23.05.1947
Neðri deild: 141. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2000 í B-deild Alþingistíðinda. (2586)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. Ég þakka ráðh. enn fyrir góðar upplýsingar. Það er þá vitað, að félagið Títan er enn starfandi og að það vantar ekki annað enn virkjunarleyfi í Þjórsá. Í því sambandi vil ég leyfa mér að óska þess, að ef til þess kemur, að Títan sæki um það leyfi, þá verði haldið betur á en verið hefur. Hér er erlendum aðilum veitt tækifæri til þess að rannsaka mesta orkuvatn landsins fyrirstöðulaust, og af því hlýtur að leiða, að knúið verður á um frekari ítök og aðgerðir, en þá verður að halda betur á málstað Íslands, ef ekki á illa að fara. Mér fyndist standa nær ríkisstj. að láta sjálf rannsaka íslenzku fallvötnin, þar sem stofnað hefur verið embætti í því skyni, þar sem er raforkumálastjóri, þó að til þess þyrfti að ráða erlenda verkfræðinga, heldur en segja já og amen, þegar erlendir auðhringar sækjast eftir að rannsaka íslenzku fallvötnin.