05.02.1947
Sameinað þing: 25. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2014 í B-deild Alþingistíðinda. (2618)
Stjórnarskipti
Jónas Jónsson:
Það eru nú liðin liðlega tvö ár síðan ég flutti vantraust í þessum sal móti þeirri stjórn, sem þá var að taka við völdum. Það reyndist að vísu ekki mikill liðsstyrkur á móti, því að ég var einn á báti um það að halda því fram, að sú stjórn hefði ekki lífsmöguleika, eins og hún var mynduð. Nú eru liðin tvö ár, og þessi tvö ár hafa, því miður fyrir landið, en kannske því betur fyrir mig í ýmsum skilningi, sýnt, að ég hafði á réttu að standa. Það, sem ég benti þá á, hefur reynzt rétt, að stjórn, sem annars vegar er mynduð af rótum hins austræna valds, byltingavaldsins, en hins vegar af vestrænum, borgaralegum hugmyndum, hefði ekki lífsmöguleika. Og það er einmitt þetta, sem komið hefur fram og einkennt alla baráttu og viðleitni stjórnarinnar. Ég vil taka það fram, að þótt ég sé skoðanalega mjög mótfallinn Sameiningarflokki alþýðu og teldi það aðalástæðuna til að vara við stjórninni fyrir tveimum árum, þá er rétt að viðurkenna það, þótt þessi flokkur hafi ekki að líkindum meiri hæfileikamönnum á að skipa en aðrir flokkar, að hann hefur haft miklu meiri tækni og stuðzt þar við tækni síns alþjóðlega flokks, og hann hefur verið stefnufastari, af því að hann veit, hvað hann vill, þ. e. að breyta því skipulagi, sem hér hefur þróazt á vestræna vísu, í það horf, sem Rússar hafa tekið upp og nokkrar aðrar þjóðir. Það er óhjákvæmilegt að athuga það, um leið og hér er nú mynduð ný stjórn, að þessi flokkur hefur sýnt mikla lagni í tvö ár við að grafa undan okkar vestræna þjóðfélagi. Það þarf ekki annað en minna á það, sem flokkurinn byggði í 2 ár, og lokasteinninn í þeirri byggingu var það, að fyrir jólin samþ. allt Alþ. nema ég till. þess efnis, að ríkið keypti stærstu framleiðsluvöru landsmanna með miklu yfirverði, þótt nú hafi verið tekið fram af tveimur þm., og að því er virðist réttilega, að útlit sé fyrir betra verð á íslenzkum vörum en kannske nokkru sinni áður. Það er algerlega dæmalaust, að nokkur frjáls þjóð hafi gert þetta, að ríkið keypti aðalframleiðsluvöru sína til að selja með tapi, og það hefði áreiðanlega ekki komið til greina, ef sá flokkur, sem vill umbreyta þjóðskipulaginu, hefði ekki á mjög sniðugan hátt verið búinn að láta sér verða svo mikið ágengt sem reynslan sýnir. Ég vil því benda á það frammi fyrir þjóðinni og þinginu, ég vil benda ríkisstj, á, að fyrir henni liggi nú sá vandi að bæta og lækna á komandi árum mjög mikið af þeim stóru misfellum, sem Sóíalistaflokkurinn hefur komið til leiðar á þessum tveimur árum, bæði í andlegum málum og fjárhagsmálum.
Ég vil aðeins taka það fram hér, af því að hv. 2. þm. Reykv. minntist á bankavaldið, að þá er rétt, að menn viti það, að þessi flokkur sóttist eftir því allan þann tíma, sem verið var að leitast við að mynda ríkisstj., að leggja landsbankann að velli og taka af honum seðlana, sem allir þjóðbankar hafa, og taka af honum húsið. Þetta hefði samt sem áður verið mjög hyggileg aðgerð frá sjónarmiði þess flokks til að leysa upp þjóðskipulag okkar, og þess vegna kom það fram í ræðu hv. 2. þm. Reykv., að hann harmaði, að þetta skyldi ekki hafa tekizt.
Einn af þeim fáu mönnum í okkar samtíð, sem bæði var heimspekingur og stjórnmálamaður í Evrópu, Balfour lávarður, sagði: Þingræðisskipulagið gengur vel á meðan allir flokkar í þjóðfélaginu vilja hlýða reglum þess. Þetta er vitaskuld óhrekjandi sannleikur. Og ástæðan til þess, að svo illa hefur gengið að mynda hér þingræðisstjórn, er sú, að hér var kominn einn þingflokkur, óaðfinnanlegur að öðru leyti en sínum skoðunum, sem ekki vildi hlíta reglum parlamentarismans. Þess vegna er það, að þjóðin, hún þarf að skilja, að ástæðan til þess, að hér hefur ekki verið mynduð þingstjórn síðan 1942 nema með höppum og glöppum, er sú, að einn flokkur, ekki mjög stjór, en áhrifamikill á ýmsa lund, hefur eyðilagt allt þetta vitandi vits. Hið merkilega við þessa stjórnarmyndun nú, og kannske það eina merkilega, er það, að þjóðin hefur að mjög verulegu leyti breytt um stefnu, að miklu leyti undir áhrifum frá borgurum utan þings. Nú er reynt að mynda stjórn á þingræðisgrundvelli, þannig að nú styðja ekki aðrir flokkar stjórnina en þeir, sem viðurkenna leikreglur þingræðisskipulagsins. Og það, hver gæfa fylgir þessari stjórn, er fyrst og fremst komið undir því, hvort henni tekst, hvort flokkunum tekst, fullt svo mikið utan þings sem innan, að halda saman um það að standa á íslenzkum, þjóðlegum og vestrænum grundvelli.