04.12.1946
Efri deild: 28. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (2592)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Af því að mér er kunnugt um, að í samgmn. Nd. hefur verið á ferð frv. um sama efni og sú n. stendur í nánu sambandi við vegamálastjóra um þær breyt., þá vil ég beina því til hv. form. samgmn. hér, að n. vilji báðar sameina sig um þessi mál, svo að það fari ekki tvöfaldur tími í þetta hjá vegamálastjóra, en ekki, eins og mér skildist á hv. form. hér, að ekkert sé farið að gera í málinu í þessari d., meðan hin d. er búin að sitja á mörgum fundum með vegamálastjóra til þess að heyra hans till. um málið.