21.04.1947
Sameinað þing: 44. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (2620)

Minning Kristjáns konungs tíunda

forseti (JPálm) :

Kristján hinn tíundi, konungur Dana, er látinn eftir 35 ára ríkisstjórn. Hann var jafnframt konungur Íslands, hinn síðasti konungur þess, frá 1912, er hann settist að völdum, til 1944, er íslenzka lýðveldið var stofnað, eða í 32 ár, þó að konungsvaldið væri ekki í hans höndum hin fjögur síðustu árin af þeim tíma, eins og alþjóð er kunnugt.

Þessi góði lýðstjórnarkonungur mun jafnan verða Íslendingum minnisstæður. — Undir stjórn hans fengum vér fullveldi landsins viðurkennt, og var þá Ísland sérstaklega tekið upp í heiti konungs. Á ríkisstjórnarárum hans hafa með vaxandi sjálfstrausti þjóðarinnar orðið hér meiri framfarir en á nokkru tímabili í sögu vorri. — Vér erum þess minnugir, að Kristján konungur lagði mikla rækt við Íslendinga, heimsótti landið fjórum sinnum, bar velvildarhug til lands og þjóðar og kynntist hér hverjum manni vel. Þó að skilnaður Íslendinga við Dani yrði, fyrir rás viðburðanna, með öðrum hætti en hann hefði kosið, þá sýndi hann þó á úrslitastundu með heillaskeyti sínu til Alþingis og íslenzku þjóðarinnar, á Þingvöllum 17. júní 1944, lýðræðishug sinn gagnvart einhuga vilja Íslendinga.

Kristján konungur tíundi var sá þjóðhöfðingi, sem dönsku þjóðinni hefur þótt vænst um og ógleymanlegur mun verða í sögu hennar, ekki sízt vegna karlmennsku þeirrar og staðfestu, sem hann sýndi í raunum þjóðarinnar á styrjaldarárunum.

Alþingi minnist hins látna konungs með virðingu og þökk og vottar vinum hans og dönsku þjóðinni innilega samúð. — (Stutt þögn var að lokinni ræðu forseta, og risu þingmenn úr sætum.]