14.03.1947
Neðri deild: 95. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (2623)

Slysfarir - minning

forseti (BG) :

Hörmulegt flugslys hefur orðið á Hvammsfirði, nálægt Búðardal, þar sem fjórir menn létu lífið, en þrír komust lífs af. Sú gæfa hefur fylgt flugferðum okkar, að aðeins einu sinni áður hefur flugvél hlekkzt svo á, að manntjón hefur af orðið. — Vil ég sérstaklega biðja hv. þingdeildarmenn að votta hinum látnu virðingu sína og ástvinum þeirra hluttekningu með því að rísa úr sætum. — (Dm. risu úr sætum.]