á því að útvega lán í stærri stíl til þessara bygginga, og hefur þegar athugað það að nokkru. En ég sem sagt vænti þess, að bæði á Siglufirði og annars staðar á Norðurlandi geti þessum byggingum verið haldið áfram og stöðvist ekki, því að þess er mikil þörf, ekki sízt á Siglufirði, því að þar býr talsverður fjöldi fólks í síldarbröggum, eins og hv. þm. þekkir, og allir, sem þekkja til á Siglufirði, vita, að þeir eru ekki hæfir til íbúðar til vetrarsetu, enda ekki til þess byggðir, heldur til þess, að verkafólk noti þá til íbúðar yfir blásumarið. En það var búizt við, að þessir verkamannabústaðir, sem nú er langt komið að byggja, mundu létta nokkuð þar á.

Annars er það svo, viðkomandi því, sem hv. þm. minntist á, að þegar Síldarverksmiðjur ríkisins neyddust til þess að taka upp stórkostlegt húsnæði á Siglufirði, til þess að fagmenn, sem unnu fyrir þær, gætu haft húsnæði, þá gekk það út yfir fast búsett fólk á Siglufirði. Og gæti verið spurning um það, hvort ríkisverksmiðjurnar ættu ekki að reyna að reisa eitthvað af íbúðum sjálfar fyrir starfandi fagmenn sína, eins og sakir standa nú á Siglufirði.

En ég vonast til þess, að hægt verði að greiða úr þessum vandamálum á Siglufirði og annars staðar á Norðurlandi, þannig að byggingar þær á verkamannabústöðum, sem nú eru í smíðum, geti haldið áfram.

Áki Jakobsson: Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir svör hans. Ég vil bara benda á það að lokum, að þörfin er orðin svo brýn, að í þessum efnum er nauðsyn aðgerða nú tafarlaust, og ef þessir verktakar á Siglufirði neyðast til þess að grípa til róttækra aðgerða, þá skaðast byggingarfélögin á Siglufirði um líklega hundruð þúsunda króna. Það verður því að fá einhverja bráðabirgðalausn á þessum málum fyrst í stað, meðan verið er að finna einhverja varanlega lausn málanna. Þeim, sem sáu það fyrir, að þessir örðugleikar gætu orðið á framkvæmd þessara l. um verkamannabústaði, og málin heyra undir hjá ríkisvaldinu, ber skylda til að greiða úr eftir föngum. Á það var bent hér í þinginu, að það þyrfti að ákveða, að Landsbankinn skyldi vera skyldugur til að lána til þeirra bygginga, sem byggðar væru samkv. þeim l. og vitað var, að byggðar yrðu á næstunni, til þess að bygging þeirra þyrfti ekki að stöðvast. Þá áleit meiri hl. hv. þm., að slíkt væri ekki tiltækilegt og að ekki væri þörf á því. En það hefur komið á daginn, að það hefur verið full þörf á því, og ég sé ekki annað en að ríkisstj. þurfi að fara fram á það við Landsbankann, að hann leggi fram það fé að láni, sem nauðsynlegt er að leggja fram til þess, að þarna verði ekki úr málaferlum á Siglufirði, vegna þess að verktakar þurfa að fá kröfur sínar vegna þessara bygginga greiddar.

Ég vænti þess, að eitthvað verði í þessu gert af hálfu hæstv. ríkisstj. nú sem allra fyrst.

Jónas Jónsson: Ég vildi mega beina því til hæstv. ríkisstj. í fyrsta lagi, hve mörgum millj. kr. er búið að eyða í framkvæmdir á báðum flugvöllunum. Mér er sagt, að það sé á 7. milljón. Í öðru lagi vil ég svo spyrja hæstv. ríkisstj., hve margir starfsmenn eru á Reykjavíkurflugvellinum og Keflavíkurflugvellinum, íslenzkir, og hvaða tekjur þeir hafa. — Ég þykist vita, að ríkisstj. sjái ekki ástæðu til að leyna neinu í þessu.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) : Það fór nú því miður dálítið fram hjá mér, sem hv. þm. sagði, en mér heyrðist þó, að hann væri að spyrja um það, hvort verið væri með stórar framkvæmdir á flugvöllum ríkisins, en þar er ekki um neinar stórframkvæmdir að ræða af Íslendinga hendi. Raunar var nokkur fjárlagaheimild veitt í þessu skyni í fjárlfrv. til endurbóta, sem vafalaust verður notuð. En engin stórvirki standa þar fyrir dyrum.

Jónas Jónsson: Ef hæstv. ráðh. hefur ekki tapað heyrninni, vona ég, að hann geti svarað betur, og endurtek spurninguna: Hve margar millj. er íslenzka ríkið búið að leggja í báða flugvellina? Er rétt, að það sé á 7. milljón? Hve margir menn eru að störfum á hvorum flugvellinum fyrir sig, og hve miklar tekjur hafa þeir?

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) : Hv. þm. verður að koma með fyrirspurnina skriflega samkv. þingsköpum, ef hann getur vænzt þess að fá svar við henni.

Jónas Jónsson: Það getur farið svo, að ég geti upplýst innan skamms, hve mörgum millj. ráðh. er búinn að eyða í þetta, ef hann treystir sér ekki til að svara. Geta þá spunnizt um það ýtarlegar umr., ef honum vex kjarkur.

Sigfús Sigurhjartarson: Herra forseti. Það er nú orðið kunnugt, að hér eru staddir nokkrir Bretar, sem vinna að athugun á Þjórsá, en meira vita menn ekki. Sumir hafa getið sér þess til, að hér sé að verki brezkur alúmíníumhringur, sem hafi í hyggju að athuga möguleikana á virkjun Þjórsár í því augnamiði að hefja hér alúmíníumvinnslu. Nú eru ákvæði um það í l. nr. 68 frá 1940 að rannsóknarráð ríkisins skuli hafa forgöngu eða vera til ráða kvatt við allar náttúrufræðilegar rannsóknir. Ég hef því snúið mér til formanns rannsóknarráðs ríkisins og spurt, hvort hann væri hér með í ráðum, en hann kveðst ekki hafa neitt verið til kvaddur í þessu máli og sama segir raforkumálastjóri. Nú vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. ríkisstj., og þá sérstaklega hæstv. atvmrh., sem ég geri ráð fyrir, að þessi mál heyri undir, hverju þetta sæti, hvort þessar rannsóknir hafi verið leyfðar og hvort það hafi verið gert í samráði við rannsóknarráð, ef þetta reynist vera gert samkvæmt leyfi, og enn fremur, að hverju þessar rannsóknir beinist.

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) : Herra forseti. Ég skal gjarnan gefa þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru í þessu máli. Þessu máli var hreyft í einu dagblaðanna í gær, og var ætlunin, að ríkisstj. gæfi um það opinbera tilkynningu, en vegna þess að í gær var fundur hér í þinginu, sem stóð fram á nótt, hefur ekki unnizt tími til þess að koma þessari tilkynningu út.

Nokkru eftir, að ég tók sæti í ríkisstj., var mér tjáð, að fyrir lægi beiðni frá ensku verkfræðingafirma að fá að gera athuganir á Þjórsá, og við nánari athugun fékk ég að vita, að á síðasta sumri kom hingað til lands fulltrúi frá ensku alúmíníumfirma, sem vildi fá að gera athuganir á vatnsmagni Þjórsár. Þá var þetta mál lagt fyrir ríkisstj., og hún taldi ekkert athugavert við það, þó að vatnsmagnið væri athugað, og samkvæmt því mun hafa verið greitt fyrir þessum manni. Hann flaug m. a. yfir vatnasvæðið og gerði einhverjar athuganir úr lofti, en fór síðan aftur til Englands. Það næsta er svo í þessu máli, að það kemur beiðni um, að firmað megi halda þessum athugunum áfram. Sú beiðni var því næst rædd í ríkisstj., og féllst hún á að leyfa áframhaldandi athuganir, en þó án skuldbindingar um nokkur frekari réttindi í framtíðinni. Enn fremur var þannig frá gengið, að ríkisstj. fengi að fylgjast með þessum rannsóknum og niðurstöður þeirra yrðu eign Íslendinga. Tveimur embættismönnum var falið að fylgjast með og semja um, hvernig þessu yrði fyrir komið, en það eru vegamálastjóri og raforkumálastjóri. Ég held, að það sé svo ekki fleira, sem ég þarf að svara í þessu sambandi, en þó vil ég aðeins geta þess í sambandi við það, að 6. þm. Rvk. taldi þessar rannsóknir heyra undir l. um náttúrurannsóknir, að ríkisstj. leit svo á, að hér væri ekki um vísindarannsóknir að ræða, heldur væru þetta fyrst og fremst tæknilegar mælingar, þó að ef til vill mætti heimfæra þær undir umrædd lög.

Sigfús Sigurhjartarson: Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. og tel hann hafa gefið greinargóðar upplýsingar, en það er þó eitt atriði, sem ég get ekki fallizt á, og það er, að þetta eigi ekki skylt við náttúrurannsóknir. Það vita allir þm., að þessi umræddu lög voru einmitt sett vegna þess, að nokkur brögð voru að því, að erlendir aðilar vildu rannsaka auðlindir landsins, en til þess að varna frekari íhlutun voru þessi ákvæði sett í l. um náttúrurannsóknir. Nú vita allir, að eftirsóknarverðustu gæði þessa lands er raforkan, og þegar erlendir aðilar fara að sækjast eftir að rannsaka hana, þá er hætt við, að fleira búi undir. Að vísu er bót í máli, að þessum erlendu mönnum er skylt að hafa samstarf við íslenzka aðila. En þrátt fyrir það, tel ég, að hér sé farið inn á mjög varhugaverða braut og ekki sízt, þegar jafnvel getur leikið vafi á um eignarrétt okkar á vatnsorkunni í Þjórsá. Mér er ekki kunnugt um, að eignarréttur Títan-félagsins svo nefnda, sem einu sinni keypti vatnsréttindi í Þjórsá, sé niður fallinn, þó að svo kunni að vera. En ég vil þó benda á það, að ekki er allsendis óhugsandi, að á bak við þessar rannsóknir sé á einhvern hátt gamla Títan og að þeir gerðu sér hugmyndir um, að þeir ættu þarna einhvern rétt. Ríkisstj. er skylt að vera á verði, og sem betur fer eigum við marga og góða verkfræðinga, sem geta framkvæmt mælingar og rannsóknir, og að minnsta kosti undir þeirra stjórn eiga allar rannsóknir á auðlindum okkar að fara fram.

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) : Herra forseti. Það má segja, að þessar mælingar, sem hér um ræðir, heyri að nokkru leyti undir náttúrurannsóknir, en þó eru þær eingöngu tekniskt atriði, og á þeim forsendum telur ríkisstj., að þær heyri ekki undir umrædd l. Hitt er annað mál, að það er sjálfsagt að fara gætilega með þessi mál, og það hugsar ríkisstj. sér að gera og þá á líkan hátt og þau heyra undir umrædd l. Um eignarréttinn á vatnsorkunni er það að segja, að þetta umrædda Títan-félag keypti hann og þetta félag er til enn og starfandi, en um það, hvar þessi vantsréttindahlutabréf eru niður komin, er ekki hægt að segja. Sennilega eru þau í Noregi, því að þetta félag er norskt. En raunverulega svífur eignarréttur félagsins í lausu lofti, því að félagið hefur engan rétt til virkjunar, og til þess að fá hann yrði það að hef ja algerlega nýja samninga, sem væru þá á valdi Íslendinga eingöngu.

Sigfús Sigurhjartarson: Herra forseti. Ég þakka ráðh. enn fyrir góðar upplýsingar. Það er þá vitað, að félagið Títan er enn starfandi og að það vantar ekki annað enn virkjunarleyfi í Þjórsá. Í því sambandi vil ég leyfa mér að óska þess, að ef til þess kemur, að Títan sæki um það leyfi, þá verði haldið betur á en verið hefur. Hér er erlendum aðilum veitt tækifæri til þess að rannsaka mesta orkuvatn landsins fyrirstöðulaust, og af því hlýtur að leiða, að knúið verður á um frekari ítök og aðgerðir, en þá verður að halda betur á málstað Íslands, ef ekki á illa að fara. Mér fyndist standa nær ríkisstj. að láta sjálf rannsaka íslenzku fallvötnin, þar sem stofnað hefur verið embætti í því skyni, þar sem er raforkumálastjóri, þó að til þess þyrfti að ráða erlenda verkfræðinga, heldur en segja já og amen, þegar erlendir auðhringar sækjast eftir að rannsaka íslenzku fallvötnin.

Eysteinn Jónsson: Herra forseti. Ég hef flutt á þessu þingi tvær fyrirspurnir, og er önnur á þskj. nr. 19, en hin á þskj. nr. 20. Það er nú nokkuð langt liðið, síðan ég lagði þessar fyrirspurnir fram. Önnur er til ríkisstjórnarinnar, en hin til atvmrh. Nú vil ég leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann geri ráðstafanir til þess, að þessar fyrirspurnir gætu orðið hér til umr. hið fyrsta. Og vil ég spyrja hæstv. forseta að því, hvort hann geti sagt nokkuð um það nú, hvort svo geti orðið, en annars, ef hann getur það ekki, mælast til þess, að hann vildi taka þessar fyrirspurnir á dagskrá næstu daga.

Forseti (BG) : Út af aths. hv. 1. þm. S-M. skal ég taka fram, að hlutaðeigandi ráðh. hefur verið skrifað og þeim tilkynnt, að fyrirspurnir þessar hafi komið fram, en enn hefur ekki komið svar frá þeim. En forseti mun á næstunni athuga, hvað málunum líður og hvort ekki megi vænta þess, að hæstv. ráðh. séu tilbúnir að svara fyrirspurnunum.

Eysteinn Jónsson: Herra forseti. Ástæðan fyrir því, að ég tek nú tii máls, er sú, að ég á hér á dagskrá tvær fyrirspurnir, sem lagðar voru fram fyrir mörgum vikum og hæstv. forseti hefur tekið af dagskrá dag eftir dag, án þess að sá ráðh., sem hlut á að máli, hafi verið viðstaddur til að svara þeim. — Út af þessu vil ég benda hæstv. forseta á, í hversu mikið óefni er komið þeim þætti þingstarfanna, að þm. eigi kost á að fá svarað þeim fyrirspurnum, er þeir bera fram, af hálfu viðkomandi ráðh. Þegar ég þekkti betur til þessara mála, var sá háttur við hafður, að viðkomandi ráðh. var skriflega tilkynnt um fyrirspurnir, er bornar voru fram til hans, og hann svaraði forseta síðan skriflega og tilgreindi, hvenær hann yrði reiðubúinn til þess að svara fyrirspurninni, þannig að forseti gæti þá sett fyrirspurnina á dagskrá í samræmi við það.

Vil ég nú eindregið beina því til forseta að reyna að fá þessu kippt í lag með því að leiða viðkomandi ráðh. það fyrir sjónir, að með þeirri aðferð að hrúga upp fyrirspurnum og láta þær liggja vikum saman og skeyta því engu, þótt þær séu settar á dagskrá, er þm. sýnd hin mesta fyrirlitning, en ég vil þó trúa því, að ef hæstv. forseti fengi hina starfsbræður sína hér — þ. e. hina forsetana — til þess að leiða ráðh. þetta fyrir sjónir, þá hlyti slíkt að bera árangur. Ég get hugsað mér, að hér sé fremur um að kenna áhugaleysi heldur en ásetningi, að þessi háttur hefur á orðið gegn virðingu þingsins, og vil því skora á hæstv. forseta að fá þessu máli kippt í lag með samstarfi við hina forseta Alþingis.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Þann 16. okt. var vísað til samgmrh. 2 frv., sem ég er flm. að: Frv. á þskj. 6, um breyt. á vegal., og frv. á þskj. 7, um breyt. á brúal. Það hefur nú ekkert heyrzt frá viðkomandi n. um þessi mál, og vildi ég gera þá fyrirspurn til hv. form. n., hvers vænta megi um afgreiðslu þeirra. Það er mikils virði fyrir okkur að vita um það, hvaða afgreiðslu þetta fær í þinginu, með tilliti til afgreiðslu 13. gr. fjárl., og vænti ég að geta fengið greið og góð svör í sambandi við þetta.

Eiríkur Einarsson: Mig furðar ekki, þótt hv. þm. Barð. spyrji um þetta, þar sem liðinn er þetta langur tími síðan málinu var vísað til n. Ég hef ekki sem form. n. boðað til fundar og málið þannig ekki tekið fyrir í n. En þessi dráttur af minni hálfu að taka málið til meðferðar þar stafar eingöngu af því, að mér var kunnugt um það, að vegamálastjórnin hafði á prjónunum till. til Alþ., hver sé hennar vilji um heildarafstöðu til slíkra mála, sem fyrir þingið kunna að koma núna, svo sem um frv. um nýja þjóðvegi. Þar sem ég hafði ástæðu til að ætla, að vegamálastjórn landsins mundi bera fram þessar till. og þær gætu orðið þeirri n., sem um slík mál fjallaði, til leiðbeiningar, hef ég dregið að kalla saman fund til þess að sjá, hvort þessar till. kæmu ekki fram. Ég vil svo vona, að hv. fyrirspyrjandi skilji, að enn sem komið er stafar þetta af þessum orsökum, en ekki af öðru.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Af því að mér er kunnugt um, að í samamn. Nd. hefur verið á ferð frv. um sama efni og sú n. stendur í nánu sambandi við vegamálastjóra um þær breyt., þá vil ég beina því til hv. form. samgmn. hér, að n. vilji báðar sameina sig um þessi mál, svo að það fari ekki tvöfaldur tími í þetta hjá vegamálastjóra, en ekki, eins og mér skildist á hv. form. hér, að ekkert sé farið að gera í málinu í þessari d., meðan hin d. er búin að sitja á mörgum fundum með vegamálastjóra til þess að heyra hans till. um málið.

Gísli Jónsson: Ég er undrandi yfir þessum upplýsingum. Þegar ég var form. samgmn., var venja, að slíkar till. voru sendar vegamálastjóra til umsagnar og hann beðinn að gefa upplýsingar um, hvort hann gæti fallizt á, að réttmætt væri að gera slíkar breyt. á vegal. Nú skilst mér, að ekki sé farið að halda einn einasta fund um þetta í tvo mánuði. Ef þetta er rétt, vænti ég þess, að hæstv. forseti áminni þá þm., sem fara þannig með málin. Ég vænti því, eins og hv. 1. þm. N-M. sagði, að þetta verði tekið til athugunar og samvinna geti hafizt milli samgmn. beggja d., sem sameinist til áframhaldandi flutnings í annarri hvorri d.

Eiríkur Einarsson: Hv. tveir þm. hafa tekið í sama streng og lagt það af speki sinni til málanna, að samstarf verði milli samgmn. beggja d. um þetta mál. Það getur að vísu verið gott, að samráð séu milli d. um meðferð mála. En þó hygg ég, að flestir þm. séu um það sammála, að sú sé venjan um þingmál, að tilsvarandi n. hvorrar d. fer sínu fram til að byrja með, þó að það geti endað með eðlilegu samstarfi milli n. Hvort það hefur ekki verið minnzt á þetta við vegamálastjóra? Ég veit ekki betur en ég hafi gert það. Vegamálastjóri veit vel, að það er beðið eftir þessu, og ég mun ýta eftir þessu, eins og ég get. En hvort að svo komnu máli er ástæða til, að n. beggja d. fjalli um málið sameiginlega, hvað það snertir, mun ég fara mínu fram.

Forseti (ÞÞ) : Ég hef talað við form. samvn. og hef ástæðu til að ætla, að mjög fljótlega verði haldinn fundur í samvn., enda verður að gera eitthvað í þessu máli bráðlega.

Gísli Jónsson: Ég vil þakka forseta fyrir það, sem hann hefur gert í þessu máli, og skal ekki deila um þetta atriði, en vildi beina þeirri spurningu til form. n., hvort hann vildi nú ekki l já þessu máli sams konar samúð og Austurvegi. (EE: Er ekki bezt, að hvor fari sinn veg?)

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Snemma á þessu þingi var lögð fram till. til þál. um greiðslu ríkissjóðs til jöfnunarsjóðs kjötsins. Þetta var gert í þeim tilgangi, að hægt væri að reikna út kjötverð til bænda fyrir áramótin með því verði, sem sá útreikningur sýndi, og þess var vænzt, að það fengi þá afgreiðslu, að það gæti komið bændum til góða á ársreikningum þeirra 1946. Um svipað leyti var lögó fram till. til þál. um kaup ríkissjóðs á ull, sem ég er meðflm. að. Það var gert til þess, að bændur gætu fengið verð fyrir ullina sína síðustu fjögur árin, sem ekki er enn búið að gera upp, og það var upplýst, að um litla ullarsölu væri að ræða frá fyrri tveimur árunum, en nokkru meiri frá hinum síðari. Þessu var vísað til fjvn. Nú er komið nærri áramótum, svo að ég finn ástæðu til þess að spyr ja að því, hvers vegna þetta mál fái ekki afgreiðslu, en sé saltað svona í n. Ég vil vænta þess, að hv. fjvn. sjái um, að þetta mál fái afgreiðslu þingsins, hvort sem hún verður sú, að það verði látið viðgangast, að bændur fái ekki uppgert sitt ullarverð, eða ekki. Ég geri ráð fyrir, að aðrar stéttir þjóðfélagsins gerðu sig ekki ánægðar með það að bíða eftir kaupgreiðslu í 4 ár, en hér hefur það verið gert af ríkissjóði að þvinga bændur til þessa. Ég vil vona, að hv. fjvn. sjái um, að þetta verði gert fyrir næstu áramót.

Gísli Jónsson: Út af fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. vil ég upplýsa það, að þetta mál, sem hann talaði um, hefur ekki legið í salti í fjvn. Það hefur verið sent til umsagna viðkomandi aðila. Þeirra umsagnir liggja fyrir og hafa verið ræddar á fundi n. Annað þetta mál var á dagskrá í dag, en hinu málinu var frestað samkvæmt ósk frá einum manni í n., og hefur ekki verið gerður ágreiningur út af því. Og getur hv. 1. þm. N-M. fullvissað sig um þetta hjá flokksbróður sínum, sem á sæti í n. Ég mun ekki fara efnislega út í málið nú, enda þótt hv. þm. gerði það, en ég mun athuga, hvort hægt er að afgreiða málið nægilega snemma.

Sigfús Sigurhjartarson: Herra forseti. Snemma á þessu þingi flutti ég frv. til l. um Byggingarstofnun ríkisins og byggingarfélög. Það var 73. mál þingsins og prentað á þskj. 107. Þann 18. nóv. í haust var málinu vísað til hv. heilbr.- og félmn., og hefur sú hv. n. þannig haft málið til meðferðar nú á þriðja mánuð. Álit hefur enn ekki komið frá hv. n. um þetta mál, og ég vildi nú leyfa mér að spyrjast fyrir um, hvað liði afgreiðslu þessa máls, og jafnframt beina þeim tilmælum til form. þessarar hv. n., að hann sem allra fyrst sæi til þess, að n. gæti tekið þetta mál til meðferðar og afgreiðslu.

Um sama leyti flutti ég annað frv. á þskj. 108 um breyt. á l. nr. 55 3. marz 1945, um heimild fyrir veðdeild Landsbanka Íslands til að gefa út nýja flokka bankavaxtabréfa. Þetta er 74. mál þingsins. Þessu máli var þann 24. nóv. vísað til hv. fjhn. d. Það gegnir sama máli um þetta mál eins og fyrra málið, sem ég nefndi, að n. hefur haft það til meðferðar í þrjá mánuði og hefur enn ekki skilað áliti um það. Vil ég beina því til hv. form. fjhn., hvort ekki sé von á áliti um málið bráðlega, og bera fram þá ósk, að hann stuðli að því, að álit um þetta mál gæti komið sem fyrst.

Ásgeir Ásgeirsson: Herra forseti. Þessari síðari fyrirspurn var beint til mín, en ekki til hæstv. forseta. Hv. fyrirspyrjanda er kunnugt um það, að n. hefur nýlega borizt umsögn frá landsbankastjórn, en landsbankastjórn fékk þetta mál til álita. Það kom álit frá meiri hl. og minni hl. bankaráðs Landsbankans, og ég hef séð um það, að hv. flm. frv. fengi þetta til lestrar. Að sjálfsögðu verður þetta allt athugað í n., þegar allir nm. eru búnir að sjá þessar umsagnir.

Sigurður E. Hlíðar: Herra forseti. Viðvíkjandi þessari fyrirspurn hv. 6. þm. Reykv. um frrr. það, sem hann hefur lagt fram hér í hv. d., um Byggingarstofnun ríkisins og byggingarfélög, sem vísað var til heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. þann 18. nóv. s. l., vll ég taka fram, að á fundi 3. des. s. l. var málið sent félmrn. til umsagnar, svo og stjórn Byggingarsjóðs verkamanna, stjórn verkamannabústaðanna og stjórn Samvinnubyggingarfélags Reykjavíkur. Til þessara stofnana var málinu vísað til umsagnar 3. des., og n. hefur ekki fengið enn neina umsögn um málið. — Á fundi, sem við héldum í n. í morgun, kom til orða að afgreiða mál þetta án þess að fá neinar umsagnir, án þess að bíða lengur eftir þeim. Hins vegar er sá háttur hafður hér á hæstv. Alþ., að nm. leita umsagnar þeirra stofnana, sem þeir álíta, að hafi vit á málinu, til rökfærslu fyrir hv. nm. Ég vona, að hv. 6. þm. Reykv. geri sig ánægðan með þessa afgreiðslu að svo komnu í trausti þess, að n. taki þetta mál til sinnar eigin athugunar. Ég geri ráð fyrir, að n. muni ekki bíða lengi eftir þessum umsögnum, sem hún hefur leitað og ég gat um, því að allt virðist benda til þess, að þau álit muni ekki eiga að koma eða ætla að koma til n.

Páll Zóphóníasson: Herra forseti. Hv. þm. Barð. hefur spurzt fyrir um nefndarafgreiðslu á frv. sínu um breyt. á l. um útsvör, og vil ég í tilefni af því inna eftir máli nr. 104, um byggingu íbúðarhúsa og skipulag byggingarframkvæmda, sem er í n. síðan í nóv., og bólar ekki á því enn þá. Það hefur að vísu ekki verið eins lengi og frv. hv. þm. Barð., en ætti þó að vera búið að hljóta afgreiðslu.

Ennfremur vil ég spyrja um mál í Sþ. Ed. er hluti af því, svo að það mætti um það spyrja. Þetta var 21. mál, till. til þál. um greiðslu úr ríkissjóði til verðjöfnunarsjóðs, og var vísað til fjvn. sama dag og frv. hv. þm. Barð., en n. hefur sofið á því hingað til. Hvers vegna svo er, ætti hann að láta koma fram.

Forseti (ÞÞ) : Ég vil taka það fram, að hér er ekki til umr. meðferð mála í Sþ., en um mál d. geta hv. þdm. rætt.

Steingrímur Aðalsteinsson: Ég vil í tilefni af fyrirspurn hv. 1. þm. N-M. geta þess, þar sem formaður n. er ekki viðstaddur, að n. tók málið fyrir og sendi það til umsagnar félmrn. og sambandi byggingarfélaga, og þegar ég fór úr heilbr.- og félmn. vegna mannaskipta, sem þar urðu, hafði hvorugur aðilinn skilað áliti um það, og mun það líklega ekki komið enn þá. Það er ef til vill ekki ástæða til þess að láta málið bíða lengur í n., en frekari upplýsingar get ég ekki gefið, þar sem ég á ekki sæti í n. nú.

Forseti (ÞÞ) : Ég vil taka fram við hv. þdm., þar sem farið er að líða á þingtímann, að ég skora á hv. nefndir, sem hafa mál enn til athugunar, að hafa þau ekki lengi í höndum enn og hraða afgreiðslu þeirra. Ég játa, að ég er í n., þótt ég sé þar ekki form., sem ekki hefur hreinar hendur í þessu efni. Ég vil taka fram við hv. allshn., að mjög er knúð á framgang frv. varðandi Sauðárkrók, en það er ekki komið frá hv. n. enn. Sama gildir um frv. um borgararétt o. fl. Þetta vil ég biðja form. n. að athuga og afgreiða sem fyrst þau mál, sem ætlað er að ná fram að ganga á þessu þingi.

Gísli Jónsson: Herra forseti. Það skal verða tekið til greina, er hér var farið fram á. Í því sambandi er ekkert, sem ég hef með að gera í sjútvn., nema eitt mál um landshöfn í Hornafirði, og hefur orðið samkomulag um afgreiðslu þess máls. Mun nál. koma í dag eða á morgun. En verið er að ganga frá nál. um fiskiðjuver á Ísafirði. Málið varðandi Sauðárkrók liggur hjá félmn., en ekki allshn. Form. hennar er hv. 4. landsk., og ég hygg hann muni taka það mál fyrir strax og n. hefur fengið upplýsingar því viðkomandi hjá hæstv. dómsmrh. Mér er ekki kunnugt um, að n. hafi enn fengið þær. Annað, held ég, að sé ekki þessu viðkomandi í n., sem ég starfa í.

dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) : Það eru tvö mál, sem ég hef áhuga fyrir og ekki eru komin frá n. Annað þeirra flutti ég skömmu eftir jól í vetur, um breyt. á vatnsveitul. fyrir Reykjavík, og varð að samkomulagi hér á deildarfundi að láta þessi l. bíða, þar til sæist um afdrif frv. um opinbera aðstoð við vatnsveitur. Nú er það frv. að vísu komið til einnar umr. í Nd., en mér skilst, að ekki sé öruggt um framgang þess máls. Frv. varðandi Reykjavík er hins vegar þess eðlis, að það getur naumast staðið í mönnum að samþykkja það hér, og hefur bæjarstjórn og bæjarráð Reykjavíkur eindregið mælt með framgangi málsins. Nú er ekki þörf á þessu, ef hitt málið nær fram að ganga, en þar sem ekki er víst, að svo verði, en komið að þinglokum, vil ég biðja þá n., sem hefur það til meðferðar, að afgreiða það frá sér til 2. umr. í kvöld, þannig að það gæti gengið til Nd. og hún afgr. málið, ef hitt málið nær ekki fram að ganga, í samræmi við það, sem lofað var af hálfu þessarar n. í vetur, og ég hefði ekki sætt mig við stöðvun málsins, ef það loforð hefði ekki verið gefið. Nú blasir sá möguleiki við, að hitt málið kunni að stöðvast, og vil ég þá, að nm. standi við loforð sín að afgreiða málið. Annars vildi ég beina til forseta, að hann taki málið til afgreiðslu í d. nefndarlaust.

Hitt málið, sem ég vildi minnast á, er frv. um breyt. á l. um embættisbústaði héraðsdómara. Það var komið til n. fyrir mjög skömmu, og mér er ljóst, að ef n. krefst þess, á hún rétt á að athuga það lengur. En málið hefur gengið fram ágreiningslaust í Nd., og væri ég þakklátur, ef menn treysta sér til að gefa d. kost á að taka afstöðu til þess, en játa þó, að n. hefur haft svo skamman tíma, að ekki er hægt að ásaka hana fyrir vanrækslu.

Forseti (ÞÞ) : Út af ræðu hæstv. utanrrh. skal ég upplýsa, að form. allshn. hafði boðað fund kl. 5, en ekki hefur verið unnt að halda þann fund vegna starfa í þessari d. Hins vegar skal ég koma þessum boðum til hans eins fljótt og unnt er.

Hannibal Valdimarsson: Herra forseti. Það er einnig utan dagskrár. Í byrjun þessa þ. flutti ég fyrirspurn um það, hvað gerzt hefði í stjórnarskrármálinu, en við því fékkst aldrei svar. Nú er komið að þinglausnum, og það er samningsbundið hjá hinni nýju ríkisstj. að leysa stjórnarskrármálið eins fljótt og verða má. Mér er ekki kunnugt um, að neinar slíkar ráðstafanir hafi verið gerðar, og vil ég spyrja, hvað ríkisstj. hyggst að gera til þess að hraða aðgerðum í stjórnarskrármálinu, sem hefur dregizt, áður en þessu þ. lýkur.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) : Þetta mál heyrir að vísu undir forsrh., en þar sem hér eru ekki aðrir ráðh. en ég einn, skal ég svara þessu eftir beztu getu. Ég get skýrt hv. þd. frá því, að undirbúningur er hafinn um skipun nýrrar stjórnarskrárnefndar, sem komi í stað þeirra tveggja, sem starfað hafa að undanförnu, en það fyrirkomulag virtist of þungt í vöfum og ekki bera árangur. Ég geri ráð fyrir, að þessi till. komi fram, áður en langt um líður, ef samkomulag næst um hana, en annars er ég ekki reiðubúinn að gefa svör, af því að mér hefur ekki verið gefið færi á að bera mig saman við aðra.

Hannibal Valdimarsson: Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, að málið sé þó á leiðinni og till. frá ríkisstj. komi áður en lýkur.

Páll Zóphóníasson: Mig langar til að frétta af till., sem 24. okt. s. l. var vísað til n., sem hv. þm. Barð. er form. fyrir, og hefur legið þar síðan. Þetta er till. á þskj. 29, um greiðslu ríkissjóðs til verðjöfnunarsjóðs. Vil ég vænta þess, að n. sé búin að hafa nógan tíma til að athuga till.

Í byrjun febr. var vísað til n. öðru máli, sem fyrir liggur, að allir þm. nema fimm eru með. Þetta var till. um það að gefa eftir toll af sænskum húsum, og var hún samþ. með öllum atkv., nema fimm sátu hjá. Þessari till. var visað til fjvn. 5. eða 6. febr., og hún liggur hjá n. enn.

Tveim öðrum till. var vísað til n., annarri í nóv., en hinni í okt., um endurgreiðslu á tolli vegna innflutnings á bátum. Mig langar til að frétta af þessum till. hjá hv. form. fjvn. Ég ætla ekki að gera þá kröfu til hæstv. forseta, að hann taki þessar till. á dagskrá, en vil vænta þess, að n. þingsins breyti þeim vinnubrögðum að sitja á málum allt þingið.

(Ólafur Thors) : Ég vil leyfa mér að tilkynna hæstv. Alþingi, að ríkisstj. hefur í dag beðizt lausnar og að hæstv. forseti Íslands hefur fallizt á lausnarbeiðnina, en hefur beðið stjórnina að gegna áfram störfum, unz ný stjórn hafi verið mynduð.

Forseti (JPálm) : Hv. alþm. hafa heyrt tilkynningu hæstv. forsrh. Ég geri ekki ráð fyrir, að það verði rætt nú.

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) : Herra forseti, hv. alþm. Forseti Íslands hefur í gær á ríkisráðsfundi skipað þessa ríkisstjórn, með þeirri verkaskiptingu, er hér greinir:

I. Forsætisráðherra Stefán Jóhann Stefánsson. Undir hann heyra eftirgreind mál: Stjórnarskráin, Alþingi, nema að því leyti, sem öðruvísi er ákveðið, almenn ákvæði um framkvæmdastjórn ríkisins, skipun ráðherra og lausn, forsæti ráðuneytisins, skipting starfa ráðherranna, mál, sem varða stjórnarráðið í heild, Þingvallanefnd og mál varðandi meðferð Þingvalla. Enn fremur félagsmál, þar undir alþýðutryggingar, atvinnubætur, vinnudeilur, sveitarstjórnar- og framfærslumál, félagsdómur, almenn styrktarstarfsemi, þar undir styrkveitingar til berklasjúklinga og annarra sjúklinga, sem haldnir eru iangvinnum sjúkdómum, sjúkrasjóðir, ellistyrktarsjóðir, öryrkjasjóðir, slysatryggingarsjóðir, lífsábyrgðarsjóðir og aðrir tryggingarsjóðir, þar með talið Brunabótafélag Íslands, nema sérstaklega séu undan teknir, byggingarfélög.

II. Ráðherra Bjarni Ásgeirsson. Undir hann heyra landbúnaðarmál, þar undir ræktunarmál, þar á meðal skógræktarmál og sandgræðslumál, búnaðarfélög, búnaðarskólar, garðyrkjuskólar, húsmæðraskólar í sveitum, dýralækningamál, þjóðjarðamál, Búnaðarbanki Íslands. Enn fremur rafmagnsmál, þar á meðal rafmagnsveitur ríkisins og rafmagnseftirlit, vatnamál, þar undir sérleyfi til vatnsorkunotkunar, jarðboranir eftir heitu vatni og gufu, námurekstur, kaupfélög og samvinnufélög, landssmiðjan, Atvinnudeild háskólans, Rannsóknarráð ríkisins, mælitækja- og vogaráhaldamál.

III. Ráðherra Bjarni Benediktsson. Undir hann heyrir dómaskipun, dómsmál, önnur en félagsdómur, þar undir framkvæmd refsidóma, hegningarhús og fangahús, tillögur um náðun, veiting réttarfarslegra leyfisbréfa, málflutningsmenn, lögreglumálefni, önnur en gæzla landhelginnar, áfengismál, strandmál, sifjaréttarmál, erfðaréttarmál, persónuréttarmál, eignarréttarmál, yfirfjárráðamál, lög um kosningar til Alþingis og kjördæmaskipting, umsjón með framkvæmd alþingiskosninga, ríkisborgararéttur, útgáfa Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs, húsameistari ríkisins, verzlunarmál, sem ekki eru í úrskurði þessum falin öðrum ráðherrum, þar undir verzlunarskólar. Enn fremur utanríkismál.

IV. Ráðherra Emil Jónsson. Undir hann heyra samgöngumál, önnur en flugmál, þar á meðal vegamál, skipagöngur, atvinna við siglingar, Stýrimannaskólinn, skipaskoðun ríkisins, póst- og símamál, loftskeytamál, vitamál, hafnarmál, iðnaðarmál, þar undir iðnskólar, iðnaðarnám, iðnfélög, eftirlit með verksmiðjum og vélum, einkaréttarleyfi. Enn fremur viðskiptamál, þar undir innflutningsverzlun og utanríkisverzlun, önnur en verzlun með sjávarafurðir, bankamál, sparisjóðir, gjaldeyrismál, verðlagsmál (dýrtíðarráðstafanir).

V. Ráðherra Eysteinn Jónsson. Undir hann heyra menntamál, þar undir skólar, sem ekki eru sérstaklega undan teknir, útvarpsmál og viðtækjaverzlun, barnaverndarmál, menntamálaráð, leikhúsa- og kvikmyndamál, kirkjumál, ríkisprentsmiðjan, veðurstofan, heilbrigðismál, þar á meðal sjúkrahús og heilsuhæli. Enn fremur flugmál, þar undir flugvallarekstur, svo og gæzla landhelginnar.

VI. Ráðherra Jóhann Þ. Jósefsson. Undir hann heyra fjármál ríkisins, þar undir skattamál, tollamál og önnur mál, er varða tekjur ríkissjóðs, svo sem ef verzlun er rekin til að afla ríkissjóði tekna. Undirskrift ríkisskuldabréfa, fjárlög, fjáraukalög og reikningsskil ríkissjóðs, hin umboðslega endurskoðun, embættisveð, eftirlit með innheimtumönnum ríkisins, laun embættismanna, eftirlaun, lífeyrir embættismanna og ekkna þeirra, peningamál, þar undir peningaslátta. Yfirleitt fer þessi ráðherra með öll þau mál, sem varða fjárhag ríkisins eða landsins í heild, nema þau eftir eðli sínu eða sérstöku ákvæði heyri undir annan ráðherra. Þá heyra einnig undir hann hagstofan, mæling og skrásetning skipa og enn fremur sjávarútvegsmál, þar undir fiskifélagið og fiskimálanefnd, síldarútvegsmál (sildarverksmiðjur og síldarútvegsnefnd), svo og utanríkisverzlun með sjávarafurðir.

Ríkisstjórnin hefur komið sér saman um málefnagrundvöll, og mun ég hér á eftir lesa upp þá stefnuskrá, er stjórnin leggur til grundvallar starfi sínu og fyrirætlunum :

Það er höfuðhlutverk ríkisstjórnarinnar: að vernda og tryggja sjálfstæði landsins, að koma í framkvæmd endurskoðun á stjórnarskránni, að tryggja góð og örugg lífskjör allra landsmanna og áframhaldandi velmegun og að halda áfram og auka nýsköpun í íslenzku atvinnulífi.

Í samræmi við þetta hlutverk verði lögð megináherzla á eftirfarandi:

Það er stefna ríkisstjórnarinnar að kappkosta að hafa sem bezta sambúð við aðrar þjóðir og að leggja sérstaka áherzlu á samstarf við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Hún mun af alefli vinna að því að afla sem viðast markaða fyrir íslenzkar framleiðsluvörur og vinna að stækkun íslenzkrar landhelgi.

Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því, að lokið verði endurskoðun stjórnarskrárinnar og setningu nýrrar stjórnarskrár hraðað, eftir því sem frekast er unnt.

Ríkisstjórnin telur, að á meðan hinar miklu framkvæmdir í íslenzku atvinnulífi standa yfir, þurfi að samræma framkvæmdir einstaklinga og almannavaldsins, svo að þær verði gerðar eftir fyrirfram saminni áætlun, þar sem einkum sé lögð áherzla á :

að öll framleiðslustarfsemi sé hagnýtt til fulls og öllum verkfærum mönnum tryggð næg og örugg atvinna,

að öllum vinnandi mönnum, og þá sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyrir óeðlileg sérréttindi og spákaupmennsku,

að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sínar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vörudreifing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt,

að áframhald verði á öflun nýrra og fullkominna framleiðslutækja til landsins, eftir því sem gjaldeyrisástæður og vinnuafl leyfir frekast, enda verði tryggt fé til framkvæmdanna jafnóðum,

að byggðar verði verksmiðjur og iðjuver til þess að vinna sem mest og bezt úr öllum framleiðsluvörum til lands og sjávar, þannig að þær séu seldar úr landi eins fullkomnar og frekast er kostur, og við staðsetningu verksmiðjanna verði tekið tillit til hvors tveggja í senn, framleiðsluskilyrða og atvinnuþarfa einstakra byggðarlaga,

að atvinnuvegir landsmanna verði reknir á sem hagkvæmastan hátt á arðbærum grundvelli og stöðvist ekki vegna verðbólgu og dýrtíðar,

að húsnæðisskorti og heilsuspillandi íbúðum, hvar sem er á landinu, verði útrýmt með byggingu hagkvæmra íbúðarhúsa.

Til þess að semja áætlun þá, sem að framan greinir, skal skipuð sérstök nefnd, er heiti fjárhagsráð og komi m. a. í stað viðskiptaráðs og nýbyggingaráðs. Skal nánar mælt fyrir um það í lögum. Í áætluninni skal gerð grein fyrir kostnaði við hverja framkvæmd svo og, með hverjum hætti fjárins skuli aflað, enda skal kveðið á um það, í hverri röð framkvæmdir skuli verða, svo að vinnuafl og fjármagn hagnýtist þannig, að sem mest not verði að. Í því sambandi skal lögð megináherzla á byggingu íbúðarhúsa við almenningshæfi, bæði til sjávar og sveita, m. a. með útvegun lánsfjár og byggingarefnis. Fjárhagsráð skal hafa með höndum framkvæmd áætlunarinnar, eftir því sem nánar verður mælt fyrir í lögum, svo og veitingu fjárfestingarleyfa, innflutningsleyfa og gjaldeyrisleyfa og verðlagseftirlits. Ríkisstj. í heild hefur yfirstjórn fjárhagsráðs og tekur ákvarðanir um höfuðatriði og sker úr þeim ágreiningsmálum, sem einhver fjárhagsráðsmaður skýtur til hennar.

Til þess að tryggja rétt framtöl til skatts og afla fjár til nýsköpunar verði sett löggjöf um eignakönnun og skyldulán. Gerðar verði ráðstafanir, að eignakönnuninni aflokinni og í sambandi við hana, til þess að hafa betra og öruggara eftirlit með skattframtölum, enda fari þá og fram heildarendurskoðun á skattalöggjöfinni.

Ríkisstjórnin leggur á það áherzlu, að innflutningsverzluninni verði háttað svo, að verzlunarkostnaðurinn verði sem minnstur. Reynt verði, eftir því sem frekast er unnt, að láta þá sitja fyrir innflutningsleyfum, sem bezt og hagkvæmust innkaup gera og sýna fram á, að þeir selji vörur sínar ódýrast í landinu, hvort sem þar er um að ræða einstaklinga eða félög. Sérstök innkaupastofnun á vegum ríkisins verði sett á stofn og annist hún um innkaup til ríkisstofnana (vita-, hafna-, vega- og brúargerða, verksmiðja, opinberra bygginga, sjúkrahúsa, skóla o. fl.). Sú deild fjárhagsráðs, sem hefur með höndum veitingu innflutnings- og gjaldeyrisleyfa, skal taka til athugunar og rannsóknar, á hvern hátt takast mætti að haga innkaupum og vörudreifingu á sem hagkvæmastan hátt fyrir þjóðina í heild, einnig með hliðsjón af samningum við erlend ríki um sölu íslenzkra afurða.

Það er stefna ríkisstjórnarinnar að vinna að því af alefli að stöðva hækkun dýrtíðarinnar og framleiðslukostnaðar og athuga möguleika á lækkun hennar. Í því skyni verði leitað til samtaka launastéttanna og samtaka framleiðenda til sjávar og sveita til þess að gera ráðstafanir gegn frekari vexti dýrtíðarinnar og um leiðir til lækkunar.

Það er samkomulag milli stjórnarflokkanna að greiða niður fyrst um sinn vöruverð af ríkisfé svo mikið, að vísitala hækki ekki frá því, sem nú er. Verðlagseftirlitið verði skerpt og aukið og tekið til athugunar að miða ákvarðanir þess við þörf þeirra fyrirtækja, sem hafa vel skipulagðan og hagkvæman rekstur.

Afurðasölulög landbúnaðarins verði endurskoðuð á þessu þingi og þeim breytt á þann hátt, að stéttasamtök bænda fái í sínar hendur framkvæmd afurðasölunnar. Verðákvörðun landbúnaðarafurða verði gerð með það fyrir augum, að tekjur þeirra manna, er landbúnað stunda, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta.

Þeirri skipan verði komið á, að verðlag landbúnaðarafurða verði ákveðið með samkomulagi milli fulltrúa, sem tilnefndir eru annars vegar af stéttasamtökum bænda og hins vegar af félagssamtökum neytenda. Ef samkomulag verður með öllum þessum fulltrúum, er það bindandi. Á meðan greitt er niður með ríkisfé verð landbúnaðarafurða eða útflutningsuppbætur greiddar á þær, gildir eftirfarandi skipan: Rísi ágreiningur af hendi eins eða fleiri fulltrúa við samkomulagstilraunir, þá sker úr nefnd, skipuð þremur mönnum, einum af stéttarsamtökum bænda, einum af neytendasamtökunum og hagstofustjóra sem oddamanni.

Samþykkt verði á þessu þingi frv. til laga um ræktunarsjóð, í meginatriðum samhljóða frv. því, er nú liggur fyrir Nd. Lögin um jarðræktarstyrk verði endurskoðuð með það fyrir augum, að jarðræktarstyrkurinn verði hækkaður hlutfallslega og samræmdur núgildandi vinnulaunum og breyttum jarðvinnsluaðferðum.

Það er stefna ríkisstjórnarinnar að afgreiða að minnsta kosti rekstrarhallalaus fjárlög, og í því skyni taki hún strax til athugunar fjáröflunarleiðir, ef þörf þykir fyrir hendi vegna afgreiðslu fjárlaga.

Sett verði löggjöf, er tryggi bæjum og atvinnustöðvum hagkvæm afnot af lendum og lóðum í nánd við þær.

Undirbúin verði og sett löggjöf um stjórn og rekstur flugvalla.

Eins og kunnugt er Alþ. og alþjóð, baðst ráðuneyti Ólafs Thors lausnar hinn 10. október 1946. Ástæðan til þeirrar lausnarbeiðni var sú, að þegar Alþ. hafði samþykkt flugvallarsamninginn við Bandaríkin, rufu fulltrúar Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins, samvinnu í ríkisstj. Ríkisstj. gegndi þó störfum áfram, eins og venjulegt er, að beiðni forseta Íslands. En skömmu eftir að lausnarbeiðnin hafði verið til greina tekin, hófust viðræður með fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna í hinni svokölluðu tólf manna nefnd. En þó að mál væru þar ýtarlega rædd, ýmissa gagna aflað og mörg sjónarmið dregin fram, leiddu þau störf þó ekki til neinnar jákvæðrar niðurstöðu.

Þegar störfum tólf manna nefndarinnar lauk, fór forseti Íslands þess á leit við formann Sjálfstæðisflokksins, fyrrverandi forsætisráðherra Ólaf Thors, að hann tæki að sér að gera tilraun til þess að mynda ríkisstj. Hann varð við þessari beiðni og miðaði tilraunir sínar við það að koma á stjórn sömu flokka, er áður höfðu unnið saman í ríkisstj. um tveggja ára skeið. En þær ýtarlegu tilraunir, sem þá voru gerðar, tókust, sem kunnugt er, ekki. Samtímis fóru og fram viðræður á milli annarra flokka um stjórnarmyndun, en þær báru ekki árangur.

Forseti Íslands óskaði þá eftir því, að ég tæki að mér aó reyna að mynda ríkisstj. Með samþykki flokks míns tók ég þetta að mér. Ég sneri mér þá tafarlaust til allra stjórnmálaflokkanna og óskaði eftir því, að þeir nefndu fulltrúa til þess að ræða við mig um myndun samstjórnar, ef samkomulag næðist um málefni og önnur atriði. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn urðu þegar við þessum tilmælum, en eftir stutta umhugsun, tilkynnti Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn, að hann vildi engar viðræður við mig eiga um stjórnarmyndun. Að því búnu hófust umræður á milli mín og meðstarfsmanna úr flokki mínum við fulltrúa frá Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum. Þessar viðræður stóðu lengi yfir, og var þó tíminn notaður út í yztu æsar og alla daga haldnir fundir og margir suma daga, og var gengið að þeim störfum frá öllum flokkunum þremur með mikilli atorku.

Mér var það ljóst í upphafi, er viðræður þessar byrjuðu, að ýmsir örðugleikar, erfiðir að yfirstíga, yrðu á þessari samningaleið. Stjórnmálaflokkarnir, sem nú hafa tekið saman höndum um stjórnarmyndun, hylla ólíkar stefnur og hafa áður átt í allhörðum deilum sín á milli. En frá mínu sjónarmiði og þess flokks, sem ég veiti forystu, bar brýna nauðsyn til þess að leggja allt kapp á að mynda þingræðisstjórn. Stjórnarkreppan var orðin löng og alvarleg og hafði auk þess áður verið næsta erfið og óviðfelldin, að ekki sé meira sagt, fyrir 2–3 árum síðan. Af þessu ástandi hefur það leitt nú undanfarið, að Alþ. gat alls ekki nægilega sinnt störfum og bráðabirgðaríkisstj. ekki tekið vandasöm og aðkallandi viðfangsefni þeim tökum, sem venjuleg ríkisstj. verður að gera. Og þótt Alþýðuflokkurinn sé minnstur stjórnmálaflokkanna á Alþ., taldi hann það skyldu sína og í samræmi við stefnu sína og starfsaðferðir að stuðla að því af öllum mætti, að komið yrði á þingræðisstjórn. Sama hugsunin og sama ábyrgðartilfinningin réð því og í hinum samstarfsflokkunum, að að lokum tókst að ná samkomulagi um myndun ríkisstj.

Það ræður af líkum, að þegar þrír ólíkir flokkar taka höndum saman um ríkisstj., þá sé málefnasamningurinn og stjórnarstefnan ekki eingöngu mótuð af einum flokki, heldur eru ólík sjónarmið samhæfð. En það er öllum —stjórnarflokkunum sameiginlegt, að þeir byggja störf sín og stefnu á lýðræði og þingræðisstarfsemi. — Og ekki hvað sízt þess vegna náðu þeir samkomulagi, þar sem þeim var öllum ljóst, að þingræðinu og jafnvel lýðræðinu væri háski búinn, ef ekki tækist mjög brátt að ráða fram úr öngþveiti stjórnarkreppunnar.

Málefnasamningur sá, er ég hef lesið upp hér á undan, skýrir sig sjálfur í öllum aðalatriðum. Ríkisstj. er það ríkt í huga að vernda og tryggja sjálfstæði hins unga íslenzka lýðveldis. Það verður að byggjast á þeim hornsteinum og skilningi, hversu mikils virði það sé og nauðsynlegt, að þjóðin geti lifað lífi sínu frjáls og sjálfstæð í hinu tigna og fagra landi sínu. Og ríkisstj. vill einnig stuðla að góðum skiptum við öll önnur ríki, en leggur sérstaka áherzlu á samstarf við frændþjóðirnar á Norðurlöndum.

En til þess að hægt sé að njóta frelsis og sjálfstæðis, verður að tryggja örugg lífskjör allra landsmanna og halda áfram nýsköpun og framförum í atvinnuháttum, og þá þarf einnig að haga rekstri þjóðarbúsins á skipulagðan hátt og notfæra til hins ýtrasta með samtökum almannavalds og einstaklinga fjármagn og vinnuafl þjóðarinnar. En til þess verður sðmuleiðis að afla tekna hjá þeim, sem frekast eru aflögufærir, og nota þær til hagsmuna fyrir þjóðarheildina.

Dýrtíð og verðbólga er orðin ískyggileg. Þess vegna vill ríkisstj. vinna að því af alefli að stöðva hækkun dýrtíðar og framleiðslukostnaðar og leita að leiðum til lækkunar, allt til þess að tryggja hagkvæman og arðvænlegan rekstur atvinnuveganna.

Ríkisstj. er það vel ljóst, að við marga örðugleika er að etja og þörf er góðs samstarfs þjóðarinnar og atvinnustéttanna. Hún mun gera sér far um að sameina öll þau öfl í þjóðfélaginu, er vilja berjast fyrir því að tryggja sjálfstæði landsins, öruggan atvinnurekstur, áframhaldandi velmegun, aukna menningu og réttlæti í þjóðfélagsmálum. Hún óskar eftir stuðningi og samvinnu Alþ. til fulltingis og framkvæmda áformum sínum, og hún heitir einnig á þegnskap manna um land allt til þess að mæta og yfirstíga örðugleika þá, er fram undan kunna að bíða.

Þær eru ánægjulega stórstígar félagsmálaframkvæmdir síðustu ára. „Þeir, sem útskaga áður of byggðu“, geta nú notið annarrar aðbúðar og aukins öryggis. En til þess að hinar miklu réttarbætur geti orðið varanlegar og öryggi fengizt í framtíðinni, þarf að byggja traustan grundvöll í efnahagsmálum og atvinnurekstri. Það „varðar mest til allra orða, að undirstaða rétt sé fundin“. Ríkisstj. vill leggja fram orku sína til þess, að sá grundvöllur verði skapaður, — grundvöllur aukins öryggis og réttlætis í þjóðfélagsmálum.

Einar Olgeirsson: Sósíalistaflokkurinn er í andstöðu við þessa ríkisstj. Heildsala- og landsbankavaldið, peningavaldið í Reykjavík, hefur lamið þessa stjórn saman þvert ofan í vilja þjóðarinnar, eins og hann birtist í síðustu kosningum. Með þessari stjórn taka þeir menn, sem samþykktu flugvallarsamninginn, einir við völdum á Íslandi. Með þessari stjórn taka þau öfl, sem fjandsamlegust hafa verið nýsköpuninni, yfirráðin. Fagrar yfirlýsingar um nýsköpun, jafnvel góður ásetningur í þessum stjórnarherbúðum, mun ekkert duga, meðan hugrekki og vilja vantar til þess að lyfta þeirri loppu dauðans af atvinnulífi þjóðarinnar, sem hvíldi eins og mara á stórhuga framfaraviðleitni fráfarandi ríkisstj., brjóta landsbankavaldið á bak aftur. En um það er ekki orð í stjórnarsamningnum.

Þessi ríkisstj. mun geta lifað góðu lífi á verkum fráfarandi ríkisstj., líkt og heildsalarnir lifa góðu lífi á vinnu þjóðarinnar. Togarar nýsköpunarstjórnarinnar munu nú sigla í höfn, einn til tveir á mánuði, en hve marga mun þessi stjórn kaupa sjálf? Það heyrist ekki orð um það né nokkrar raunhæfar nýsköpunarráðstafanir í yfirlýsingu ríkisstj. Hvað er nú orðið um skilyrði þess flokks, sem áður þóttist öll skilyrði hafa sett fyrir nýsköpun atvinnulífsins og öðrum umbótum, Alþfl.? Eru þau nú gleymd, af því að kosningar eru nýafstaðnar, en ekki fram undan eins og í fyrra?

Þessi stjórn tekur við á mestu uppgangstímum, sem yfir Ísland hafa komið. Fram undan er hækkandi verð á öllum okkar afurðum og ótakmarkaðir markaðsmöguleikar, ef hagnýttir eru. En þjóðin þarfnast þess, að sá auður, sem streymt hefur inn í landið og getur haldið áfram að streyma inn í það, verði fyrst og fremst í höndum þjóðarheildarinnar, en safnist ekki á örfáar hendur og skapi hér og viðhaldi efnahagslegu einræði nokkurra auðmannafjöldskyldna. Þjóðin þarfnast þess, að gróðamöguleikar verzlunarauðvaldsins hverfi úr sögunni, en fjármagninu sé í enn stærra stíl en hingað til beint til framleiðslunnar til þess að auka velferð almennings á öllum sviðum.

En með þessari stjórn fá þau öfl, sem enga trú hafa á landi og þjóð, heildsalarnir og bankavaldið, — afæturnar í þjóðfélaginu, völdin yfir framleiðendunum, jafnt launþegum sem eigendum atvinnutækjanna. Bankavaldið er farið að láta framleiðendurna finna það nú þegar. Vér efumst ekki um vilja afturhalds þessa til þess að leggja til atlögu við alþýðu landsins og leiða aftur atvinnuleysi og kauplækkun yfir fólkið. Alþýðan er reiðubúin að taka á móti, hvenær sem á hana yrði ráðizt. En réttlætisgrundvöll mundi skorta fyrir öllum slíkum ráðstöfunum gegn henni. Nú væri þvert á móti hægt að skapa efnahagslegan grundvöll til þess að útrýma með öllu fátæktinni úr landi voru, versta bölinu, sem þjóðin hefur þekkt. Sósíalistaflokkurinn vildi vinna að því að það væri gert. Nú er í staðinn mynduð stjórn til þess að viðhalda og efla auð og völd nokkurra afturhaldssamra kaupsýslumanna og voldugra, þröngsýnna embættismanna í bönkum ríkisins.

Sósíalistaflokkurinn mun berjast gegn þessari ríkisstj. Hann mun hins vegar láta málefni réða um afstöðu sína til frv. hennar og aðgerða og styðja það, sem nýtilegt kynni að koma frá henni. Hann mun, áður en langt um líður, rannsaka, hverju fylgi þessi stjórn eigi að fagna á Alþ., og kærast væri honum, að það yrði einnig reynt sem fyrst, hvert fylgi hennar væri með þjóðinni.

Ólafur Thors: Herra forseti. Ég flyt hinni nýju ríkisstj. beztu óskir. Fari allt með felldu, er nú óvenju bjart fram undan í atvinnulífi þjóðarinnar. Óðum er verið að taka hin mikilvirku, nýju framleiðslutæki í notkun, afköstin munu stóraukast og verðlagið er hækkandi, einkum þó á síldarlýsinu. En þetta er aðeins önnur hliðin. Fjöldi vandasamra viðfangsefna bíður stjórnarinnar. Öll þjóðin á mikið undir, að stjórninni takist sem allra bezt að leysa þann vanda. Ég vona og óska, að gifta fylgi störfum hv. ríkisstj.

Jónas Jónsson: Það eru nú liðin liðlega tvö ár síðan ég flutti vantraust í þessum sal móti þeirri stjórn, sem þá var að taka við völdum. Það reyndist að vísu ekki mikill liðsstyrkur á móti, því að ég var einn á bát um það að halda því fram, að sú stjórn hefði ekki lífsmöguleika, eins og hún var mynduð. Nú eru liðin tvö ár, og þessi tvö ár hafa, því miður fyrir landið, en kannske því betur fyrir mig í ýmsum skilningi, sýnt, að ég hafði á réttu að standa. Það, sem ég benti þá á, hefur reynzt rétt, að stjórn, sem annars vegar er mynduð af rótum hins austræna valds, byltingavaldsins, en hins vegar af vestrænum, borgaralegum hugmyndum, hefði ekki lífsmöguleika. Og það er einmitt þetta, sem komið hefur fram og einkennt alla baráttu og viðleitni stjórnarinnar. Ég vil taka það fram, að þótt ég sé skoðanalega mjög mótfallinn Sameiningarflokki alþýðu og teldi það aðalástæðuna til að vara við stjórninni fyrir tveimum árum, þá er rétt að viðurkenna það, þótt þessi flokkur hafi ekki að líkindum meiri hæfileikamönnum á að skipa en aðrir flokkar, að hann hefur haft miklu meiri tækni og stuðzt þar við tækni síns alþjóðlega flokks, og hann hefur verið stefnufastari, af því að hann veit, hvað hann vill, þ. e. að breyta því skipulagi, sem hér hefur þróazt á vestræna vísu, í það horf, sem Rússar hafa tekið upp og nokkrar aðrar þjóðir. Það er óhjákvæmilegt að athuga það, um leið og hér er nú mynduð ný stjórn, að þessi flokkur hefur sýnt mikla lagni í tvö ár við að grafa undan okkar vestræna þjóðfélagi. Það þarf ekki annað en minna á það, sem flokkurinn byggði í 2 ár, og lokasteinninn í þeirri byggingu var það, að fyrir jólin samþ. allt Alþ. nema ég till. þess efnis, að ríkið keypti stærstu framleiðsluvöru landsmanna með miklu yfirverði, þótt nú hafi verið tekið fram af tveimur þm., og að því er virðist réttilega, að útlit sé fyrir betra verð á íslenzkum vörum en kannske nokkru sinni áður. Það er algerlega dæmalaust, að nokkur frjáls þjóð hafi gert þetta, að ríkið keypti aðalframleiðsluvöru sína til að selja með tapi, og það hefði áreiðanlega ekki komið til greina, ef sá flokkur, sem vill umbreyta þjóðskipulaginu, hefði ekki á mjög sniðugan hátt verið búinn að láta sér verða svo mikið ágengt sem reynslan sýnir. Ég vil því benda á það frammi fyrir þjóðinni og þinginu, ég vil benda ríkisstj, á, að fyrir henni liggi nú sá vandi að bæta og lækna á komandi árum mjög mikið af þeim stóru misfellum, sem Sóíalistaflokkurinn hefur komið til leiðar á þessum tveimur árum, bæði í andlegum málum og fjárhagsmálum.

Ég vil aðeins taka það fram hér, af því að hv. 2. þm. Reykv. minntist á bankavaldið, að þá er rétt, að menn viti það, að þessi flokkur sóttist eftir því allan þann tíma, sem verið var að leitast við að mynda ríkisstj., að leggja landsbankann að velli og taka af honum seðlana, sem allir þjóðbankar hafa, og taka af honum húsið. Þetta hefði samt sem áður verið mjög hyggileg aðgerð frá sjónarmiði þess flokks til að leysa upp þjóðskipulag okkar, og þess vegna kom það fram í ræðu hv. 2. þm. Reykv., að hann harmaði, að þetta skyldi ekki hafa tekizt.

Einn af þeim fáu mönnum í okkar samtíð, sem bæði var heimspekingur og stjórnmálamaður í Evrópu, Balfour lávarður, sagði: Þingræðisskipulagið gengur vel á meðan allir flokkar í þjóðfélaginu vilja hlýða reglum þess. Þetta er vitaskuld óhrekjandi sannleikur. Og ástæðan til þess, að svo illa hefur gengið að mynda hér þingræðisstjórn, er sú, að hér var kominn einn þingflokkur, óaðfinnanlegur að öðru leyti en sínum skoðunum, sem ekki vildi hlíta reglum parlamentarismans. Þess vegna er það, að þjóðin, hún þarf að skilja, að ástæðan til þess, að hér hefur ekki verið mynduð þingstjórn síðan 1942 nema með höppum og glöppum, er sú, að einn flokkur, ekki mjög stjór, en áhrifamikill á ýmsa lund, hefur eyðilagt allt þetta vitandi vits. Hið merkilega við þessa stjórnarmyndun nú, og kannske það eina merkilega, er það, að þjóðin hefur að mjög verulegu leyti breytt um stefnu, að miklu leyti undir áhrifum frá borgurum utan þings. Nú er reynt að mynda stjórn á þingræðisgrundvelli, þannig að nú styðja ekki aðrir flokkar stjórnina en þeir, sem viðurkenna leikreglur þingræðisskipulagsins. Og það, hver gæfa fylgir þessari stjórn, er fyrst og fremst komið undir því, hvort henni tekst, hvort flokkunum tekst, fullt svo mikið utan þings sem innan, að halda saman um það að standa á íslenzkum, þjóðlegum og vestrænum grundvelli.

forseti (JPálm) : Ég hef boðað til þessa fundar í dag að loknu páskahléi til þess að minnast nokkrum orðum nýlátins fyrrverandi þingmanns, Árna Jónssonar frá Múla. Hann andaðist hér í bænum aðfaranótt 2. þ. m., rúmlega hálfsextugur að aldri.

Árni Jónsson fæddist á Reykjum í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu 24. ágúst 1891, sonur hins nafnkunna merkismanns Jóns bónda þar og alþingismanns, síðar í Múla, Jónssonar bónda á Helluvaði í Mývatnssveit Hinrikssonar, en móðir Árna og kona Jóns í Múla var Valgerður Jónsdóttir bónda og þjóðfundarmanns á Lundarbrekku í Bárðardal Jónssonar prests í Reykjahlíð Þorsteinssonar.

Árni lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1908, stúdentsprófi í Reykjavík 1911 og ári síðar prófi í forspjallsvísindum við háskólann hér. Þá hvarf hann frá frekara námi og vann í verzlunarskrifstofu í Englandi næstu 3 árin, 1912–1915. Næsta ár, 1916, stundaði hann verzlunarstörf á Seyðisfirði, en ári síðar, 1917, varð hann verzlunarstjóri á Vopnafirði og gegndi því starfi um 7 ára skeið, til 1924. Í rúm 3 næstu árin, 1925–1928, var hann forstjóri Brunabótafélags Íslands. Þegar hann lét af því starfi, tók hann mjög að leggja stund á blaðamennsku, var ritstjóri Varðar 1928–1929, stjórnmálaritari Ísafoldar 1930 og ritstjóri Austfirðings á Seyðisfirði 1930–1932. Eftir þann tíma hafði hann um skeið á hendi skrifstofustörf í Reykjavík hjá Sambandi íslenzkra fiskframleiðenda og gaf sig jafnframt að blaðamennsku, allt til 1944, ritaði stjórnmálagreinar í Vísi til 1942, gerðist þá ritstjóri Þjóðólfs og síðan Íslands. Frá því er hann hætti blaðamennsku, fékkst hann við ritstörf hér í bænum, einkum þýðingar bóka. — Á Alþ. átti hann sæti alls um 9 ára skeið, var fyrst 2. þm. N-M. 1924–1927 (kosinn 1923), og 10 árum síðar, 1937, tók hann hér sæti að nýju sem landsk. þm. (varaþm.), þegar Magnús Guðmundsson féll frá, og sat á þingi til 1942. Fyrra tímabilið, 1924–1927, átti hann sæti í neðri deild, en hið síðara, 1937–1942, í efri deild. — Af öðrum störfum, sem hann var kosinn til þess að gegna í almenningsþarfir, má nefna, að hann sat í útvarpsráði 1939–1943 og var yfirskoðunarmaður ríkisreikninganna 1925, 1926 og 1927.

Árni Jónsson var gjörvilegur maður, stórbrotinn í lund, þó að hann væri hversdagslega gæfur og glaðlyndur, miklum gáfum gæddur, eins og hann átti kyn til, söngmaður ágætur, hagorður og listfengur. Honum var frábærlega létt um að rita og var bæði hugkvæmur og orðsnjall. Blaðagreinar hans margar voru hnittnari og hæfnari en almennt gerist hjá íslenzkum blaðamönnum. — Hin síðari ár naut hann sín ekki svo sem atgervi hans hæfði sakir heilsubrests. Þessi vel gefni og mikilhæfi maður er nú hniginn í valinn fyrir aldur fram.

Ég vil biðja hv. þm. að votta minningu Árna Jónssonar virðingu sína með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]

forseti (JPálm) : Kristján hinn tíundi, konungur Dana, er látinn eftir 35 ára ríkisstjórn. Hann var jafnframt konungur Íslands, hinn síðasti konungur þess, frá 1912, er hann settist að völdum, til 1944, er íslenzka lýðveldið var stofnað, eða í 32 ár, þó að konungsvaldið væri ekki í hans höndum hin fjögur síðustu árin af þeim tíma, eins og alþjóð er kunnugt.

Þessi góði lýðstjórnarkonungur mun jafnan verða Íslendingum minnisstæður. — Undir stjórn hans fengum vér fullveldi landsins viðurkennt, og var þá Ísland sérstaklega tekið upp í heiti konungs. Á ríkisstjórnarárum hans hafa með vaxandi sjálfstrausti þjóðarinnar orðið hér meiri framfarir en á nokkru tímabili í sögu vorri. — Vér erum þess minnugir, að Kristján konungur lagði mikla rækt við Íslendinga, heimsótti landið fjórum sinnum, bar velvildarhug til lands og þjóðar og kynntist hér hverjum manni vel. Þó að skilnaður Íslendinga við Dani yrði, fyrir rás viðburðanna, með öðrum hætti en hann hefði kosið, þá sýndi hann þó á úrslitastundu með heillaskeyti sínu til Alþingis og íslenzku þjóðarinnar, á Þingvöllum 17. júní 1944, lýðræðishug sinn gagnvart einhuga vilja Íslendinga.

Kristján konungur tíundi var sá þjóðhöfðingi, sem dönsku þjóðinni hefur þótt vænst um og ógleymanlegur mun verða í sögu hennar, ekki sízt vegna karlmennsku þeirrar og staðfestu, sem hann sýndi í raunum þjóðarinnar á styrjaldarárunum.

Alþingi minnist hins látna konungs með virðingu og þökk og vottar vinum hans og dönsku þjóðinni innilega samúð. — (Stutt þögn var að lokinni ræðu forseta, og risu þingmenn úr sætum.]

forseti (SB) : Áður en fundarstörf hefjast í dag, vil ég minnast hörmulegs sjóslyss, sem varð í gær við Hornafjarðarós, er vélbáturinn Borgey fórst og með honum fimm menn, fjórir karlmenn og unglingsstúlka.

Enda þótt slíkir atburðir séu ekki ótíðir hér á landi, eru þeir þó jafnan sorgarfregn og sár harmur kveðinn ekki aðeins að vinum og venzlamönnum, heldur og þjóðinni allri. Svo er einnig í þetta sinn, 4 vaskir sjómenn og ung stúlka hafa horfið í kaldan faðm Ægis. Íslendingar eiga flestum þjóðum meira undir baráttu sjómanna sinna. Hún er nátengd örlögum þjóðarinnar allrar. — Vér vottum ástvinum hins duukknaða fólks innilega samúð.

Ég vil biðja hv. þingdeildarmenn að rísa úr sætum sínum í virðingarskyni við minningu þessa. [Allir dm. risu úr sætum.]

Á 10. fundi í Ed., s. d., minntist forseti einnig slyssins, og tóku deildarmenn undir með því að rísa úr sætum.

forseti (BG) : Hörmulegt flugslys hefur orðið á Hvammsfirði, nálægt Búðardal, þar sem fjórir menn létu lífið, en þrír komust lífs af. Sú gæfa hefur fylgt flugferðum okkar, að aðeins einu sinni áður hefur flugvél hlekkzt svo á, að manntjón hefur af orðið. — Vil ég sérstaklega biðja hv. þingdeildarmenn að votta hinum látnu virðingu sína og ástvinum þeirra hluttekningu með því að rísa úr sætum. — (Dm. risu úr sætum.]

Á 94. fundi í Ed., s. d., minntist forseti einnig flugslyssins, og risu þingdeildarmenn úr sætum í virðingar- og samúðarskyni.

Forseti (JPálm) : Mér hefur borizt svohljóðandi bréf frá forseta Ed.:

„Frá 10. landsk., Bjarna Benediktssyni, hefur mér borizt svolátandi bréf :

„Með því að ég er á förum til útlanda í erindum ríkisstj. og mun dveljast erlendis næstu vikur, óska ég þess með skírskotun til 144. gr. l. nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður minn taki þingsæti mitt í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að rannsókn kjörbréfs varamanns, Kjartans Jóhannssonar, verði látið fara fram á fundi sameinaðs þings í dag.

Þorsteinn Þorsteinsson.“

Samkvæmt þessu liggur fyrir að rannsaka þetta kjörbréf, og vil ég gefa hlé um stundarsakir, svo að hv. kjörbréfan. geti athugað kjörbréfið. (Fundarhlé.]

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) : Nefndin hefur athugað kjörbréf Kjartans J. Jóhannssonar og hefur ekkert við það að athuga, og þar sem honum er úthlutað eina uppbótarvaraþingsæti Sjálfstfl., þá höfum við fjórir nm., sem mættir voru, verið sammála um að mæla með því, að samþ. verði að taka kjörbréf hans gilt. Og leggjum við til, að Kjartan J. Jóhannsson taki sæti hv. 10. landsk., Bjarna Benediktssonar, sem varamaður hans.

ATKVGR.

Samþ. að taka kjörbréfið gilt með 28 shlj. atkv.

Forseti (JPálm) : Þá mun hinn nýi hv. þm., Kjartan Jóhannsson, undirskrifa eiðstaf um fylgi við stjórnarskrána. — (Kjartan Jóhannsson undirskrifaði eiðstafinn.]

Þar sem Kjartan Jóhannsson hefur undirskrifað þennan eiðstaf, tekur hann sæti á Alþ., og vil ég leyfa mér að bjóða hann hingað velkominn til starfs.

forseti (JPálm) : Mér hefur borizt svohljóðandi bréf frá forseta neðri deildar:

„Garðar Þorsteinsson, 2. þm. Eyf., hefur ritað mér svolátandi bréf, dags. 14. f. m.:

„Með því að ég þarf að takast á hendur ferð til útlanda og mun dveljast erlendis næstu vikur, óska ég þess með skírskotun til 144. gr. laga nr. 80 7. sept. 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður taki þingsæti mitt í fjarveru minni.“

Með því að varamaður þingmannsins, Stefán Stefánsson, bóndi í Fagraskógi, er nú kominn til bæjarins til þess að taka þingsætið, er þess óskað, að þér, herra forseti, látið fara fram rannsókn á kjörbréfi varamanns á fundi í sameinuðu þingi í dag.“

Kjörbréfanefnd hefur fengið kjörbréfið til athugunar, og mun frsm. n. gera grein fyrir niðurstöðu hennar.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) : Herra forseti. Kjörbréfan. hefur athugað kjörbréf Stefáns Stefánssonar frá Fagraskógi og er sammála um, að ekkert sé athugavert að leggja til, að kjörbréfið sé tekið gilt og hann taki þingsæti í stað hv. 2. þm. Eyf. sem varamaður hans. Það eru því eindregin meðmæli kjörbréfanefndar að samþykkja bréfið, og er ekki fleira um það að segja.

ATKVGR.

Till. kjörbréfanefndar um að taka kjörbréf gilt samþ. með 28 shlj. atkv.

Forseti (JPálm) : Þessi hv. þm. hefur áður átt sæti á Alþingi og því undirritað eiðstaf um að halda stjórnarskrána. Leyfi ég mér að segja hann velkominn til þingsetu á ný.

Forseti (JPálm) : Mér hefur borizt bréf frá hæstv. forseta Nd., og hljóðar það svo:

„Lúðvík Jósefsson, 2. þm. S-M., hefur í dag ritað mér á þessa leið :

„Með því að ég fer til útlanda á morgun á vegum ríkisstj. og verð fjarverandi næstu vikur, óska ég þess, með skírskotun til 144. gr. laga nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður minn, Arnfinnur Jónsson skólastjóri, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér boðið sem skjótast til fundar í sameinuðu þingi til þess að rannsaka kjörbréf þessa varaþingmanns.

Barði Guðmundsson.“

Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf hv. varaþm., sem staddur er hér á fundinum, og mun frsm. nefndarinnar gera grein fyrir niðurstöðu hennar.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) : Herra forseti. Nefndin hefur rannsakað á fundi sínum kjörbréf Arnfinns Jónssonar, og þar eð ekkert athugavert kom í ljós við það, leggur n. til, að þingseta Arnfinns Jónssonar verði samþykkt.

ATKVGR.

Kjörbréfið samþ. með 27 shlj. atkv.

Forseti (JPálm) : Hinn nýi þingmaður undirritar nú eiðstaf um að halda stjórnarskrána. [Arnfinnur Jónsson undirritar eiðstafinn.]

Þm. hefur nú undirritað drengskaparheit sitt, og býð ég hann velkominn til þings.

Forseti las upp fjögur bréf frá deildarforsetum, þar sem frá því er skýrt, að eftirtaldir þingmenn, sem til þess voru nefndir að sækja 40 ára minningarhátíð finnska þingsins, hefðu óskað þess bréflega, með skírskotun til 144. gr. kosningalaganna, að varamenn tækju sæti þeirra á þingi á fjarvistartímanum:

1. Barði Guðmundsson, 9. landsk. þm., — varamaður: Steindór Steindórsson menntaskólakennari.

2. Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv., — varamaður : Snorri Jónsson járnsmiður (1. varamaður, Grímur Þorkelsson skipstjóri, forfallaður).

3. Jóhann Hafstein, 7. þm. Reykv., — varamaður: frú Auður Auðuns (1. varamaður, Björn Ólafsson stórkaupmaður, erlendis).

4. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf., - varamaður: dr. Kristinn Guðmundsson.

Frsm. (Hermann Jónasson) : Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund vegna fjarvistar þeirra fjögurra hv. þm., sem tilkynnt hefur verið, að farið hafa til útlanda í dag. Þegar n. hélt fundinn, voru fjórir nm. viðstaddir, en einn nm., hv. þm. Dal., var fjarstaddur. Fyrir lá að athuga kjörbréf Steindórs Steindórssonar, sem kemur í stað hv. 9. landsk., Barða Guðmundssonar, Auðar Auðuns í stað Jóhanns Hafsteins, 7. þm. Reykv., Snorra Jónssonar í stað Einars Olgeirssonar, 2. þm. Reykv., og dr. Kristins Guðmundssonar í stað Bernharðs Stefánssonar, 1. þm. Eyf. Kjörbréf lágu fyrir n. um þrjá hina fyrst töldu menn, en um kjörbréf dr. Kristins Guðmundssonar er það að segja, að það lá fyrir staðfest vottorð frá formanni kjörstjórnar um niðurstöður kosninga í Eyjafjarðarsýslu. N. mælir með, að kjörbréf hinna þriggja manna verði tekin gild og einnig áður nefnt vottorð, sem má skoðast sem kjörbréf. Þetta er að segja f. h. nefndarinnar, og voru nm. sammála um þessa niðurstöðu.

ATKVGR.

Till. kjörbréfanefndar samþ. með 35 shlj. atkv.

Forseti (JPálm) : Tveir hinna nýju varamanna, sem nú taka sæti á þingi, þeir, dr. Kristinn Guðmundsson og Steindór Steindórsson, eru ókomnir til þings, og mun ég skjóta á fundi síðar í dag til þess að þeir megi undirrita skuldbindingu sína um að halda stjórnarskrána. Hins vegar hafa þau Auður Auðuns og Snorri Jónsson þegar undirritað drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins, og leyfi ég mér að bjóða þau velkomin til starfsins.

forseti (JPálm) : Ég hef skotið á þessum fundi til þess, að þeir tveir varaþm., dr. Kristinn Guðmundsson og Steindór Steindórsson, sem ekki voru komnir til þings fyrr í dag, gætu undirritað heitvinningu sína. Kjörbréf þeirra voru samþ. hér á fundi fyrr í dag.

Þá hafa þessir tveir hv. varaþm., þeir dr. Kristinn Guðmundsson og Steindór Steindórsson, undirritað sitt drengskaparheit, og taka þeir nú sæti á þingi. Ég leyfi mér að bjóða þá velkomna til atarfsins.

Forseti (JPálm) : Mér hefur í dag borizt bréf frá hæstv. forseta Nd., er hljóðar svo:

„Reykjavík 22. maí 1947.

Jón Sigurðsson, hv. 2. þm. Skagf., hefur í dag ritað mér á þessa leið :

„Þar sem ég vegna annríkis heima fyrir, m. a. vegna opinberra starfa, verð fjarverandi næstu vikur, óska ég eftir, með skírskotun til 144. gr. l. nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður minn, Pétur Hannesson bankaritari, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Forseti neðri deildar.

Garðar Þorsteinsson.“

Hv. kjörbréfanefnd hefur fengið umrætt kjörbréf til athugunar, og mun hv. frsm. nefndarinnar gera grein fyrir niðurstöðu hennar.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) : Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Péturs Hannessonar og finnur ekkert við það að athuga. Leggur hún því til í einu hljóði, að kosningin sé tekin gild og hann taki sæti hér á Alþ. sem varaþm. 2. þm. Skagf.

ATKVGR.

Samþ. að taka kjörbréfið gilt með 26 shlj. atkv.

Forseti (JPálm) : Hinn nýi þingmaður hefur nú undirritað drengskaparyfirlýsingu sína, og býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.

Á 58. fundi í Sþ., 23. maí, utan dagskrár, var tekin til meðferðar rannsókn kjörbréfs.

Forseti (JPálm) : Mér hefur borizt bréf frá hæstv. forseta Nd., dags. í dag, og hljóðar það svo : „Hallgrímur Benediktsson, 3. þm. Reykv., hefur 21. þ. m. ritað mér á þessa leið:

„Með því að ég fer til útlanda á morgun í viðskiptaerindum og verð fjarverandi næstu vikur, óska ég þess, með skírskotun til 144. gr. laga nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður, Axel Guðmundsson skrifstofumaður (1. varamaður, Björn Ólafsson stórkaupmaður, er forfallaður) , taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Forseti neðri deildar.

Garðar Þorsteinsson.“

Kjörbréfanefnd hefur fengið umrætt kjörbréf til athugunar, og mun hv. frsm. nefndarinnar gera grein fyrir niðurstöðu hennar.

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) : Nefndin hefur athugað kjörbréf Axels Guðmundssonar og leggur einróma til, að það verði tekið gilt.

ATKVGR.

Kjörbréfið samþ. með 27 shlj. atkv.

Forseti (JPálm) : Ég býð hinn nýja þingmann, Axel Guðmundsson, sem nú hefur undirritað drengskaparyfirlýsingu sína, velkominn til starfa á Alþingi.

Á 3. fundi í Sþ., 22. okt., var tekin á dagskrá kosning nýbýlastjórnar, 5 manna og jafnmargra varamanna, allra til 4 ára, frá 1. jan. 1947 til 31. des. 1950, að viðhafðri hlutfallskosningu, samkv. 1. gr. laga nr. 35 29. apríl 1946, um landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum.

Forseti tók málið af dagskrá.

Á 9., 17. og 18. fundi í Sþ., 11. nóv., 12. og 13. des., var kosningin enn tekin á dagskrá.

Forseti tók málið af dagskrá.

Á 19. fundi í Sþ., 19. des., var kosningin tekin til meðferðar.

Við kosningu aðalmanna og varamanna, hvorra um sig, komu fram fjórir listar, A, B, C, D, er á voru samtals jafnmörg nöfn og menn skyldi kjósa. Samkv. því fóru kosningar fram án atkvgr., og lýsti forseti yfir, að rétt væru kjörnir:

Aðalmenn :

Jón Pálmason alþm. (D),

Steingrímur Steinþórsson búnaðarmstj. (B),

Ásmundur Sigurðsson alþm. (C),

Jón Sigurðsson alþm. (D),

Helgi Hannesson kennari (A).

Varamenn:

Ingólfur Jónsson alþm. (D) ,

Bjarni Ásgeirsson alþm. (B),

Tryggvi Pétursson bankafulltrúi (C),

Þorsteinn Þorsteinsson alþm. (D),

Haraldur Guðmundsson forstjóri (A).

Á 17. fundi í Sþ., 12. des., var tekin á dagskrá

kosning 5 manna í stjórn síldarverksmiðja ríkisins og jafnmargra varamanna, allra til 3 ára, frá l. jan. 1947 til 31. des. 1949, að viðhafðri hlutfallskosningu, samkv. l. nr. 1 5. jan. 1938 og l. nr. 43 s. á.

Forseti tók málið af dagskrá, og svo fór og á 18. og 24. fundi, 13. des. og 22. jan.

Á 27. fundi í Sþ., 10. febr., var kosningin tekin til meðferðar.

Við báðar kosningarnar, aðalmanna og varamanna, komu fram fjórir listar, A, B, C, D, er á voru samtals jafnmörg nöfn og menn skyldi kjósa. Samkv. því lýsti forseti yfir, að rétt væru kjörnir án atkvgr.:

Aðalmenn:

Sveinn Benediktsson (D),

Eysteinn Jónsson menntmrh. (B),

Þóroddur Guðmundsson (C),

Erlendur Þorsteinsson framkvæmdastj. (A),

Júlíus Hafstein sýslumaður (D).

Varamenn :

Jón Þórðarson (D),

Jón Kjartansson skrifstofustjóri (B),

Haraldur Guðmundsson skipstjóri (C),

Finnur Jónsson alþm. (A),

Elías Þorsteinsson (D).

Á 17. fundi í Sþ., 12. des., var tekin á dagskrá kosning þriggja yfirskoðunarmanna ríkisreikninganna 1945, að viðhafðri hlutfallskosningu, samkv. 43. gr. stjórnarskrárinnar.

Forseti tók málið af dagskrá, og svo fór enn á 18., 24., 27., 30. og 33. fundi, 13. des., 22. jan., 10., 20. og 28. febr.

Á 34. fundi í Sþ., 4. marz, var kosningin tekin til meðferðar.

Fram komu fjórir listar. Á A-lista var SÁÓ, á B-lista JörB, á C-lista ÁkJ, á D-lista JPálm. A-listi hlaut 13 atkv., B-listi 12, C-listi 10 og D-listi 16 atkv. Kosnir voru samkv. því alþingismennirnir

Jón Pálmason,

Sigurjón Á. Ólafsson.

Jörundur Brynjólfsson.

4. Síldarútvegsnefnd.

Á 17. fundi í Sþ., 12. des., var tekin á dagskrá kosning þriggja manna í síldarútvegsnefnd og jafnmargra varamanna, allra til 3 ára, frá 1. jan. 1947 að telja til 31. des. 1949, að viðhafðri hlutfallskosningu, samkv. 1. gr. laga nr. 74 29. des. 1934, um síldarútvegsnefnd, útflutning á síld, hagnýtingu markaða o. fl.

Forseti tók málið af dagskrá, og svo fór enn á 18., 24., 27., 30. og 33. fundi, 13. des., 22. jan., 10., 20. og 28. febr.

Á 34. fundi í Sþ., 4. marz, var kosningin tekin til meðferðar.

Við kosningu aðalmanna komu fram tveir listar, A og B. Voru á A-lista Jón Þórðarson, Björn Kristjánsson og Erlendur Þorsteinsson, en á B-lista Áki Jakobsson. — A-listi hlaut 37 atkv. og B-listi 12 atkv.

Við kosningu varamanna kom fram einn listi,er á voru jafnmörg nöfn og menn skyldi kjósa.

Samkv. framanskráðu lýsti forseti yfir, að rétt væru kjörnir:

Aðalmenn :

Jón Þórðarson framkvæmdastjóri,

Björn Kristjánsson alþm.,

Erlendur Þorsteinsson framkvæmdastjóri.

Varamenn :

Óli Hertervig bakari,

Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri,

Birgir Finnsson.

5. Fyrri varaforseti Sþ.

Á 26. fundi í Sþ., 6. febr., var tekin til meðferðar kosning fyrri varforseta.

Kosningu hlaut

Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.,

með 23 atkv. — Barði Guðmundsson fékk 1 atkv.,. en 10 seðlar voru auðir.

6. Stjórn landshafnar í Keflavíkur- og Njarðvíkurhreppum.

Á 37. fundi í Sþ., 21. marz, var tekin til meðferðar kosning eins manns í stjórn landshafnar í Keflavíkur- og Njarðvíkurhreppum til ársloka 1949, sbr. 4. gr. og bráðabirgðaákvæði laga nr. 25 23. apríl 1946, í stað Einars G. Sigurðssonar skipstjóra,

Samkv. þeirri einu uppástungu, er fram kom, lýsti forseti yfir, að kosinn væri án atkvgr.:

Alfreð Gíslason lögreglustjóri.

7. Úthlutunarnefnd skáldastyrks og listamanna.

Á 50. fundi í Sþ., 5. maí, var tekin til meðferðar kosning 4 manna nefndar samkv. 15. gr. A. fjárlaga fyrir árið 1947 til þess að skipta fjárveitingu til skálda, rithöfunda og listamanna.

Fram komu fjórir listar, A, B, C, D, með einu nafni á hverjum. Þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi, fór kosningin fram án atkvgr., og lýsti forseti yfir, að rétt væru kjörnir:

Þorsteinn Þorsteinsson alþm. (D),

Þorkell Jóhannesson prófessor (B),

Magnús Kjartansson ritstjóri (C),

Ingimar Jónsson skólastjóri (A).

8. Gæzlustjóri Söfnunarsjóðs.

Á 138. fundi í Ed., 20. maí, var tekin á dagskrá: kosning gæzlustjóra Söfnunarsjóðs Íslands fyrir þann tíma, sem eftir er árabilsins frá 1. jan. 1946 til 31. des. 1949, sbr. 7. gr. laga nr. 2 10. febr. 1888, í stað Sigurðar Ólafssonar gjaldkera.

Forseti tók málið af dagskrá.

Á 139. fundi í Ed., 21. maí, var kosningin tekin til meðferðar.

Fram kom aðeins ein uppástunga og samkv. því kosinn án atkvgr.:

Garðar Jónsson, ritari Sjómannafélags Reykjavíkur.

9. Flugráð.

Á 59. fundi í Sþ., 24. maí, var tekin til meðferðar kosning þriggja manna í flugráð og jafnmargra varamanna, allra til ársloka 1951, samkv. 1. gr. sbr. bráðabirgðaákvæði nýafgreiddra laga frá þinginu um viðauka við og breytingar á l. nr. 24 12. febr. 1945, um flugvelli og lendingarstaði fyrir flugvélar, að viðhafðri hlutfallskosningu.

Víð kosningu aðalmanna komu fram tveir listar. Á A-lista voru nöfn þriggja manna, í sömu röð og tilgreint er hér á eftir, og hlaut listinn 37 atkv. B-listi, er á var Áki Jakobsson, fékk 11 atkv.

Við kosningu varamanna kom fram einn listi, er á voru nöfn þriggja manna, eða jafnmargra og kjósa skyldi, og fór kosning því fram án atkvgr.

Samkv. framanskráðu lýsti forseti yfir, að kosnir væru í flugráð:

Aðalmenn :

Bergur Gíslason fulltrúi,

Þórður Björnsson fulltrúi,

Guðmundur Í. Guðmundsson bæjarfógeti.

Varamenn :

Örn Johnson flugmaður,

Friðjón Sigurðsson fulltrúi,

Baldvin Jónsson lögfræðingur.

10. Stjórn fiskimálasjóðs.

Á sama fundi var tekin til meðferðar kosning stjórnar fiskimálasjóðs, 5 manna og jafnmargra varamanna, allra til ársloka 1950, samkv. 1. sr. sbr. bráðabirgðaákvæði nýafgreiddra laga frá þinginu um fiskimálasjóð, að viðhafðri hlutfallskosningu.

Við kosningu aðalmanna og varamanna, hvora um sig, komu fram fjórir listar, A, B, C, D, með samtals jafnmörgum nöfnum og menn skyldi kjósa hvoru sinni. Samkv. því lýsti forseti yfir, að rétt væru kjörnir án atkvgr.

Aðalmenn:

Þorleifur Jónsson bæjarfulltrúi (D),

Þórarinn Þórarinsson ritstjóri (B),

Lúðvík Jósefsson alþm. (C),

Sverrir Júlíusson útgerðarmaður (D),

Jón A. Pétursson bæjarfulltrúi (A).

Varamenn :

Davíð Ólafsson fiskimálastjóri (D),

Jón Sigurðsson útgerðarmaður (B),

Áki Jakobsson alþm. (C),

Jakob Hafstein framkvæmdastjóri (D),

Óskar Jónsson framkvæmdastjóri (A).

dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) : Herra forseti. Í tilefni af ummælum, sem fram hafa komið í dagblaðinu Þjóðviljanum í morgun og hafa í sér mikla og geigvænlega árás á ríkisstj., ef sönn væru, þá þykir mér rétt að fara um það mál, er þar um ræðir, nokkrum orðum.

Í blaðinu er gert að árásarefni á ríkisstj., að hún hafi fyrir nokkru samþ. sölu á olíustöðinni í Hvalfirði til tveggja félaga, Olíufélagsins h/f annars vegar og Hvalveiðafélagsins h/f hins vegar. Gangur þessa máls er sá, að í desember var ríkisstj. boðin til kaups olíustöðin í Hvalfirði, sem þá var í eign Bandaríkjastjórnar. Það tókust þegar samningaumleitanir um þetta, og þeim lyktaði með samningi, sem var undirritaður 30. jan. s. l. Var kaupverðið 2 millj. ísl. kr. Kaupverðið er svona lágt vegna þess, að af hálfu Íslendinga var því haldið fram, að stöðin væri illa sett og óhentug til varanlegs rekstrar og yrði því að miða kaupverðið við niðurrif. Voru öll olíufélögin hér á landi sammála um, að ekki væri vænlegt til frambúðar að starfrækja olíustöð þarna, a. m. k. ekki í eins stórum stíl og þar er nú. Hins vegar hefur komið fram, að það voru einkum þrír aðilar, er höfðu áhuga á að fá þessa stöð eða einhvern hluta hennar í sínar hendur. Sá fyrsti var Hvalveiðafélagið, nýstofnað félag, í öðru lagi Olíufélagið h/f, hlutafélag, sem S. Í. S., samband kaupfélaganna og olíusamlög víða um land hafa stofnað ásamt nokkrum einstaklingum, eingöngu í því skyni að fullnægja formi laganna. Annars er félagið í raun og veru eign sambands kaupfélaganna og olíusamlaganna. Þetta er algerlega íslenzkt félag í einu og öllu og hefur þann eina tilgang eins og önnur hliðstæð félög að verzla með olíu. Hefur það í því augnamiði gert samning við erlent olíufélag um kaup á olíu um nokkurt skeið. Félagið sjálft er algerlega íslenzkt og ekki að neinu leyti í höndum erlendra manna, hvorki beint né óbeint. Sama er hægt að segja um Hvalveiðafélagið. Þriðji aðilinn, sem hafði áhuga fyrir málinu, var Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda eða einstakir meðlimir þess. Var það vegna hinna nýju togara, sem nú eru að koma til landsins. Um öll þessi félög er svo ástatt, að þau hafa fram að þessu ekki haft neinn stað fyrir starfsemi sína. Ég hygg, að allir séu sammála um, að Hvalfjörður sé vel í sveit settur einmitt fyrir Hvalveiðafélagið. En hins vegar hvað snertir Olíufélagið og Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda, þá hafa þeir aðilar báðir litið svo á, að þessi stöð væri ekki líkleg í núverandi formi til þess að verða heppileg fyrir framtíðarrekstur þeirra. Hins vegar er mjög mikill skortur á olíugeymum hér á landi, og má í raun og veru segja, að starfsemi Olíufélagsins og hinna nýju botnvörpuskipa mundi að verulegu leyti hafa lamazt, ef þessir geymar hefðu ekki verið fyrir hendi, því að það tekur áreiðanlega fleiri en eitt ár eða tvö að koma upp nægum geymum, eins og nú standa sakir. Af þessum orsökum var það, að þessir aðilar lögðu á það mikla áherzlu að fá olíustöðina í Hvalfirði. Af hálfu ríkisstj. var lögð á það áherzla, að þessir þrír aðilar kæmu sér saman um óskir sínar til ríkisstj., svo að ekki þyrftu að verða árekstrar þeirra í milli. Niðurstaðan af þeim samningaumleitunum varð sú, að 11. marz 1947 ritar Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda ríkisstj. bréf, þar sem segir m. a.: „Togaraeigendur mæla með því, að Olíufélaginu h/f verði seld nefnd olíustöð með öllum mannvirkjum og tækjum, sem eru nauðsynleg til þess að reka stöðina á öruggan og tryggilegan hátt.“ Bréfið er undirritað af Kjartani Thors fyrir hönd félagsins. Þetta var gert, eftir að þeir einstaklingar í félaginu, sem höfðu hagsmuna að gæta í þessu sambandi, höfðu náð samkomulagi við Olíufélagið h/f um sameiginlega þjónustu fyrir báða þessa aðila um tiltekinn tíma. Og það má fullyrða, að ef geymarnir hefðu verið rifnir niður og ekki látnir þessum félögum í té, þá hefði það orðið til stórkostlegs baga eða stöðvunar fyrir hina nýju togara, eins og nú standa sakir, og hefði það haft í för með sér stórt fjárhagslegt tjón fyrir landið. Einnig hefði það dregið mjög úr starfsemi Olíufélagsins, sem í raun og veru er ekkert annað en samtök kaupfélaganna og olíusamlaganna víðs vegar í landinu. Þegar þetta bréf frá Félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda var komið í hendur stjórnarvaldanna, þá skrifaði nefnd setuliðsviðskipta ráðuneytinu bréf, dags. 14. marz 1947, og leggur þar til, að þessar eignir verði seldar Hvalveiðafélaginu h/f og Olíufélaginu h/f. Síðar í marz áréttar nefndin þessa till. í ódagsettu bréfi, er barst ráðuneytinu síðustu dagana í marz, og gerir um leið frekari grein fyrir málinu. Var þessu þannig til hagað, að 1/3 verðmætisins féll í hendur Hvalveiðafélagsins, en 2/3 í hendur Olíufélagsins, auk nokkurra lausra muna, svo sem tankskips, sem ráðgert var að selja öðrum aðilanum, þannig að upp úr öllum eignunum, sem kostuðu nokkuð yfir 2 millj., fengist ríflegt kostnaðarverð, eða 2–3 hundruð þús. fram yfir.

Nú var mér kunnugt um, að nokkurrar tortryggni gætti af hálfu sumra varðandi mál þetta. Vildi ég af þeim orsökum fara varlega í þetta og krafðist þess vegna grg., áður en geymarnir voru afhentir, af hálfu þessara aðila um það, með hverjum hætti þessa geyma ætti að nota. Slík grg. var mér síðan send með bréfi, dags. 20. marz 1947, af hálfu Olíufélagsins, og fékk ég sérfróða menn, eftir því sem völ er á hér á landi, til þess að athuga hana í einstökum atriðum. Það var álit þessara manna allra, að grg. væri ekki hægt að hnekkja í neinu verulegu atriði. Það er að vísu svo, að þarna er um allmikla geyma að ræða, sem taka mikið olíumagn. En bæði er það, að þeir eru ýmissa tegunda og margs konar olíumagn þarf að geyma, og verður því geymslurímið ekki notað að fullu og því ódrýgra en ella. Botnvörpuskipaeigendur töldu sig á þessu stigi eiga erfitt með að segja um, hversu mikið rúm þeir þyrftu fyrir sig í þessum geymum. En óskir þeirra, sem þeir höfðu borið fram í bréfi 1. jan. 1946, voru á þá leið, að þeim yrði ætlað pláss fyrir 30 þús. smál. af olíu. Það er ljóst, að ef veruleg breyting yrði á togaraflotanum frá því, sem nú er búið að semja um, þá þyrfti geymslurúmið að vera mun meira, og ef flotinn verður aukinn, eins og nú er talað um, þá mundu eftir þessu hlutfalli að dæma geymarnir í Hvalfirði ekki hrökkva til. Sýnir það glöggt, um hversu háar tölur er hér að ræða varðandi hugmyndir útvegsmanna í þessu efni. En í grg. Olíufélagsins, sem þeir sérfræðingar, sem ég hef leitað til, hafa ekki treyst sér til að hnekkja í einstökum atriðum, er því lýst yfir af hálfu félagsins, að þeir geymar, sem ekki þyrfti að nota við rekstur stöðvarinnar, yrðu rifnir niður og fluttir til annarra staða á landinu eða ráðstafað á annan hátt eftir því, sem félagið teldi æskilegt.

Ég athugaði það verulega, hvort hagkvæmt væri fyrir ríkið að halda þessum eignum og ef til vill leigja þær til þessara nota, en þeir menn, sem vanir eru meðferð þessara mála af hálfu ríkisins, mæltu gegn því og vildu, að geymar þessir væru í því ástandi, að það væri ekki fengur fyrir ríkið að þurfa að halda þeim við. Auk þess væri það sýnilegt, að fjárhagslegur kostnaður við niðurrif og flutninga væri svo mikill, að mjög hæpinn vinningur væri að leggja út í slíkt. Mér sýndist engu að síður sjálfsagt að búa þannig um hnútana vegna þeirrar tortryggni, sem ég vissi, að af hálfu sumra manna var í þessu efni, að ríkið hefði sjálft úrslitatök í því, að þarna væru ekki geymar, sem ætla mætti, að notaðir yrðu til annarlegra þarfa. Þegar ég var búinn að kynna mér öll gögn í þessu máli og bera mig saman við ýmsa aðila um þetta efni, þá ritaði ég 31. marz 1947 bréf til setuliðsnefndarinnar, er hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta :

„Með tilvísun til bréfs n. frá 14. marz s. l. og síðari grg. n., dags. í marz, hefur ráðuneytið ákveðið að heimila n. að selja olíustöðina í Hvalfirði ásamt tilheyrandi eignum, öðrum en landinu, er stöðin er á, svo sem nánar er greint í framangreindum till. nefndarinnar. Um þann hluta stöðvarinnar, sem ráðgert er að selja Olíufélaginu h/f, skal þó tekið fram, að geymarnir eru seldir til eðlilegs rekstrar félagsins og til niðurrifs að öðru leyti, og hefur ríkisstj. heimild til þess að þrem árum liðnum að krefjast þess, að stöðinni verði komið í það horf, sem samsvarar þeim rekstri, er reynslan hefur sýnt, að þörf er á. Þennan fyrirvara verður að gera á fullnægjandi hátt, þegar salan fer fram.“

Eins og málið lá fyrir, var ekki unnt á þessu stigi að gera sér grein fyrir, hver eðlilegur rekstur stöðvarinnar yrði eða hversu rúmfrekur. Taldi ég því skynsamlegast að láta reynsluna skera þar úr og áskildi ríkinu vald til þess að koma stöðinni í það horf, sem reynslan sýndi, að hæfilegum tíma liðnum, að væri heppilegt. Hitt fannst mér ekki koma til mála, að rífa niður þá olíugeyma, sem nú eru uppistandandi, er mundi leiða til stöðvunar á hinum nýja togaraflota og setja bátaflotann í augljós vandræði. Ég vildi ekki láta ímyndaða hræðslu. eða uppgerðarhræsni ýta mér út í svo þjóðskaðlegan verknað.

Þjóðviljinn segir, að samningar þessir séu gerðir fyrir Bandaríkjaher og ákveðinn amerískur borgari hafi staðið að þeim. Ég lýsi því hér með yfir, að við lögðum embættisheiðri mínum, að þau ummæli eru tilhæfulaus með öllu. Síðan ég tók við starfi utanrrh., hefur Bandaríkjastjórn aldrei sýnt nokkurn áhuga fyrir því, hvort olíustöðin í Hvalfirði yrði látin standa eða hún yrði lögð niður. Ég mun óhræddur leggja það undir rannsókn, sem gerzt hefur í þessu máli.

Því hefur verið haldið fram, að tortryggilegt sé, að engin opinber tilkynning hafi verið gefin út um þetta mál. En hér er um hliðstætt mál að ræða og afhending annarra setuliðseigna, sem farið hefur fram, án þess að nokkur tilkynning hafi verið um það gefin, enda eru slíkar tilkynningar ástæðulausar fyrr en að gefnu tilefni, eins og nú er orðið. Það, sem skeð hefur, þolir hvers konar gagnrýni, enda geta þeir menn, er þess óska, kynnt sér gögn málsins. En þeir vinna þjóðhættulegt starf, er með ósönnum ásökunum reyna að telja umheiminum trú um, að útlend herstöð sé hér á Íslandi til notkunar í styrjöld, er sömu menn halda fram, að sé í uppsiglingu. Þeir menn, sem sífellt bera fram þær upplognu sakir, stofna öryggi og sjálfstæði þjóðarinnar í hættu. Ég tel mér skylt hér á Alþingi að afhjúpa blekkingar þessara manna fyrir þingheimi og alþjóð og lýsa því hættulega starfi, sem þeir hafa með höndum.

Einar Olgeirsson: Herra forseti. Mér heyrðist á hæstv. utanrrh., að hann væri að víkja að einhverju, sem okkur hefði milli farið út af einhverju, sem hefði gerst í Hvalfirðinum, og hann fann ástæðu til að taka það fram, að Bandaríkjamenn óskuðu ekki eftir, að þessi mannvirki stæðu, þannig að það væri úr lausu lofti gripið, að Bandaríkin hefðu óskað eftir flotastöð í Hvalfirðinum, og þeir menn, sem héldu því fram, þyrftu að standa alstrípaðir frammi fyrir þjóðinni. Ég verð að segja það, að ég er undrandi á þessum ummælum ráðh. Mér finnst engin ástæða fyrir hann að taka fram neitt um það, hvað Bandaríkjastjórn kann að hafa talið nauðsynlegt. Hitt er annað, hvað við kunnum að halda. Við vitum, að Bandaríkjastjórn hefur lagt svo mikla áherzlu á flugstöð, flotastöð, sem hún gæti notað, þegar henni þóknaðist, og í þriðja lagi stöð í Skerjafirðinum, að hún hefur farið fram á að fá slíkar stöðvar leigðar sér til 99 ára, og þegar þjóðin veit, að farið hefur verið fram á slíkt með þeim afleiðingum, sem það kann að hafa, kemur það úr hörðustu átt, þegar hæstv. ráðh. fer að lýsa því yfir, að Bandaríkjastjórn óski ekki eftir að hafa mannvirki í Hvalfirðinum. Bandaríkjastjórn hefur haft svo mikinn áhuga fyrir þessu, að hún hefur viljað fá þrjú landsvæði á Íslandi leigð og undan íslenzkri yfirstjórn. Ég vil segja það, að mér þykir það í hæsta máta undarlegt, þegar því er haldið fram, að Íslendingar þurfi ekki að vera á verði gegn slíku, og ég álít, að þann 1. október 1945 hafi Bandaríkjastjórn sýnt sig svo aðgangsfreka gagnvart sjálfstæði Íslendinga, að það sé ekki nema eðlilegt, að við verðum á verði, hverju sem slík stjórn kann að lofa. Ég geri þetta að umtalsefni vegna þess, að ráðh. hefur farið hér hörðum orðum um það, orðum, sem ég álít, að alls ekki eigi hér heima. Það mætti vera blind þjóð, sem eftir till. um 99 ár hefði ekki í huga, að sú stjórn, sem fer fram á slíkt, gæti haft áhuga fyrir að tryggja sér það síðar meir. Ég veit ekki, hvaða ástæða er til að vera að hvítþvo Bandaríkjastjórn gagnvart okkur og ætla að reyna að telja þjóðinni trú um, að hættan sé um garð gengin. Mér finnst hættan vera meiri en áður, enda er það vitað, að Bandaríkjastjórn fékkst ekki til að flytja her sinn héðan af Íslandi, nema hún fengi samning til 61 árs um flugstöð á Keflavíkurflugvelli, sem gæti verið til taks fyrir Bandaríkjastjórn, hvenær sem Bandaríkjaher væri skipað að gera árás. Ég á þess vegna bágt með að skilja það, að hæstv. utanrrh., sem á, fyrir hönd þjóðarinnar að „spesialísera“ í því að athuga þær hættur, sem kynnu að vera búnar frelsi hennar, að hann skuli vilja vísa með svo ákveðnum orðum á bug allri hugsanlegri tortryggni, sem fram kæmi hjá þjóðinni eða einstökum mönnum gagnvart Bandaríkjastjórn. Án þess að ég vilji ræða meira um þetta, vil ég ganga út frá þeirri staðreynd, að Bandaríkjastjórn hafi áhuga og að það sé eðlilegt, að Íslendingar séu tortryggnir. Eftir að Íslendingar höfðu neitað Bandaríkjastjórn um þessar herstöðvar til 99 ára, hefur það gerzt, að Bandaríkjastjórn hefur tryggt sér réttindi á Keflavíkurflugvellinum, sem okkur greinir ekki á um. Það, sem hér liggur fyrir í Hvalfirðinum, — það, sem veldur þeirri tortryggni, sem kom fram hjá Sósfl., eru tilmæli Bandaríkjastjórnar frá 1. október 1945 og sú hætta, sem í því felst, ef Hvalfjörðurinn yrði gerður að flotastöð. Út frá þeirri viðleitni, sem kom fram frá Bandaríkjastjórn, hefði verið eðlilegt að líta svo á, að hún hefði áhuga, og út frá Keflavíkurflugvellinum og þeim aðferðum, sem þar voru notaðar, er ekki óeðlilegt að líta svo á, að svipað gæti skeð með Hvalfjörðinn. Þess vegna þætti mér vænt um að heyra, hvað þessir olíugeymar taka mikið af olíu. Það er vitað, að þeir eru miklir og stórir. Ég hef að vísu heyrt, að þeir muni sumir ekki endast nema nokkur ár, en aðrir lengur. Það væri praktískt að kryfja þetta til mergjar og fá upplýsingar um það, hve mikið magn af olíu kemst í þessa tanka. Það má vera, að það séu ekki höfð nema fáein tonn í sumum af þessum tönkum, en ekki hafa nú verið svo margar tegundir af olíu, sem hafa verið fluttar inn, þó þessi nýja tegund af „fueloil“ bætist við. Það væri líka gott að fá upplýsingar um, hvað væri hið raunverulega verðmæti þessara eigna. Ég veit ekki um það. Mig minnir, að blöðin hafi verið að tala um, að þessar eignir væru 40 milljón kr. virði eða að tilboð hafi verið um þá upphæð. Ég þori samt ekki að fara með þetta, en held að það hafi staðið í Morgunblaðinu, að eignirnar væru þess virði, og vitað er það, að þetta eru náttúrlega gífurlega miklar eignir og þeim er mjög vel fyrir komið. Hins vegar var þetta selt á 1–2 milljónir, þegar stjórnin keypti það. Hvernig stendur á þessum breytingum á verðmætum? Það, sem Morgunblaðið segir, að sé 40 milljóna virði, er keypt á 2 milljónir og svo selt aftur á 2 milljónir.

Það mun vera rétt, að í þessu félagi, sem keypti, séu aðalhluthafar sambandið og eitthvað af kaupfélögum. Þó munu vera í því nokkrir einstaklingar. Hæstv. ráðh. segir, að það sé aðeins vegna hlutafélagal., af því að það séu einstaklingar, sem eiga að mynda hlutafélög. En hinu hafa menn veitt eftirtekt, að samhliða þessu olíufélagi starfar annað hlutafélag, sem heitir Hið íslenzka steinolíuhlutafélag og mun hafa haft umboð fyrir Standard Oil hér á landi. Ég hef þess vegna fengið þá hugmynd, að þessi tvö félög, Olíufélagið h/f og Hið íslenzka steinolíuhlutafélag, væru í rauninni tvö félög, sem að mjög miklu leyti væru sömu eigendur eða ráðamenn að, — og eins og menn vita, getur oft verið hentugt að geta beitt tveim mismunandi félögum fyrir sig. En það, sem við þyrftum að vita, væri, hvaða samband er á milli Olíufélagsins h/f og Standard Oil, og þá sérstaklega, hvaðan Olíufélagið h/f hefði hugsað sér að kaupa olíu, bæði togaraolíu og aðra olíu, vegna þess að hæstv. ráðh. segir, að engin tengsl séu milli Olíufélagsins h/f og erlendra félaga, og skilst mér, að það, sem hefur verið gert fyrir félagið, hafi verið gert vegna þess, að það hefur engin sérstök tengsl við erlend olíufélög. Þó sýnist mér, að gegnum Hið íslenzka steinolíuhlutafélag séu bein tengsl milli þessa félags og Standard Oil, og ef Standard Oil lætur alla olíu til þessa félags, þótt það sé gegnum Hið íslenzka steinolíuhlutafélag, þá er ekkert undarlegt, þó að menn langi til að vita eitthvað nánar um það. Það er vitað, að Standard Oil hafði mjög mikið að gera með olíubirgðir og olíusölu til Bandaríkjastjórnar á stríðsárunum, og svo mikið er víst, að amerísk olíufélög hafa mikilla hagsmuna að gæta fyrir botni Miðjarðarhafs og að það hefur áhrif á pólitík Bandaríkjastjórnar. Ef nú Standard Oil hefur hagsmuni gagnvart Olíufélaginu og annast um leið útvegun á olíu fyrir Bandaríkjaflotann, þá er ekkert undarlegt, þótt manni detti í hug stórpólitík í sambandi við þetta. Það væri gott að fá þetta upplýst, og þegar það lægi fyrir, væri ekkert að því að taka þetta til rólegrar umr. hér á nýjan leik.

Ég býst við því, að við viljum sem flestir vera á verði gegn því, að með hjálp auðhringa verði sett hér upp flotastöð fyrir ameríska flotann. Nú upplýsir hæstv. ráðh., að í bréfi, sem skrifað var út af þessum eignum, hafi verið ummæli um það, að stjórnin mætti innan þriggja ára fyrirskipa að rífa þessa geyma, ef þeir væru ekki notaðir. Nú skilst mér, að það sé alveg vandalaust fyrir olíufélagið, ef það vill það við hafa, að hafa alltaf not af þessum tönkum. Það er alltaf hægt að segja, að hér þurfi að vera 30 þús. tonn af olíu. Það er alltaf hægt að geyma nógu mikið af olíu, ef félaginu finnst það borga sig, og þá yrði erfitt að skipa að rífa niður tankana. Hér liggur fyrir frv. um einkasölu á olíu, og hafa verið sett sérstök l. um að taka olíutanka eignarnámi. Og það var engin ástæða til þess að selja þessa tanka án þess að láta Alþingi vita af því áður. Því held ég, að það væri gott fyrir hv. þm. að fá upplýsingar um verðmæti þessara hluta, geymslupláss tankanna og samband Standard Oil við íslenzka olíufélagið.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) : Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 2. þm. Reykv. Það var auðheyrt, að hann vildi fara ofurlítið hægar en blað hans Þjóðviljinn, enda mun hann hafa fundið, að grundvöllurinn undir ásökunum blaðsins er ekki svo sterkur. Ég vil leyfa mér að benda á, að það, sem hér er að gerast, er það, að sósíalistar ásaka ríkisstj. fyrir að láta dulbúa herstöð í Hvalfirði og halda því fram, að Olíufélagið h/f sé leppfélag fyrir amerískar „interessur“. En hverjir standa að þessu olíufélagi? Það eru S. Í. S. og nokkur sambandskaupfélög, ásamt félögum útgerðarmanna. Það eru þessir aðilar einir, og nú er það borið á þessi félög, að þau hafi léð sig til leppstarfsemi fyrir hagsmuni erlends ríkis. Þykir mönnum nú ekki trúlegra, ef Bandaríkin væru á annað borð að leita hér eftir leppfélögum, að fyrir valinu hefðu orðið einhverjir aðrir aðilar? Mér er kunnugt um, eins og hæstv. utanrrh. tók fram, að milli Olíufélagsins h/f og Standard Oil eru engin tengsl nema þau, að Olíufélagið kaupir af Standard Oil, en félagið hugsar sér að kaupa í framtíðinni frá Alþjóðasambandi samvinnumanna, en þau samtök eru enn ekki orðin nægilega sterk. Þetta er mér alveg sérstaklega kunnugt. Mér skilst, að afstaða sósíalista sé, að vegna þess að Bandaríkjaflotinn geti tekið stöðvarnar í Hvalfirði í sína þjónustu, þá eigi að rífa geymana. Þá mætti allt eins segja, að ef Bandaríkjamenn kæmu, þá gætu þeir tekið stöðvar, sem annars staðar eru. Ef Bandaríkin gerðu hér innrás, heldur þá hv. 2. þm. Reykv., að þau gætu ekki notað aðrar stöðvar en þær, sem eru í Hvalfirði? Að halda slíku fram er of heimskulegt fyrir jafngreindan mann.

Það er kunnugt, að þær olíustöðvar, sem nú eru til, eru allt of litlar. Og á þá að rífa niður þessar stöðvar í Hvalfirði og neyða menn til að byggja stöðvar annars staðar eða á að banna mönnum að hafa olíustöðvar í Hvalfirði? Ef menn eru svo hræddir við alla tækni, að hún verði misnotuð af erlendu ríki, þá held ég, að ekkert dugi til að fyrirbyggja þennan ótta annað en að færa allt aftur á bak til frumstæðara ástands og eyða allri tækni okkar. Ef ríkisstj. hefði tekið þá afstöðu að láta rífa stöðina í Hvalfirði, þá þurfti Olíufélagið að reisa nýja. En þess var það ekki megnugt að svo stöddu, og hefði þá starfsemi þess fallið niður á næsta sumri. Félagið ætlaði að reisa nýja stöð, en það var svo miklum erfiðleikum bundið, að ógerlegt reyndist í bráð, og þá var fyrst farið að athuga olíustöðina í Hvalfirði. En þetta er aðeins bráðabirgðaráðstöfun, því að félagið hefur í hyggju að reisa nýja stöð, eins og ég hef áður tekið fram. Hæstv. utanrrh. hefur nú upplýst, að félagið muni láta rífa þá tanka, sem ekki er þörf fyrir.

Hv. 2. þm. Reykv. spurði, hvað geymarnir tækju mikið, og mun hæstv. utanrrh. svara því. Það þarf auðvitað tanka fyrir margar tegundir, og svo getur staðið á, að heildargeymsluplássið sé óþarflega mikið.

Það getur verið ýmislegt, sem kommúnistar reyna að nota til árása og æsinga, þó að það skipti ekki máli í augum venjulegra manna. Ég býst við, að þeir, sem standa að olíufélaginu, kunni að meta aðdróttanir sósíalista og svara þeim á viðeigandi hátt, og hæstv. utanrrh. hefur svarað fyrir hönd ríkisstj., svo að ég þarf ekki að orðlengja þetta mikið. Ég vil aðeins benda á, að sósíalistar reyna af veikum mætti að kynda að hatursbáli gegn Bandaríkjunum og reyna að gera ríkisstj. tortryggilega og láta þar stjórnast af fjandskap gegn þeim félögum, sem eru aðilar að olíufélaginu. Hins vegar mætti búast við því, að þeir, sem fegurst tala um nauðsyn útgerðarmanna til að styrkja samtök sín og taka olíuverzlunina í sínar hendur og hafa talið sig hlynnta samvinnumönnum, þá mætti búast við því, að þeir hefðu fagnað því, að svona félag fengi olíustöðina. En þeir, sem þekkja sósíalista og vinnubrögð þeirra í garð samvinnufélaganna, eru ekki undrandi yfir þessum úlfaþyt, ekki sízt, þegar um leið er reynt að blása að hatri gegn Bandríkjunum og gera núverandi ríkisstj. tortryggilega í augum þjóðarinnar.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) : Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykv. talaði mjög í öðrum anda en flokksblað hans í morgun. Hann talaði um, að sala olíustöðvarinnar í Hvalfirði væri tortryggileg vegna þess, að Bandaríkin hefðu einu sinni óskað þar eftir herstöðvum. Í Þjóðviljanum var allt annað upp á teningnum en tortryggni eða spurningar. Þar eru fullyrðingar og frásagnir af atburðum, sem aldrei hafa skeð í þeirri mynd, sem blaðið segir. Ég vil nú leyfa mér að lesa hér upp ummæli Þjóðviljans, með leyfi hæstv. forseta, þar segir svo: „Þá var gripið til þess ráðs að senda herra Huge S. Comming, háttsettan embættismann í utanríkisráðuneytinu, til Íslands á nýjan leik, en eins og kunnugt er, samdi hann Keflavíkursamninginn ásamt Ólafi Thors og leiddi það herstöðvamál til lykta eins og Bandaríkjastjórn óskaði. Herra Cumming kom til Íslands 18. marz s. l. og krafðist þess, að Hvalfjarðarmálið yrði leyst á „viðunandi“ hátt, áður en hin formlega „brottför“ Bandaríkjahers ætti að fara fram, 5. apríl. Eins og í fyrra skiptið gekk för herra Cummings að óskum. Ríkisstj. „leysti“ Hvalfjarðarmálið 4. apríl — föstudaginn langa — samkvæmt óskum bandarísku stjórnarinnar. Með þessari sölu hefur ríkisstj. hinna þrjátíu og tveggja leitt óvéfengjanlega í ljós, að hún lítur á sig sem bandaríska leppstjórn. Fyrst „kaupir“ hún eignir Bandaríkjahers í Hvalfirði fyrir 2 milljónir króna í blekkingarskyni, — en afhendir þær síðan umboðsfélagi Standard Oil fyrir 1,3 milljónir. Hún kemur þannig fram sem umboðssali á herstöðvunum í Hvalfirði í því skyni einu að tryggja, að þær standi óhaggaðar og til taks handa bandaríska hernum. Þessi svik eru í beinu samræmi við aðrar aðgerðir ríkisstj., m. a. í markaðsmálum, sem miða að því að gera Ísland algerlega háð auðvaldi Bandaríkjanna. Ríkisstj. hefur með sölunni á Hvalfirði gengið í berhögg við vilja íslenzku þjóðarinnar og er nú fyrirlitin af öllum nema amerískasta hluta yfirstéttarinnar.“ Þarna er ekki um að ræða varfærni eða eðlilegar fyrirspurnir, heldur er þetta ákveðin frásögn, sem haldið er fram, að styðjist við staðreyndir, og inn í þetta er svo dregið viðkvæmt markaðsmál. Við eigum nú í samningum við Rússland, og þegar því er lýst yfir í Þjóðviljanum, að hér sé ríkisstj. vísvitandi að setja upp herstöð gegn Rússlandi, þá spillir það beinlínis þeim möguleikum, sem fyrir hendi eru um viðskiptasamband við Rússa. Og ég lít þannig á, að þegar slík frásögn kemur fram, alveg úr lausu lofti gripin, þá sé ástæða til, að hv. Alþ. sem og allur almenningur fái vitneskju um hið rétta samhengi málsins. Hv. 2. þm. Reykv. taldi ástæðu til að ræða hér ummæli, sem ranglega voru höfð eftir hæstv. forsrh. En hversu líklegri er ekki þessi grein til þess að hafa skaðsamleg áhrif fyrir Ísland en hinn rangi fréttaburður, sem hv. 2. þm. Reykv. fann ástæðu til að gera að umtalsefni? Þessar fullyrðingar eru hættulegar fyrir afstöðu Íslands út á við auk þess, sem þær eru, eins og nú standa sakir, beinlínis lagaðar til að spilla fyrir viðskiptasamningum okkar. Það er því fullkomin ástæða til að ræða þetta og láta hið sanna koma í ljós. Það var ekkert athugavert, ef hv. 2. þm. Reykv. hefði í utanrmn. eða hér á Alþingi reynt að grennslast eftir hinu rétta samhengi málsins. Ef tregða hefði þá orðið á upplýsingum, þá var ástæða til getsaka. En hitt, að koma með svona geipilegar fullyrðingar án þess að kynna sér málið, það eru fáheyrð vinnubrögð og vafalaust í illu skyni gerð.

Hæstv. menntmrh. hefur svarað fyrirspurn hv. 2. þm. Reykv. og gert grein fyrir sambandi Olíufélagsins við Standard Oil. Ég hef hér hluthafaskrána, og má hv. þm. Reykv. líta á hana. Það eru í þessu félagi samvinnufélög, olíusamlög útgerðarmanna og nokkrir einstaklingar. (ÁkJ: Megum við heyra nöfnin?) Það er sjálfsagt. Skráin er svo hljóðandi:

Samband ísl. Samvinnufélaga

kr.

240000,00

Kaupfélag Eyfirðinga

—

195000,00

Kaupfélag Ísfirðinga

—

50000,00

Olíusamlag Keflavíkur

—

90000,00

Samvinnufél. útgerðarm. á Norðf.

—

45000,00

Olíusamlag Vestmannaeyja

—

90000,00

Togarafélagið Helgafell h/f

—

95000,00

Ástþór Matthíasson Vestme.

—

5000,00

Elías Þorsteinsson

—

5000,00

Karvel Ögmundsson

—

5000,00

Kjartan Guðmundsson Ve.

—

5000,00

Skúli Thorarensen Rv.

—

5000,00

Halldór Jónsson

—

5000,00

Jakob Frímannsson

—

5000,00

Egill Thorarensen

—

5000,00

Vilhjálmur Þór

—

5000,00

Kristján Kristjánsson

—

15000,00

Bifreiðastöð Akureyrar h/f

—

10000,00

B. S. A. Verkstæði

—

5000,00

Helgi Benediktsson Ve.

—

5000,04

Þessi skýrsla sannar glögglega, að það er rétt, að úrslitayfirráðin eru hjá S. Í. S. og K. E. A. og nokkrum olíusamlögum útgerðarmanna, og án þess að ég sé sérstakur vinur eða talsmaður S. Í. S., þá finnst mér heldur óeðlilegt að leita til svo víðtækra samtaka um leppmennsku fyrir Bandaríkin, samtaka, sem Kron stendur að með hv. 6. þm. Reykv. í broddi fylkingar.

Varðandi stærð geymanna virðist mér, að þeir muni taka 70–80 þús. tonn. 8 þeirra eru logsoðnir og 34 skrúfaðir. Ég hef hér sundurliðun um það, hvernig geymarnir skuli notaðir, og ég hef enn fremur bent á, að það er aðeins einn annar aðili en Olíufélagið, sem óskað hefur eftir geymsluplássi í Hvalfirði, en það er Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda, sem hefur viljað áskilja sér 30 þús. tonn af geymslurúminu. Það kemur fram í skýrslu Olíufélagsins, að það telur þessa áætlun nokkuð freklega, en þetta voru óskir botnvörpuskipaeigenda. Það er ekki á mínu færi eða manna yfirleitt að gera sér fulla grein fyrir, hve þörfin verður mikil, og því er gert ráð fyrir, að endurskoðun fari fram eftir þrjú ár. Það má minna á, að þegar Shell byggði geymana í Skerjafirði, ætluðu ýmsir að ærast yfir þeirri hættu, sem sjálfstæði landsins væri þar með sett í. Þessir menn töldu, að geymarnir nægðu fyrir allan brezka sjóherinn, og eigendur þeirra áttu að vera leppar Breta. Reynslan sýndi, að geymarnir voru allt of litlir, og stöðin er nú úrelt fyrir íslenzkar þarfir.

Hv. 2. þm. Reykv. hélt því fram, að með vinsamlegu samstarfi íslenzkra og amerískra félaga væri hægt að láta líta svo út, að þörfin væri meiri en hún væri í raun og veru. Um þetta segir í bréfi ráðuneytisins, dags. 31. marz 1947, með leyfi hæstv. forseta : „Um þann hluta stöðvarinnar, sem ráðgert er að selja Olíufélaginu h/f, skal þó tekið fram, að geymarnir eru seldir til eðlilegs rekstrar félagsins og til niðurrifs að öðru leyti, og hefur ríkisstj. heimild til þess að þrem árum liðnum að krefjast þess, að stöðinni verði komið í það horf, sem samsvarar þeim rekstri, er reynslan hefur sýnt að þörf er á. Þennan fyrirvara verður að gera á fullnægjandi hátt, þegar salan fer fram.“ Þarna er beinlínis talað um eðlilegan rekstur félagsins á stöðinni, og það er á valdi ríkisstj. að segja til um, hvað sé eðlilegur rekstur, og ef ósamkomulag yrði, þá mundi það koma til endanlegs úrskurðar dómstólanna, og er því tortryggni í þessum efnum ástæðulaus, einkum þegar Olíufélagið er þannig byggt upp, að þar getur ekki verið um leppmennsku að ræða.

Þá talaði 2. þm. Reykv. um það, hvert verðmæti væri í geymunum. Fyrst mun hafa verið talað um, að þeir væru 1 milljón dollara virði, síðar var rætt um 6 milljónir, en loks voru þeir seldir fyrir 2 milljónir. Hvort það er óeðlilegt verð eða ekki, má deila um, en þó ber þess að gæta, að þessir geymar eru ekki heppilegir, nema hægt sé að nota þá þar á staðnum. Margir aðilar hafa athugað þessa tanka og allir verið sammála um það, að þeir séu lítils virði til niðurrifs. Hitt, að Bandaríkin hafi gert einhverjar kröfur í sambandi við þessi kaup, er fjarstæða, og þessi sala miðast við fullkomlega eðlilegar ástæður, en verðmunurinn stafar af því, að verðmætin reyndust allt önnur en fyrst var ætlað. Ég bjóst við fyrirspurn um þetta, enda er síður en svo, að ég hafi nokkuð við það að athuga, en vegna þeirrar tortryggni, sem gætt hefur í þessu máli, hef ég gætt þess vandlega, að ekki væri hægt að finna á því réttmætan höggstað. Það verður því að finna að því, sem Þjóðviljinn gerir, þar sem hann ekki einungis notar þetta sem árás á ríkisstj., heldur líka til þess að spilla fyrir eðlilegum viðskiptum þjóðarinnar.

Einar Olgeirsson: Hæstv. utanrh. vill halda því fram, að þau orð, sem stóðu um þetta mál í Þjóðviljanum, hafi verið til þess að spilla fyrir utanríkisviðskiptum við Sovétríkin, og er með áminningar í því sambandi. En ég held, að hann hefði átt að líta sér nær og gefa fyrst sessunaut sínum áminningu, því að enginn hefur eins greinilega reynt að spilla fyrir utanríkisviðskiptum okkar eins og forsrh., sem hefur leyft sér að láta það í ljós við sænska blaðamenn, að við hefðum orðið að veita Bandaríkjunum herstöðvar, því að annars hefðu Rússar heimtað þær. Og svo greinilega hafði forsrh. gert þetta, að blaðamaðurinn frá blaðinu, sem vinveittast er forsrh., Morgentidningen, reyndi ekki að breiða yfir þessa skoðun ráðh. Þegar ég svo fer að ræða þetta hér á Alþ., þá neitar ráðh. að hafa sagt þetta, en neitun hans er ekki sterkari en það, að þegar ég krefst þess, að hann „dementeri“ og það erlendis, þá lætur hann nægja að mótmæla með viðtali í Alþýðublaðinu. Ef slík framkoma er ekki beinlínis tilraun til þess að spilla fyrir samningum við aðrar þjóðir, þá veit ég ekki, hvernig það er hægt. Ég býst við, að núverandi ríkisstj. verði oft í vandræðum, ef þessar tvær línur í Þjóðviljanum marka afstöðu hennar út á við, enda er forsrh. hræddur, en hann er ekki hræddur við þessar tvær línur í Þjóðviljanum, því að hann veit, að ummæli eins blaðs, sem auk þess er í stjórnarandstöðu, setja ekki Sovétríkin á annan endann. Allt öðru máli gegnir um það, sem forsrh. lætur hafa eftir sér. Þess vegna geta ummæli forsrh. haft mikil og ill áhrif fyrir viðskipti okkar við aðrar þjóðir og miklu alvarlegri afleiðingar en tvær línur í Þjóðviljanum. Hæstv. dómsmrh. hefði því átt að líta sér nær með sínar föðurlegu áminningar. Þær hefðu betur átt við sessunaut hans, hæstv. forsrh.

En ef við ræðum áfram um það, sem blöðin hafa sagt, þá langar mig að spyrja, hvað líði 40 millj. kr. boðinu í þessa umræddu tanka, sem Morgunblaðið gat um á sínum tíma, og hvaðan það tilboð var. Viðvíkjandi því sem ráðh. upplýsti, að tankarnir tækju 70 til 80 þús. tonn, þá er neyzla togara á einu ári, ef hann kaupir alla olíuna hér heima, ríflega áætluð með 2 þús. tonnum. Það gera því 60 þús. tonn í allt. Nú veit ég ekki um verðlag hér, en venjulega er olía ódýrari erlendis og þess vegna alltaf óhætt að gera ráð fyrir, að helmingur olíunnar sé keyptur erlendis af togurunum sjálfum. Það er því ekki nema um 30 þús. tonna neyzlu að ræða. Þess vegna eru geymarnir óeðlilega stórir fyrir okkar þörf. Það má náttúrlega segja, að það sé praktiskt að taka stóra slumpa af svona vöru, en borgar sig þá að láta þessa stóru slumpa liggja. Til þess þarf að minnsta kosti mjög mikið kapítal, sem þjóð okkar hefur ekki of mikið af til þess, sem nauðsynlegt er að gera. Það má segja, að það sé hægt að taka í taumana eftir þrjú ár, ef geymarnir reynast of stórir fyrir þörf okkar, en þá geta viðkomandi aðilar komið með alls konar mótbárur, sem verða ekki niður kveðnar.

Menntmrh. þykir það furðulegt, að nokkur skuli láta sér detta í hug, að þau samlög og félög, sem standa að Olíufélaginu h/f, muni ljá sig til nokkurs, sem verði okkur til tjóns. Ég skal viðurkenna, að það mun vera andstætt vilja slíkra samlaga. En nú eru tíu hluthafar í þessum félagsskap, og það má ekki kjósa aðra en þessa tíu hluthafa í stjórn. Eða má kannske kjósa hvern sem er í stjórn? Ég er hræddur um, að það megi ekki k jósa nema persónulega hluthafa, og með allri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum, þá er ekki víst, að ætlun samlaganna, sem hluti eiga í þessu félagi, ráði alltaf því, sem þessir hluthafar gera. Frá sjónarmiði auðhringanna er það hámark „diplomati“ að tryggja sér völd í gegnum umboð annarra félaga. Það er langt frá því, að ég haldi því fram, að þetta erlenda fyrirtæki muni nota þessa aðstöðu sína nú, þvert á móti mun það að líkindum láta okkur sæta góðum kjörum, jafnvel þó að það tapi á því, til þess að skapa sér sterka pólitíska aðstöðu og vinsældir. Vegna höfuðtilgangs Standard Oil getur slíkt verið mjög sniðugt, því að auðvitað er aðalatriðið, að geymarnir standi áfram. Þessar aths. menntmrh. eru því úr lausu lofti gripnar. Það eðlilega og sjálfsagða var og er, að þessir geymar séu rifnir niður eða að minnsta kosti sá hluti þeirra, sem við alls ekki höfum not fyrir.

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) : Herra forseti. Það var mjög eðlilegt, að 2. þm. Reykv. í rökþrotum sínum út af sölu olíutankanna í Hvalfirði reyndi að leita liðsauka annars staðar. En það, sem fyrir honum varð, voru nokkur miður vönduð erlend blaðaummæli, en sum þeirra blaða hefur hann áður lýst óð og ómerk fyrir nazistaáróður. Þegar ég svo hef gefið yfirlýsingu, sem gengur í öfuga átt við þann óvandaða málflutning, sem þar er rekinn, virðir þessi þm. þá yfirlýsingu mína að vettugi, en reynir að vekja tortryggni í sambandi við þennan óvandaða fréttaflutning þessara blaða, sem hann þó áður hefur lýst ómerk. Hv. 2. þm. Reykv. vildi halda því fram, að þessi ómerki fréttaflutningur mundi vera hættulegur fyrir okkur gagnvart erlendum ríkjum. Og hann og félagar hans halda því fram, að það, sem þessir erlendu blaðamenn hafa eftir mér ranglega, hafi þeir samt sem áður haft rétt eftir mér. Ef nokkuð væri hættulegt gagnvart viðskiptum okkar við erlend ríki, þá væri það þessi afstaða hv. 2. þm. Reykv. og félaga hans og flokksbræðra, því að það má segja það um þessa flokksbræður og félaga hv. 2. þm. Reykv., að þeir sjái ekki eins og menn, heldur blindist þeir í ofsa sínum og — ja — ég vil segja hatri, bæði gagnvart núverandi ríkisstj. og þó einkum einstökum mönnum í henni sérstaklega, því að með því að rita á, þennan hátt, eins þeir nú rita í Þjóðviljanum svo að segja daglega, þá væri það vissulega til þess að spilla milli Íslands og Rússlands, ef því væri ekki mótmælt af ábyrgum íslenzkum blöðum og ábyrgum íslenzkum aðilum.

Hæstv. utanrh. minntist á það, að greinin, sem birtist í Þjóðviljanum í morgun, gæti verið hættuleg, ef hún væri tekin alvarlega, og líka, að sum ummæli í Þjóðviljanum út af frásögn sænskra blaða, gætu verið hættuleg, ef þau væru tekin alvarlega. Og þó að þessir sænsku blaðamenn hafi verið miður vandaðir, þá eru kollegar þeirra á Íslandi miklu óvandaðri. Nú er jafnvel svo langt gengið í þessu blaði, að því er haldið fram, að ég hafi sagt í viðtali við sænska blaðamenn, að flugvöllurinn í Keflavík væri upplögð stöð til þess að eyðileggja bæði Sovétríkin og England. En þetta voru hugleiðingar hins „góða nazista“, eins og til orða er tekið í Þjóðviljanum, sem skrifaði í sænskt blað umrædda grein, sem ritstjórarnir íslenzku eru nú að eigna mér, þ. e. ummælin, þó að hann taki skýrt fram sjálfur, að þetta séu hans eigin hugleiðingar. Ef nú þetta, sem Þjóðviljinn sagði um þetta atriði í gær eða fyrradag, væri tekið trúanlegt, að ég hefði sagt, að flugvöllurinn í Keflavík væri upplagður til þess og þá væntanlega til þess byggður að nota hann, þegar til þess kæmi, til þess að eyðileggja atvinnukerfi Bretlands og Sovét-Rússlands, þá mætti nú segja, að þar væri haldið fram dálítið hættulegum hlut, sem gæti verið hættulegur bæði viðskiptum okkar við Sovétríkin og England. En blað hv. 2. þm. Reykv. hikaði ekki við í sinni hatrömmu árás að ganga lengra en hinn „góði nazisti“ í Svíþjóð, þótt óvandaður væri, í því að eigna mér ummæli, sem ég aldrei nokkru sinni hef talað. Maður gæti ályktað og manni þyrfti ekki að koma það á óvart, að til væru óvandaðir blaðamenn í Svíþjóð, þegar maður þreifar á því daglega og les í Þjóðviljanum, að það er notað hvert einasta tækifæri til þess að tortryggja Ísland sem ríki og íslenzk stjórnarvöld og hið íslenzka Alþ. á þann hátt að reyna að koma því að, að við höfum gengið í þjónustu erlends stórveldis gegn öðru stórveldi. Ef slíkum fullyrðingum væri trúað, sem væru í Þjóðviljanum, væri það vissulega hættulegt fyrir viðskipti okkar, m. a. við Sovét-Rússland. En ég vil ganga út frá því, að umboðsmenn Sovét-Rússlands muni ekki mikið upp úr því leggja, sem í Þjóðviljanum stendur um þetta, því að það er nauðsynlegt, að þessir umboðsmenn liti réttilega á þessi skrif í Þjóðviljanum, ef þau eiga ekki að vera hættuleg afstöðu okkar gagnvart Sovét-Rússlandi. Ég verð að segja það, að með því áframhaldi, sem er í Þjóðviljanum til þess að reyna að koma því inn, bæði í Íslendinga og jafnvel erlenda menn, að íslenzka ríkisstj., bæði fyrrv. og núverandi, og íslenzka löggjafarþingið geri yfirleitt allt, sem þessir aðilar geti, til þess að aðstoða ákveðið stórveldi til árása á annað stórveldi, þá geta þær blekkingar orðið hættulegar, ef á þær er lagður nokkur trúnaður. En ég hygg, að það muni nú vera svo, að menn að gefnu tilefni verði varfærnir að trúa þessu. Ágætt dæmi um ábyggileik þessara frásagna í Þjóðviljanum er einmitt Þjóðviljinn í dag, samanborinn við þá skýrslu og skýringar og frásögn, sem hæstv. utanrh. hefur komið með hér á þingi, því að af þeirri skýrslu, sem styðst við skjöl og skilríki, má sjá, að allar ásakanir Þjóðviljans í dag eru annaðhvort vísvitandi rangar eða þá byggðar á svo mikilli fljótfærni og svo miklu fleipri, að þær eru alveg ósæmilegar.

Ég mun á þessu stigi málsins ekki sjá ástæðu til að hafa þessi orð mín fleiri. Ég geri ráð fyrir því, að við og við gefist tilefni hér á Alþ. og á annan hátt til þess að afhjúpa þær rangfærslur, sem fram eru bornar af flokki hv. 2. þm. Reykv., sérstaklega varðandi afstöðu íslenzka ríkisins út á við. Það má margt segja um afstöðu til málefna inn á við og er ekki svo alvarlegt, og það er ekki mjög óeðlilegt, þó að um þau sé deilt. En einhver ofurlítill snefill af ábyrgðartilfinningu ætti að vera til hjá manni eins og hv. 2. þm. Reykv., sem gjarnan hefði viljað vera utanrh. í dag, ef hann hefði átt sér þess nokkurn kost. (EOl: Ég hef aldrei sótzt eftir því.) Hann auglýsti sig, að því er sagt var, sem utanrh. í norsku blaði.

Ég held þess vegna, að ef hv. 2. þm. Reykv. og sálufélagar hans vilja leita sér skjóls og styrks meðal þeirra manna, sem þeir stimpla sem „góða nazista“, þeirra manna, sem staðnir eru að því að fara með rangt mál, þá sé þeim það velkomið — og verði þeim að góðu.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) : Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykv. sagði hér áðan, að það væri alls ekki meiningin að veitast neitt að félögum, sem stæðu að kaupum á olíugeymum í Hvalfirði — öðru nær. En hvað liggur fyrir í blaði þessa hv. þm.? Þar er því dróttað að nýja olíufélaginu og þeim samtökum, sem reka þetta olíufélag, að þau séu búin að setja á stórt leppfyrirtæki fyrir bandarískt hervald og ætli sér að skjóta lokum frá hurðum Íslendinga í þessum efnum, hvenær sem hinu bandaríska hervaldi þykir við þurfa. Þetta er efnið í aðdróttunum Þjóðviljans, og þó að hv. 2. þm. Reykv. hafi verið hikandi við þetta mál hér, þá hefur hann verið með sífelldar dylgjur í sömu átt. Hann hefur því tekið undir þetta, þegar lögð eru saman þau ummæli, sem hann hefur hér haft í dag.

Nú er það svo með þessi félagasamtök, að þeir, sem fara með umboð nýja olíufélagsins, eru kjörnir af forráðamönnum Sambands íslenzkra samvinnufélaga og forráðamönnum olíusamlags útgerðarmanna og bera ábyrgð á gerðum sínum gagnvart S. Í. S., sem er einhver fjölmennustu félagssamtök landsins, og gagnvart olíusamlagi útvegsmanna. Og hvernig er hægt að tryggja betur heilbrigðan rekstur í öllu tilliti heldur en með því, að þeir, sem hafa hann með höndum, beri ábyrgð gagnvart slíkum félagasamtökum? Það er þýðingarlaust fyrir hv. 2. þm. Reykv. að ætla að reyna að komast nú undan því, að að þessum félagsskap hefur verið dróttað landráðabrigzlum í blaði hans. Það er alvarlegasti hluturinn, sem í þessu efni hefur átt sér stað, og. það getur verið, að hv. 2. þm. Reykv. og hans flokkur sé ekki alveg búinn að bíta úr nálinni út af þessu. Það kynnu að vera ýmsir hér í þeim félagsskap, sem ekki þykir það neitt sérlega vel við eigandi, að slíku sé dróttað að þeim félagsskap, sem þeir hafa áhuga á, og þeir taki upp þykkjuna, þegar þannig er á málum haldið.

Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að það væri sjálfsagt að greiða fyrir því, að þetta nýja olíufélag fengi að byggja nýja tanka. En má ég spyrja: Sér ekki hv. 2. þm. Reykv. það, sem allir aðrir sjá, að ef fyrir þessum olíusamtökum standa einhverjir voðamenn, sem jafnvel hafi nú þegar gert þá hluti, sem hann dylgjar um, þá væru þeir reiðubúnir til að gera þá, þó að ekki væri nákvæmlega á sama hátt, því að þeir hefðust þetta sennilegast alveg eins að, þó að þeir fengju enga stóra tanka fyrir olíu. Ég lagði áherzlu á þetta áðan, og þessu hefur hv. 2. þm. Reykv. engu svarað. Og er ekki fyrir hendi alveg sama hætta á, að því væri til að dreifa, sem hv. 2. þm. Reykv. dylgjar um, þó að aðrir aðilar fengju leyfi til að byggja olíugeyma? Ef þessi hugsanagangur hv. 2. þm. Reykv. ætti nokkurn rétt á sér, að tankar þessir yrðu teknir og misnotaðir af herstjórn Bandaríkjanna, þá gætu þeir líka orðið teknir til þess, þótt þeir væru ekki í Hvalfirði. Ef nokkur heil brú væri í þessum hugsanagangi hv. 2. þm. Reykv., þá ætti að setja l. um að banna, að nokkur mannvirki væru reist í Hvalfirði. En það hefur þessi hv. þm. ekki flutt frv. um. Eftir því sem þetta mál er betur rætt, sést betur, hvert frumhlaup hér er um að ræða af hendi Þjóðviljans og hv. 2. þm. Reykv., enda er ekki stuðzt við annað en dylgjur og getsakir í þessu efni. Hefur það og fullkomlega verið upplýst, sérstaklega af hæstv. utanrh., hvernig málið er vaxið, þannig að allir, sem ekki láta stjórnast af blindu hatri eða fordómum, hljóta að sjá, að hér er vel haldið á málum. Því að hvaða vit hefði verið í því að meina þessu nýmyndaða olíufélagi að kaupa þessa stöð, þegar það var eina leiðin til þess, að þetta félag gæti samið við erlend olíufélög? Og hvaða vit var í því að rífa svo tankana niður? Það var ekkert vit í því. Það hefði verið gagnstætt hagsmunum landsins, og það lá ekki við, að slíkar ráðstafanir hefðu bjargað landinu úr nokkurri hættu, því að ef Bandaríkin eða aðrar stórþjóðir fara á næstu áratugum að vaða inn í lönd annarra þjóða og taka þar aðstöðu fyrir heri sína og hernaðarframkvæmdir, þá geta þær tekið þá aðstöðu, hvar sem hana er að finna í hlutaðeigandi landi, enda er nú hv. 2. þm. Reykv. kominn það langt í þessu, að hann er hættur að halda fram, að það hefði átt að rífa geymana í Hvalfirði niður strax. Í síðustu ræðu sinni sagði hann, að það hefði ekki verið aðalatriðið, heldur að koma tryggilega fyrir forráðum geymanna. Nú er að mínu áliti yfirumsjón þessara geyma alveg eins vel komin í höndum þessa félagsskapar eins og þótt ríkið hefði haft með umsjón þeirra að gera.

Loks vil ég segja það, að það er engu líkara en að hv. þm. Sósfl. eða Sósfl. sé að gera ýtarlegar tilraunir til að spilla sambúð Íslendinga og Rússa með dylgjum sínum og rógi um afstöðu þeirra manna og þeirra flokka, sem nú ráða málum hér í landi. T. d. þegar sænsku blaðamennirnir fóru skakkt með ummæli hæstv. forsrh., þá var það vitanlega skylda allra ábyrgra íslenzkra blaða að hjálpa til að leiðrétta þessa missögn, þegar upplýst var, að rangt hafði verið sagt frá því, sem hæstv. forsrh. hafði talað, og það hafa líka öll önnur blöð í landinu, sem ræða slík mál, gert, nema blað Sósfl. En þó að hæstv. forsrh. hafi upplýst hvað eftir annað, að þetta væri rangt eftir sér haft, er þó haldið áfram í blaði Sósfl., Þjóðviljanum, að gera hæstv. forsrh. upp orðin, eins og þessi erlendi blaðamaður gerði, og gengið þó feti lengra. Hver óspilltur blaðamaður finnur, að þegar skakkt er haft eftir hæstv. forsrh. og hann upplýsir það rétta, þá er öllum skylt að hafa þann hátt á að hjálpa hæstv. forsrh. til þess að koma leiðréttingunni fram í íslenzkum blöðum, og síðan kemur hún fram á erlendum vettvangi, eins og ég geri ráð fyrir, að hæstv. forsrh. hafi gert ráðstafanir til. En blað hv. 2. þm. Reykv. hefur farið öfugt að. Það reynir aftur og aftur að fá menn til að trúa því, að hæstv. forsrh. ljúgi, en sænski blaðamaðurinn segi satt. Það er það, sem hv. 2. þm. Reykv. og hans blað telur, að þjóni bezt íslenzkum hagsmunum í þessu máli, og þessir menn gera það vegna þess, að þeir vilja endilega láta líta svo út út í frá, að þeir, sem nú stjórna á Íslandi, séu leppar erlends ríkis. Þeir telja það í beztu samræmi við hagsmuni okkar, bæði í sambandi við samningana við Rússa og það að halda uppi áliti íslenzku þjóðarinnar, að halda þessu fram, og vinna það til til þess að reyna að rótfesta þessa skoðun að halda því fram dag eftir dag, að íslenzki forsrh. hafi sagt ósatt, en hinn sænski blaðamaður satt, sem sagt, að íslenzki forsrh. sé lygari, sem ekki sé mark á takandi. Svona langt er ekki hægt að ganga, nema með því að verða sér til skammar fyrir það, vegna þess að það eru viss takmörk í þessum efnum, sem menn mega ekki fara út fyrir. Við getum rifizt hér heima og borið hver annan brigzlum út af hreinum innanríkismálum. En við ættum að reyna að sýna þann manndóm að standa saman út á við og gera ekki þjóðina að viðundri út á við, eins og hv. 2. þm. Reykv. hefur staðið fyrir í blaði sínu, bæði í sambandi við mál það, sem hér hefur verið rætt, og líka í sambandi við það frumhlaup, sem sænska blaðamanninum varð á að taka. Það er verið að reyna að láta rússnesku þjóðirnar standa í þeirri meiningu, að þessari ráðstöfun, að selja olíugeymana í Hvalfirði þessu olíufélagi, sé beint gegn Rússum, og það er ekki annað að sjá en að þessi rógur, sem í raun og veru er gegn íslenzkum hagsmunum, sé rekinn á skipulagðan hátt af Sósfl. og forráðamönnum hans. Það getur verið, að þeim verði ágengt í því að spilla fyrir hagsmunum Íslands með því að þjóna lund sinni með þessum rangfærslum sínum. En þeim hefur verið bent á það, hvað eftir annað, hvað af þessu getur leitt. Og ekki veldur sá, er varar.

Áki Jakobsson: Herra forseti. Hæstv. menntmrh. talaði um það í lok ræðu sinnar, að við Íslendingar ættum að standa saman út á við, þó að við rifumst innbyrðis um innanríkismál. Þetta er rétt. Þetta væri ágæt regla, ef hægt væri að hafa hana. En hæstv. núverandi menntmrh. var einn af þátttakendum í því að draga lokur frá hjá okkar íslenzku þjóð og opna dyr fyrir erlendri ásælni á síðasta hausti. Hann var þar einn af þeim 32, sem þá opnuðu landið fyrir erlendri ásælni.

Það er nú hlaupið hér upp til handa og fóta af hæstv. ríkisstj. og talað um, að það sé verið að skaða hagsmuni Íslands með fleipri. Svo skaðleg sem orð eru í þessum efnum, þá eru þó athafnirnar hættulegastar. Það þýðir ekkert fyrir þessa menn, hæstv. ríkisstj., að ætla að bera það á borð fyrir Íslendinga í því skyni að geta losnað þannig við opinberar umr. um athafnir þeirra í opinberum málum, að það sé hættulegt þjóðinni, að henni sé sagður sannleikurinn. Þeir hafa sagt: Keflavíkursamningurinn gefur ekki rétt, sem jafnast á við herstöðvar. En þetta er ekki nema fyrirsláttur. Hvaða blað frá Ameríku sem maður grípur niður í og um þetta ræðir, telur þetta herstöðvar. Getur það verið, að þeir, sem í þau blöð skrifa, geti gert íslenzku þjóðinni óskunda með þeim skrifum?

Varðandi Hvalfjörð stakk það mig sérstaklega, þegar hæstv. dómsmrh. talaði um, að þrír aðilar hefðu haft áhuga fyrir kaupum á eignum í Hvalfirði, nefnilega Olíufélagið h/f, Félag íslenzkra botnvörpuskipaeigenda og hvalveiðahlutafélagið Hvalur, að hæstv. ráðh. gleymdi fjórða aðilanum, sem áhuga hafði á að fá þessar eignir keyptar, og það var Bandaríkjastjórn, sem var sá fyrsti umsækjandi. Hæstv. utanrh. minntist ekkert á það. En sökum þess að Bandaríkjastjórn hefur farið fram á það — það er opinberlega vitað um allan heim, að hún hefur farið fram á það —, þá þarf íslenzka ríkisstj. að taka á þessu með sérstakri varkárni. Sem sagt, málið byrjar þannig, að Bandaríkjastjórn fer fram á það að fá Hvalfjörðinn sem flotastöð fyrir sig, og það þýðir ekkert fyrir hæstv. menntmrh. að tala um það, að Bandaríkjastjórn geti tekið olíustöðvar hvar sem er á landinu. Það vita allir, að Hvalfjörðurinn er nefndur öðrum stöðum fremur hér á landi í þessu sambandi, af því að hann er skipalægi, og það er ekki nema útúrsnúningur, sem hæstv. menntmrh. ber fyrir sig í þessu efni. Frá hendi Bandaríkjastjórnar var stöðugt ríkjandi mikill áhugi fyrir því að fá flotastöð í Hvalfirði, og það er ekki vafi á því, að Bandaríkjastjórn var ekki af baki dottin með það að reyna að komast að sama marki, þó að það væri eftir annarri leið. Þess vegna var um að gera að vera sérstaklega á verði. — Nú skeður það, að Olíufélagið h/f, sem er umboðsmaður fyrir Standard Oil, þó að það sé alveg með íslenzkum hluthöfum, það sækist eftir að fá þessa stöð. En það var tekið fram af hæstv. menntmrh., að þetta olíufélag hefði ekki ætlað sér upphaflega endilega að vera umboðsmaður eða umboðsfélag fyrir Standard Oil til þess að fá þessa stöð í Hvalfirði. Það væri fróðlegt að fá upplýst, hvort það var jafnsnemma, sem það ætlaði að vera umboðsfélag fyrir Standard Oil og það einnig fékk áhuga fyrir Hvalfirði. En hvað sem því líður, þá er það staðreynd, að þetta félag sækist mjög eftir að fá þessa olíustöð, og það er látið hafa þessa stöð fyrir skömmu. Skömmu eftir að einn af æðstu embættismönnum Bandaríkjastjórnar er búinn að dveljast hér á landi, þá er þetta félag látið fá þessa stöð með þeim einkennilega hætti, að í næstu þrjú ár eigi íslenzka ríkisstj. ekki að staðreyna, hvort þessir tankar í Hvalfirðinum séu í samræmi við olíubirgðir þessa félags, sem kaupir þá. Ég sé ekki annað en það sé eðlilegt, að þm. séu tortryggnir á svona hluti. Allt þetta tal um hlutafélagið og það sé trygging fyrir, að þar séu ekki leppar fyrir aðila í Ameríku, er mesta fásinna, eftir að sannað er, að í svo að segja hverju hlutafélagi er það einn eða örfáir menn, sem ráða öllu í félaginu, en alls ekki hluthafarnir. Það eru þeir, sem hafa aðstöðu til að hafa yfirráð yfir hlutabréfunum, sem ráða þar. Þarna eru ekki nema tíu menn, sem eru persónulegir hluthafar. Ég veit, að í sumum félögum er það svo, að enginn fær að kjósa í stjórn nema hann sé persónulegur hluthafi. Það er álíka félagsskapur og hæstv. forsrh. kannaðist við og keypti Iðnó á sínum tíma, áður en Alþfl. tapaði, af því að Dagsbrún, þótt það sé hluthafi, getur ekki stillt upp til stjórnarkosningar, af því að enginn þar er persónulegur hluthafi. Er þannig ástatt með þetta hlutafélag, að stjórnin sé einungis kosin af persónulegum hluthöfum? Ef það er, þá er hrein fjarstæða að nefna hluthafa eins og S. Í. S. og útvegsmannafélögin. Þá hafa þau ekkert þar að segja, geta engin áhrif haft á stjórnarkosninguna.

Við skulum segja, að það sé of mikil illgirni að ætla hverjum af þessum mönnum, sem ráða í félaginu, að þeir séu amerískir leppar, en mönnum er ekki láandi, þó að þeir hafi misjafnar skoðanir um þessa menn eins og aðra, en við skulum sleppa því í bili. Aðalatriðið er, að hæstv. ríkisstj. bar skylda til að halda svo á málunum, að það væri ekki undir neinum persónum komið, hvort einhverjum vissum persónum tækist að vera leppar fyrir Ameríku eða ekki. Ef hæstv. stjórn hefði talið nauðsynlegt að nota tankana, án þess að af því gæti hlotizt, að önnur þjóð blandaðist inn í hagsmuni Íslands, þá átti hún að hafa þarna fullan ráðstöfunar- og eftirlitsrétt. En nú er þetta selt, og vitanlega er fjárhæðin svo lág, að hún skiptir engu máli. Hún tekur fram við þann, sem kaupir, að hún muni staðreyna að þremur árum liðnum, hvort félagið þurfi til rekstrar síns eins mikla tanka og þarna eru. Þetta er ámælisvert, og hæstv. stjórn getur ekki komizt hjá að sæta áminningu fyrir. Þetta hefur skaðað hagsmuni Íslendinga miklu meira en jafnvel þau orð, sem hæstv. forsrh. hefur gloprað út úr sér í góðu skapi við nokkra blaðamenn.

Ég vil að lokum beina þeirri fyrirspurn til hæstv. dómsmrh., hvort hann sjái sér ekki fært að birta öll skjöl varðandi þessi mál, þar á meðal samninginn við Olíufélagið um þetta frá orði til orðs, það bréf, sem hann las kafla úr, og enn fremur ýmis atriði, sem skipta máli og sýna, hvernig þetta olíufélag er saman sett, því að um leið og búið er að selja félaginu svona hluti, þá á almenningur á Íslandi og jafnvel víðar mikið undir, hvernig stöðinni er stjórnað og hvernig hún er notuð, en það er með svona möguleikum, að kannske einn maður getur með árangri verið leppur fyrir Bandaríkin til að leppa herstöð í Hvalfirði.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) : Ræða hv. þm. Siglf. sannar, hvaðan sú rödd er runnin, sem birzt hefur í Þjóðviljanum um þetta mál. Honum rann blóðið meir til skyldunnar en hv. 2. þm. Reykv., og getur það gefið skýringu á þessu máli.

Varðandi það, að félaginu hafi verið fengin heimild til að ráðstafa þessum eignum þrjú ár, en ríkisstj. hafi enga heimild til að skipta sér þar af, þá er það algerlega ósatt. Það stendur í samningnum, að eignirnar séu seldar til eðlilegs rekstrar og stjórnin hafi heimild til að fylgjast með þessum rekstri. Og þar til viðbótar kemur það, að ríkisstj. hafi heimild til að þremur árum liðnum að sannprófa, hvort reksturinn sé kominn í það horf, að félagið hafi þörf fyrir allar þessar eignir.

Varðandi það, að ég hafi gleymt áhuga Bandaríkjanna fyrir Hvalfirði, vil ég taka fram, að eftir að ég kom í þetta embætti, hafa Bandaríkin engan áhuga haft fyrir þessu máli. Það var fyrrverandi forsrh., Ólafur Thors, sem fékk Bandaríkin til að falla frá þeim óskum, sem þau höfðu flutt fram í þessu efni. Ásakanir hv. þm. Siglf. um, að ég hafi gleymt Bandaríkjamönnum og áhuga þeirra fyrir stöðinni í Hvalfirði, eru því alveg út í bláinn og styðjast ekki við neitt atriði þessa máls, því að Bandaríkjamenn hafa engan áhuga sýnt fyrir þessu máli, hvorki Bandaríkjastjórn eða einstakir menn.

En þar sem hv. þm. var að biðja um, að öll skjöl málsins yrðu birt, þá hef ég lesið það upp, sem mestu máli skiptir, og lýst yfir, að hv. þm. megi skoða þau, eins og þá lystir. Ég hef lesið upp bréf, sem segir fyrir um söluna, ekki part af því, eins og hv. þm. segir, heldur allt. Ég hef lesið upp alla hluthafaskrá þessa félags, og er þar ekkert að dyl ja. Samt heldur hv. þm. því fram, að þessum gögnum sé enn leynt, þó að þau hafi verið lesin upp fyrir þingheimi.

Að lokum vil ég segja það, að menn kann að furða mjög á því, að þessar árásir koma nú fram og inn í þær blandað mörgu öðru, svo sem afurðasölu landsmanna, og af hverju hv. þm. Siglf., fyrrv. hæstv. atvmrh., hefur staðið hér upp og flutt þann róg, sem hér á sér stað. Skýringin er ákaflega einföld. Því miður hafa verzlunarsamningarnir austur í Moskvu gengið miklu verr en vonir manna stóðu til og miklu verr en hv. þm. Siglf. hafði reynt að telja þjóðinni trú um. Samningarnir hafa gengið á þann veg, að það er ekki hægt að segja, að þeir horfi vel fyrir Ísland, eins og sakir standa. Við skulum vona, að úr þessu rætist. Ég skal ekki fara um það fleiri orðum, en allt, sem hv. þm. Siglf. hafði sagt um sölumöguleika þar austur frá, hefur reynzt vera staðlausir stafir, sem ekki hafa við neitt að styðjast. Þessi hv. þm. er þess vegna nú vísvitandi og vitandi um það blaður, sem hann hefur gert sig sekan um, að reyna að koma því fram, að það sé íslenzku ríkisstj. að kenna og athöfnum hennar, ef þessir samningar takast verr en skyldi. En hv. þm. skal ekki takast það, gögnin liggja of skýrt fyrir til þess.

Einar Olgeirsson: Mér virðist, að þessi síðustu orð hæstv. dómsmrh. gefi til kynna, hvernig á því stendur, að hæstv. ríkisstj. er svona viðkvæm út af yfirlýsingu hæstv. forsrh. Hæstv. dómsmrh. upplýsir, að samningarnir í Moskvu hafi ekki gengið vænlega, og samtímis skýra blöð út um allan heim frá því, að hæstv. forsrh. Íslands hafi sagt við sænska blaðamenn, að Íslendingar hafi neyðzt til að láta Bandaríkjamenn setja hér flugstöðvar, af því að annars hefðu Rússar komið hingað. Í því blaði, sem hæstv. ráðh. segir, að sé áreiðanlegasta blaðið, og hann segir, að fari rétt með, standa þessi orð, að ef Íslendingar hefðu ekki látið Bandaríkjunum í té flugvelli á Íslandi, þá hefðu Rússar „anlangt en linja hit“. Þetta eru þau orð, sem hæstv. forsrh. segir rétt eftir sér höfð. Ójá. Sænski blaðamaðurinn reynir að túlka orð hæstv. forsrh. eins vel og vingjarnlega og honum er frekast unnt. En hvaðan stafa þessi orð? Nú hefur hæstv. forsrh. lýst yfir, að þetta sé ósatt, en hins vegar undirstrikað, að Morgentidningen hafi sagt satt. En hann hefur ekki fengizt til að gefa yfirlýsingu um, að þessi áreiðanlegi fréttamaður hafi minnzt á þetta líka. En hvernig stendur á því, að hæstv. forsrh. hefur ekki fundið ástæðu til að mótmæla? Hæstv. forsrh. er sannur að því að hafa logið upp á Sósfl. (Forseti hringir: Fyrir þessi orð er þm. víttur.) í sambandi við sænsku blaðamennina, en ekki fengizt til að „dementera“ þessi ummæli út um heim. Nú höfum við fengið góðar sannanir í þessu máli, þegar hæstv. ríkisstj. upplýsir, að samningarnir þar eystra hafi gengið illa, þá vill hún reyna að finna átyllu til að kenna öðrum aðilum um, að þeir hafi spillt fyrir, að samningar gætu tekizt, en það er hún sjálf, sem með framkomu sinni hefur hagað sér þannig, að ekki er við því að búast, að hægt sé að fá góða samninga.

Í öðru lagi vil ég segja út af ræðu hæstv. forsrh., að það kemur úr hörðustu átt, þegar hæstv. ráðh. er að vanda um við blaðamenn, sem ræða um stjórnmál. Hann sagði, að menn ættu þar að gæta að sér, ef þeir hefðu einhvern snefil af ábyrgðartilfinningu. En hvað segir hæstv. ráðh. sjálfur? Hann og hans flokksbræður segja, að við séum í Þjóðviljanum að spilla fyrir, að samningar náist við Sovétríkin. Ég verð að segja, að svona menn eru furðulegir. Hæstv. forsrh. er sér þess meðvitandi, að það er hann, sem hefur orðið til að spilla fyrir þessum samningum, hvort sem það er vísvitandi eða ekki, enda er vitað, að hann og hans flokkur eru því mótfallnir, að samningar takist við Sovétríkin. Þess vegna held ég, að hæstv. forsrh. farist manna sízt að tala um, að menn verði að vera vandir að blaðamennsku.

Og svo að síðustu var hæstv. forsrh. að tala um, að menn ættu að vanda framkomu sína út á við — eftir þann feril, sem hann hefur sjálfur að baki sér. Honum finnst undarlegt, að til skuli vera íslenzkir stjórnmálamenn, sem halda fram, að það sé skaðlegt fyrir landið, að menn eins og hæstv. forsrh. geti setið í slíku embætti og spillt fyrir landinu á þann hátt, sem hann hefur gert. Hæstv. menntmrh. minntist á, að hæstv. forsrh. hefði gert ráðstafanir til, að þessi ummæli væru „dementeruð“ erlendis. Fram að þessu hefur hæstv. forsrh. neitað að gera slíkt, en það væri æskilegt, að hann gerði það, því að það er betra fyrir íslenzku þjóðina, að hæstv. forsrh. sé lýstur ómerkur að orðum út á við en að þetta standi ómótmælt erlendis og sé tekið sem sannleikur.

Ég vil vísa þeim orðum hæstv. ráðh., þegar hann var að tala um það í vandlætingartón, að ég væri að spilla fyrir hagsmunum landsins, heim til föðurhúsanna. Það er fyrst og fremst hann með sínum ummælum og framkomu, sem hefur gert ítrekaðar tilraunir til að spilla fyrir þeim samningum, sem Íslendingar leggja svo mikla áherzlu á, að geti gengið. Ég ætla engu að svara dylgjum hans, að ég hafi upplýst mig fyrir norskum blöðum sem væntanlegan ráðh. Þetta blað, sem þarna er um að ræða, sagði frá því daginn áður en ég kom, að ég mundi kannske verða ráðh. En í viðtali, sem ég átti við blaðið, skýrði ég frá, að það kæmi ekki fyrir, og gerði ráðstafanir til, að ég væri ekki titlaður þannig ranglega. Hæstv. ráðh. talaði síðan langt mál um, að ég hefði titlað mig þannig fyrir erlendum blöðum. Þetta sýnir, hvað það er lítilfjörlegt, sem reynt er að grípa til af hæstv. forsrh.

Að öðru leyti eigum við vafalaust eftir að ræða um Hvalfjarðarstöðina. Þau sterku orð, sem um það hafa verið höfð, að Íslendingar eigi að vera þar alls ráðandi, mættu gjarnan verða veruleiki. Ég er hins vegar hræddur um, að ekki fari ósvipað um það og þau sterku orð, sem voru látin falla um flugvöllinn í Keflavík. Reynslan, sem um hann er fengin, bendir ekki til þess, að þau sterku orð, sem um það voru höfð, að Íslendingar ættu þar öllu að ráða, verði sönn.

Samgmrh. (Emil Jónsson) : Það er aðeins að gefnu tilefni frá hv. 2. þm. Reykv., af því að hæstv. forsrh. er ekki viðstaddur, en af því að fundartími er löngu liðinn, skal ég aðeins láta nægja að minnast á eitt atriði af því, sem þessi hv. þm. sagði hér. Hv. þm. sagði, að Alþfl. hefði alltaf verið á móti, að nokkrir samningar væru gerðir við Rússa, og sagðist vita, að hæstv. forsrh. hefði beitt sér fyrir, að þeir tækjust ekki. Ég lýsi þetta vísvitandi ósannindi hjá hv. þm. Ég veit, að Alþfl. hefur aldrei beitt sér á móti því, að þessir samningar væru gerðir. Ég hef beitt mér gegn því, að Rússar væru einu viðskiptamenn Íslendinga, og það er annað. Það hefur ævinlega verið ósk Alþfl. að hafa vinsamleg skipti við Rússa eins og aðra. Þetta er óvandaður málflutningur, en þó ekki óvandaðri en annar málflutningur sósíalista um þessi mál fyrr og síðar. Þessu vildi ég ekki láta ómótmælt.

Forseti (BG) : Þá er þessum umr. hætt í bili.

dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) : Herra forseti. Í tilefni af því, að í grein í Þjóðviljanum þann 19. febr. s. l. eru bornar fram ásakanir gagnvart ríkisstj. út af því, að samninganefnd skuli ekki hafa verið send til Tékkóslóvakíu jafnhliða því, sem sendar hafa verið samninganefndir til þess að semja um sölu íslenzkra sjávarafurða til Sovétríkjanna og Englands, skal þetta tekið fram:

Á fundi utanrmn. hinn 10. þessa mán., þar sem rætt var um þessar sendinefndir, spurði, samkvæmt fundargerðinni, Einar Olgeirsson á þessa leið: „Ég vil leyfa mér að spyrjast fyrir um það, hvort þessi samninganefnd eigi einnig að fjalla um samninga við Tékkóslóvakíu.“ Þessu svaraði ég á þessa leið: „Út af fyrirspurn um samningana við Tékka vil ég geta þess, að núgildandi viðskiptasamningur rennur út um mánaðamótin. Hefur verið ráðgert, að sendiherra, Pétur Benediktsson, komi við í Praha á leiðinni austur eða hafi samband við stjórnina til bráðabirgða, en endanlegir samningar yrðu ekki gerðir, fyrr en sýnt er, hvernig fer með hina stærri samninga. Þetta sýndist ekkert óskynsamlegt, ef tékkneska stjórnin féllist á það. Ef ekki er gerð aths. við þetta, mun sendiherrann, sem nú er í Róm, hafa samband við stjórnina í Praha og leita eftir samkomulagi um þetta.“ — Hvorki Einar Olgeirsson né neinn annar fundarmanna gerði neina aths. við þetta, og tóku þó ýmsir síðar til máls, þar á meðal Brynjólfur Bjarnason, fyrrv. ráðherra. Samkvæmt þessu varð ekki litið öðruvísi á en svo, að allir utanrmnm. og aðrir þeir, sem staddir voru á þessum fundi, væru ríkisstj. sammála um, að þessi háttur á samningagerðinni við Tékka væri eðlilegur. Í samræmi við það var svo Pétri Benediktssyni þegar sama dag símað og hann beðinn um að hafa samband við stjórnina í Praha til að koma þessu fram. Mun sendiherrann að sjálfsögðu gera það á þann veg, sem hann telur vænlegastan, en hann er þessa dagana að ljúka samningagerðum við stjórnina í Róm fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar.

Ég taldi rétt, að þetta kæmi fram, að sá háttur, sem hafður var um þessa samningagerð, var ákveðinn með vitund og ég vil segja beinu samþykki utanrmn. allrar og reyndar einnig þeirra manna, sem áttu að fjalla um samninga við hinar þjóðirnar, sem ég nefndi. — Er því ekki ástæða til að sakast neitt sérstaklega við neinn yfir þeim hætti, sem upp hefur verið tekin í þessu efni.

menntmrh. (Eysteinn Jónsson) : Ég hef séð það í blöðunum, að í fyrradag hefur það verið tekið fram hér á Alþ., að ég hafi vikið frá embætti Sigurði Péturssyni gerlafræðingi. Hér hlýtur að vera um einhvern meiri háttar misgáning að ræða, sem mér er áhugamál, að verði leiðréttur. Vil ég því leyfa mér að gefa þinginu skýrslu um það, sem gerzt hefur í þessum mjólkurmálum, og sérstaklega þá, hvernig málavextir eru.

Sigurður Pétursson er skipaður starfsmaður atvinnudeildar háskólans og heldur því starfi áfram. Það er byggt á fullkomnum misskilningi, að honum hafi verið vikið úr því. Hann mun vinna þar framvegis sömu störf og áður, en það mun m. a. vera verkefni hans þar að rannsaka þau mjólkursýnishorn, sem þangað eru send. Jafnhliða aðalstarfi sínu í atvinnudeildinni hefur Sigurður annazt upptöku mjólkursýnishorna hér í bænum sem aukastarf. Þegar ég tók við starfi heilbrmrh., hafði verið gefin út ný heilbrigðisreglugerð, þar sem ákveðið var, að héraðslæknar önnuðust þetta verkefni. Enn fremur var ákveðið í reglugerðinni, að ráðh. skipaði eftirlitsmann, er væri heilbrigðisyfirvöldunum til aðstoðar á þessu sviði, bæði hér í Reykjavík og úti á landi. Mér bárust tilmæli frá ýmsum aðilum, m. a. Húsmæðrafélagi Reykjavíkur, að láta þetta ekki verða aukastarf, þar sem hér væri um svo mikið verkefni að ræða, og féllst ég á þá skoðun. Í samræmi við það réð ég Þórhall Halldórsson mjólkurfræðing til að taka þetta starf að sér, en honum barzt tilboð um annað starf, sem hann kaus heldur. Réð ég þá Edvard Friðriksson mjólkurfræðing til að gegna þessu starfi.

Aukastarf Sigurðar Péturssonar féll raunverulega niður með setningu nýju reglugerðarinnar, þar sem héraðslæknum var falin upptaka sýnishorna af mjólk. Hins vegar mun Sigurður halda áfram aðalstarfi sínu, sem er m. a. efnagreining mjólkursýnishornanna. Með hinni nýju skipan er ráðgert að auka og fullkomna mjólkureftirlitið, þar sem yfirumsjón samkv. hinni nýju reglugerð er falin manni, sem rækir það sem aðalstarf.

Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, en vildi aðeins upplýsa þetta, til þess að menn standi ekki í þeirri meiningu, að hér hafi eitthvað sérstakt gerzt, eins og það væri, ef embættismanni hefði verið vikið frá starfi fyrirvaralaust.

forseti (JPálm) : Svo sem Alþingi er kunnugt, stendur í dag þinghátíð Finna, í minningu þess, að 40 ár eru liðin frá því að finnska þingið var gert að einni málstofu. Hafa forsetar af því tilefni sent ríkisþinginu málverk eftir Ásgrím Jónsson og jafnframt svo hljóðandi ávarp:

Finnland og Ísland skilja fjöll og lönd og mikil höf. Þó hafa finnska þjóðin og hin íslenzka um langan aldur vitað vel hvor til annarrar. Þegar í hinum elztu sögum Íslendinga er þess víða getið, að Finnland byggi harðfeng þjóð, sem varði land aitt af hreysti og ættjarðarást.

Finnar og Íslendingar eiga það sameiginlegt að vera útverðir norrænna þjóða og norrrænnar menningar, Finnar í austri, Íslendingar í vestri, og eiga þar báðar þjóðir mikilsverðu hlutverki að gegna. Þá er norrænar þjóðir finnast allar og talaðar eru þrjár þjóðtungur Norðurlanda, á og hvor þessara tveggja þjóða sína sérstöðu og séreign, Íslendingar sína fornu tungu, Finnar hina finnsku tungu. Báðar hafa þessar þjóðir löngum orðið að reyna erfið kjör og þurft vel að gæta frelsis síns og þjóðernis. Vér ætlum, að Finnum hafi vel að haldi komið að sínu leyti sú arfleifð norrænnar menningar, sem Íslendingar geymdu Norðurlandaþjóðum, og á Íslandi eru nokkur hinna mestu skálda Finnlands hverju barni kunn af þýðingum íslenzkra skálda. Og svo sem Finnar vita vel, að bókmenntir Íslendinga og forn menning varð þeim jafnan hið sterkasta vopn í baráttu sinni til sjálfstæðis og velgengni, svo vitum vér og Íslendingar, hver arfur yður Finnum var gefinn í fornum menntum og hinum dýrustu ljóðum, sem enginn kann að greina höfund að. Þau ljóð hefur þjóðin öll átt og ódauðleg gert sem snaran þátt menningar sinnar og tilveru, eins og var um Eddukvæði og hinar fornu sögur Íslendinga úti á Íslandi.

Hin síðari ár hafa tekizt meiri kynni en fyrr með Finnum og Íslendingum. Þjóðirnar hafa átt viðskipti saman, báðum til hagræðis. Hvor þjóðin um sig hefur kynnzt nýrri menningu hinnar, og Íslendingar hafa ekki miður en aðrir undrazt afrek hinnar finnsku þjóðar í listum og skáldskap, í hagnýtum verkum, og svo þar sem íþrótt eða atgervi skyldi þreyta.

Þjóðþing yðar Finna fékk á örlagatímum þá skipan, sem nú er. Það var þá endurvakið í nýrri mynd, af djörfum hug, af miklu frjálslyndi og víðsýni, til þess að verða brjóstvörn fyrir frelsi þjóðarinnar, framtíð hennar, menningu og velferð.

Þér Finnar gerið nú hátíðlega fjörutíu ára minningu þessa atburðar. Alþingi Íslendinga og alþjóð manna á Íslandi færir þjóðþingi Finna og finnsku þjóðinni hinar beztu árnaðaróskir og bróðurkveðjur á þessari þjóðarhátíð. Megi heill og hamingja fylgja þjóðþingi Finnlands og friður og blessun hinni finnsku þjóð. Megi yður Finnum auðnast að standa frjálsir og sterkir í bræðrafylkingu hinna norrænu þjóða í baráttunni fyrir betra heimi, fyrir frelsi og mannhelgi með öllum þjóðum.

Alþingi Íslendinga

Jón Pálmason

forseti sameinaðs Alþingis

Þorsteinn Þorsteinsson

forseti efri deildar

Barði Guðmundsson

forseti neðri deildar

forseti (JPálm) : Mér hefur borizt bréf frá utanrmn., sem ég hef látið þýða á íslenzku. Bréf þetta hljóðar þannig á íslenzku :

„Orðsending ítalska stjórnlagaþingsins til löggjafarþinga sameinuðu þjóðanna.

Ítalska stjórnlagaþingið hefur falið mér að koma til löggjafarþinga allra sameinuðu þjóðanna málaleitun, sem skýrir hug og óskir allrar þjóðarinnar um að milda þegar ströngustu skilmála friðarsamnings vors og þá einkum, að komizt verði hjá landaafsali, sem er svo mikið áfall fyrir þjóðarmetnað vorn, niðurlægingu þeirri, sem ítalski landherinn, flotinn og flugherinn, sem börðust hraustlega við hlið bandamanna, hafa orðið að þola, og loks, að ekki verði framfylgt fjárhagskvöðum og viðskipta, sem þjóð, er hefur orðið fyrir eyðileggingum styrjaldar og er nú að leitast við að rétta við, getur ekki risið undir.

Löggjafarsamkoman fer enn fremur fram á, að viðurkennd verði sú grundvallarregla, að unnt sé að endurskoða friðarsamning vorn með friðsamlegum gagnkvæmum samningum milli þeirra landa, er hagsmuna hafa að gæta, og innan vébanda sameinuðu þjóðanna, og lætur í ljós þá trú, að löggjafarþing þeirra þjóða, sem þátt tóku í styrjöld fyrir frelsi og réttlæti, muni taka til íhugunar þessa málaleitun ítölsku þjóðarinnar og gefa henni betra tækifæri til að festa í sessi nýja lýðveldið og lýðræðisskipulagið með þjóðfélagslegu öryggi og árangursríku starfi.

Undirskrift:

Terracini

forseti ítalska stjórnlagaþingsins.“

Þessir voru ráðnir lausir starfsmenn þingsins:

Skrifstofan og prófarkalestur.

Sigríður Bjarklind, Snæbjörn Jóhannsson, Halla Briem. — 25. okt. var ráðin til aðstoðar við vélritun: Unnur Árnadóttir.

Skjalavarzla og afgreiðsla.

Andrés Eyjólfsson.

Lestrarsalsgæzla.

Pétrína Jónsdóttir, Guðrún Egilson.

Innanþingsskrifarar. Ólafur Tryggvason (verkstjóri skrifara), Helgi Tryggvason, Haraldur Matthíasson, Ólafur Siggeirsson, Róbert Bjarnason, Auðbjörg Tryggvadóttir, Björn Svanbergsson, Ólafur Jónsson, Sigfríður Bjarnar, Emil Björnsson, Rannveig Þorsteinsdóttir, Már Jóhannsson, Þórir Daníelsson, Gísli Jónsson, Björn Baldursson, Halldór Ó. Jónsson. — 29. okt. var ráðin Þórunn Bjarnadóttir (í stað Más Jóh.) og 16. maí Þuríður Kristjánsdóttir (í stað Halld. Ó. Jónss.).

Dyra- og pallavarzla.

Jakob Jónsson (yfirvörður), Ólafur Þorvaldsson, Sigvaldi Indriðason, Guðmundur Davíðsson, Einar Blandon, Jón Hjartarson, Páll Stefánsson, Þórður Jónsson, Einar Ólafsson.

Þingsveinastörf. Gunnar Helgi Valdimarsson, Bragi Leópoldsson, Tryggvi Hjörvar, Stefán Kristjánsson. — Síðar voru ráðnir til lengri eða skemmri tíma: 2. nóv. Sveinn Bergmann Þórðarson, 10. jan. Páll Jónsson og Sigurður Karlsson, 5. febr. Val-Gard Jörgensen, 14. maí Sveinn Aron Bjarklind, 22. maí Sveinn Þórarinsson.

Símavarzla. Ingibjörg Pétursdóttir, Halldóra B. Björnsson, Þorlákur Haldorsen.

Fatagæzla. Vigdís Torfadóttir, Kristín Ingileifsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir.

Þingfréttamaður í útvarpi. Helgi Hjörvar.

forseti (JPálm) : Verkefni þessa fundar er það eitt að lýsa yfir frestun á fundum Alþ. Það er komið að jólum, og mun nú hefjast þinghlé til 7. janúar.

Vil ég því leyfa mér að árna hv. þm. gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þakklæti fyrir hið liðna, og utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.

Eysteinn Jónsson: Ég vil leyfa mér — og tala ég þar í nafni alls þingheims — að þakka hæstv. forseta fyrir hans hlýju óskir og árna honum gleðilegra jóla og góðrar heimferðar. Vil ég biðja hv. þm. um að taka undir þessa ósk með því að risa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]

Forseti (JPálm) : Ég þakka hv. 1. þm. S-M. hans góðu óskir og öllum hv. þm. fyrir að hafa tekið undir þær. Ég vona, að við hittumst allir heilir þann 7. janúar næstkomandi að afloknu þessu jólafríi.

forseti (JPálm) : Þingstörf hefjast nú að nýju, og vil ég bjóða hv. þingmenn velkomna til starfs og óska þeim og starfsmönnum öllum gleði og farsældar á þessu nýja ári og þakka góða samvinnu á liðna árinu.

forseti (GÞ) : Síðan síðasta fundi var slitið, hef ég fengið allörugga vissu fyrir því, að til d. muni ekki koma fleiri mál, og þess vegna sé ég ekki ástæðu til að halda hv. dm. hér tilbúnum til fundarstarfa, en vil hins vegar taka fram, að ef breyting kynni að verða gerð á máli í Ed., sem ætti að afgreiða sem lög, gæti orðið að setja fund á ný í fyrramálið. Ég tek því 3. málið út af dagskrá.

Þetta er þá síðasti fundur í þessari deild. Ég er hér í sporum 1. forseta d., en hann er, eins og kunnugt er, fulltrúi Alþingis á þinghátíðinni í Helsingfors. Ég vil fyrir hans hönd og einnig fyrir mína þakka þm. fyrir góða samvinnu, lipurð og þolinmæði. Hvítasunnuhelgin fer nú í hönd, og ég óska öllum þm. gleðilegrar hátíðar og að þeir muni allir koma heilir heim til ástvina sinna og annarra vina. Og ég vil vona, að þm. muni á hausti komanda, þegar þingið kemur saman á ný, allir hittast endurnærðir á sál og líkama af geislum sumarsólarinnar.

Sigfús Sigurhjartarson: Herra forseti. Ég vlldi aðeins þakka forseta fyrir góða og röggsama fundarstjórn og ráðdeild í þessu starfi og biðja hann að bera fjarverandi forseta d. kveðju með þakklæti fyrir starf hans. — [Deildarmenn tóku undir með því að rísa úr sætum.)

Forseti (GÞ) : Ég þakka innilega fyrir, og mun ég skila kveðjunni. Segi ég svo fundi slitið.

forseti (ÞÞ) : Nú mun vera komið hér að fundalokum. Þetta mun vera síðasti fundur, sem haldinn verður í þessari d. Um leið og ég þakka dm. ágætt samstarf á þessu lengsta þingi, sem haldið hefur verið, þakka ég þeim þolinmæði við fundarstjórn mína, ef einhverju hefur verið ábótavant.

Ég óska utanbæjarþm. góðrar heimkomu og öllum þm. og fjölskyldum þeirra allrar ánægju á þessu sumri. — Hittumst allir heilir aftur.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) : Ég ætla, að ég muni mæla fyrir hönd dm., er ég þakka forseta fyrir góða og röggsama fundarstjórn á þessu þingi og sömuleiðis fyrir góðar óskir hans í garð okkar, sem hér eigum sæti, og um leið óska ég þess, að hæstv. forseti megi heill heim koma og heill aftur koma til þings, og óska ég honum og fjölskyldu hans alls hins bezta á þessu sumri og gleðilegrar hátíðar. — [ Dm. tóku undir með því að rísa úr sætum. ]

Forseti (ÞÞ) : Ég þakka góðar óskir til mín og segi fundi slitið.

forseti (JPálm) : Ég mun nú samkvæmt venju lesa yfirlit um störf þingsins:

Þingið hefur staðið frá 10. okt. 1946 til 24. maí 1947, eða alls 227 daga.

Þ i n g f u n d i r hafa verið haldnir:

Í

neðri deild

145

-

efri deild

147

-

sameinuðu þingi

61

Alls

353

þingfundir.

Þ i n g m á l og úrslit þeirra :

I. Lagafrumvörp:

1.

Stjórnarfrumvörp:

a.

Lögð fyrir neðri deild

17

b.

— — efri deild

8

c.

— — sameinað þing

2

27

2.

Þingmannafrumvörp:

a.

Borin fram í neðri deild

106

b.

— — — efri deild

35

141

168

Þar af

a.

Afgreidd sem lög:

Stjórnarfrumvörp

26

Þingmannafrumvörp

69

alls

95

lög

b.

Felld :

Þingmannafrumvörp

4

c.

Afgr. með rökst. dagskrá:

Þingmannafrumvörp

9

d.

Vísað til ríkisstj.:

Þingmannafrumvörp

2

e.

Ekki útrædd :

Stjórnarfrumvarp

1

Þingmannafrumvörp

57

168

II. Þingsályktunartillögur:

Allar bornar fram í sameinuðu þingi

85

Þar af :

a.

Ályktanir Alþingis

21

b.

Felldar

1

c.

Afgr. með rökst. dagskrá

1

d.

Ekki útræddar .

62

85

III. Fyrirspurnir :

a.

Bornar fram í neðri deild

8

b.

— — — efri deild

4

12

Þar

af :

a.

Svarað

2

b.

Ekki svarað

10

12

Mál til meðferðar í þinginu alls 265

Tala prentaðra þingskjala alls 1034.

Háttvirtu alþingismenn. — Það Alþingi, sem nú er að enda, er lengsta samfellt þing, sem nokkru sinni hefur verið haldið hér. Höfuðorsök þessa er sú, að fyrrv. hæstv. ríkisstj. sagði af sér á síðasta hausti og ekki tókst að mynda nýja ríkisstj., fyrr en komið var fram í febrúar. Þetta hafði í för með sér langa vafninga og síðan nýjan og margbreytilegan stjórnarsamning um afgreiðslu þjóðmálanna. Sá samningur kostaði síðan eftir valdatöku núv. hæstv. ríkisstj. tímafrekan undirbúning nýrrar löggjafar á ýmsum sviðum og síðan langan tíma til afgreiðslna, eins og venja er til, þegar ný stjórnarstefna er upp tekin. Allt þetta hefur kostað fast að því hálfu lengri þingtíma en þarf að vera, þegar engin stjórnarkreppa er, á meðan Alþingi situr.

Á þinginu hefur verið afgreiddur fjöldi nýrra laga og breyt. á eldri löggjöf, svo sem þegar hefur verið fram talið. Aðalmál þessa þings, sem annarra aðalþinga, voru fjárlögin, og reyndist afgreiðsla þeirra tafsöm og örðug af áður töldum orsökum. Þau eru líka hin langhæstu, sem nokkru sinni hafa verið afgreidd. Veldur því einkum þrennt: Í fyrsta lagi fjárfrek umbótalöggjöf frá síðustu þingum. Í öðru lagi það, að nú eru 35 millj. kr. ætlaðar til dýrtíðarráðstafana, og er það miklu hærri upphæð en nokkru sinni fyrr. Í þriðja lagi er svo það, að hærri fjárframlög en áður eru ætluð til ýmissa framkvæmda og ráðstafana. Þess vegna varð svo þingið að afgreiða mjög verulega hækkun á tollum og fleiri tekjum, sem ríkinu eru ætlaðar.

Af öðrum áhrifamiklum lögum, sem þingið hefur afgreitt, má einkum nefna þessi:

1. Lög um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit.

2. Lög um eignakönnun.

3. Lög um Ræktunarsjóð Íslands.

4. Lög um eftirlit með skipum.

5. Lög um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o. fl.

6. Lög um varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma og útrýmingu þeirra.

7. Lög um aðstoð til vatnsveitna.

8. Lög um fiskimálasjóð.

Öll þessi lög hafa kostað mikið starf og víðtæka samninga, sem langan tíma hefur þurft til. Eru þó hér eigi talin nema fáein helztu lögin, sem þingið hefur afgr. Hefur, eins og að líkum lætur, verið um mörg þessi lög mikill ágreiningur, en hitt er víst, að öll sú löggjöf, sem þingið hefur afgr., mun marka djúp spor í atvinnu- og framkvæmdalífi þjóðarinnar á næsta tímabili. Vil ég óska, að svo mikil gæfa hljótist af störfum þessa Alþingis, sem þeir menn gera ráð fyrir, sem bjartsýnastir eru á þau.

Nú þegar þessu langa þingi lýkur, fer hátíð í hönd, og vorsólin og vorylurinn lofar björtu sumri. Ég þakka hv. alþingismönnum og hæstv. ríkisstj. og öllu starfsfólki Alþ. góða og ánægjulega samvinnu við mig sem forseta. Ég óska öllum gleðilegrar hátíðar og gæfuríks sumars.

Öllum utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og lýsi þeirri von, að þm. hittist heilir, þegar haustar og Alþ. hefst að nýju.

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) : Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans til okkar þm. Ég vil þakka honum fyrir réttláta og ágæta fundarstjórn og hygg, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þm. Ég óska honum gleðilegrar hátíðar og árna honum og fjölskyldu hans allra heilla og bið hv. þm. að taka undir þær óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum sínum.]

Forseti (JPálm) : Ég þakka hæstv. ráðherra hlýleg orð í minn garð svo og undirtektir hv. þingmanna og endurtek árnaðaróskir mínar þeim til handa.

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) : Í ríkisráði í dag var gefið út svo hljóðandi bréf :

„Handhafar valds forseta Íslands (forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar) gera kunnugt:

Að vér veitum hér með forsætisráðherra, Stefáni Jóh. Stefánssyni, umboð til þess í voru nafni að slíta Alþingi, 66. löggjafarþingi, er það hefur lokið störfum.

Ritað í Reykjavík 24. dag maímánaðar 1947.

Stefán Jóh. Stefánsson, Jón Pálmason,

Jón Ásbjörnsson.“

Samkvæmt þessu umboði lýsi ég hér með yfir, að þessu 66. löggjafarþingi, sem nú hefur lokið störfum sínum, er slitið.

Um leið og ég óska hv. þingmönnum velfarnaðar, vil ég biðja þá að rísa úr sætum sínum og minnast fósturjarðarinnar.

Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra mælti: „Lifi Ísland.“

Tók þingheimur undir þau orð með ferföldu húrra hrópi.

Var síðan af þingi gengið.