22.11.1946
Neðri deild: 22. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (2589)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ástæðan fyrir því, að ég tek nú til máls, er sú, að ég á hér á dagskrá tvær fyrirspurnir, sem lagðar voru fram fyrir mörgum vikum og hæstv. forseti hefur tekið af dagskrá dag eftir dag, án þess að sá ráðh., sem hlut á að máli, hafi verið viðstaddur til að svara þeim. — Út af þessu vil ég benda hæstv. forseta á, í hversu mikið óefni er komið þeim þætti þingstarfanna, að þm. eigi kost á að fá svarað þeim fyrirspurnum, er þeir bera fram, af hálfu viðkomandi ráðh. Þegar ég þekkti betur til þessara mála, var sá háttur við hafður, að viðkomandi ráðh. var skriflega tilkynnt um fyrirspurnir, er bornar voru fram til hans, og hann svaraði forseta síðan skriflega og tilgreindi, hvenær hann yrði reiðubúinn til þess að svara fyrirspurninni, þannig að forseti gæti þá sett fyrirspurnina á dagskrá í samræmi við það.

Vil ég nú eindregið beina því til forseta að reyna að fá þessu kippt í lag með því að leiða viðkomandi ráðh. það fyrir sjónir, að með þeirri aðferð að hrúga upp fyrirspurnum og láta þær liggja vikum saman og skeyta því engu, þótt þær séu settar á dagskrá, er þm. sýnd hin mesta fyrirlitning, en ég vil þó trúa því, að ef hæstv. forseti fengi hina starfsbræður sína hér — þ. e. hina forsetana — til þess að leiða ráðh. þetta fyrir sjónir, þá hlyti slíkt að bera árangur. Ég get hugsað mér, að hér sé fremur um að kenna áhugaleysi heldur en ásetningi, að þessi háttur hefur á orðið gegn virðingu þingsins, og vil því skora á hæstv. forseta að fá þessu máli kippt í lag með samstarfi við hina forseta Alþingis.