18.04.1947
Neðri deild: 116. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2036 í B-deild Alþingistíðinda. (2630)

Olíustöðin í Hvalfirði

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Herra forseti. Það var mjög eðlilegt, að 2. þm. Reykv. í rökþrotum sínum út af sölu olíutankanna í Hvalfirði reyndi að leita liðsauka annars staðar. En það, sem fyrir honum varð, voru nokkur miður vönduð erlend blaðaummæli, en sum þeirra blaða hefur hann áður lýst óð og ómerk fyrir nazistaáróður. Þegar ég svo hef gefið yfirlýsingu, sem gengur í öfuga átt við þann óvandaða málflutning, sem þar er rekinn, virðir þessi þm. þá yfirlýsingu mína að vettugi, en reynir að vekja tortryggni í sambandi við þennan óvandaða fréttaflutning þessara blaða, sem hann þó áður hefur lýst ómerk. Hv. 2. þm. Reykv. vildi halda því fram, að þessi ómerki fréttaflutningur mundi vera hættulegur fyrir okkur gagnvart erlendum ríkjum. Og hann og félagar hans halda því fram, að það, sem þessir erlendu blaðamenn hafa eftir mér ranglega, hafi þeir samt sem áður haft rétt eftir mér. Ef nokkuð væri hættulegt gagnvart viðskiptum okkar við erlend ríki, þá væri það þessi afstaða hv. 2. þm. Reykv. og félaga hans og flokksbræðra, því að það má segja það um þessa flokksbræður og félaga hv. 2. þm. Reykv., að þeir sjái ekki eins og menn, heldur blindist þeir í ofsa sínum og — ja — ég vil segja hatri, bæði gagnvart núverandi ríkisstj. og þó einkum einstökum mönnum í henni sérstaklega, því að með því að rita á, þennan hátt, eins þeir nú rita í Þjóðviljanum svo að segja daglega, þá væri það vissulega til þess að spilla milli Íslands og Rússlands, ef því væri ekki mótmælt af ábyrgum íslenzkum blöðum og ábyrgum íslenzkum aðilum.

Hæstv. utanrh. minntist á það, að greinin, sem birtist í Þjóðviljanum í morgun, gæti verið hættuleg, ef hún væri tekin alvarlega, og líka, að sum ummæli í Þjóðviljanum út af frásögn sænskra blaða, gætu verið hættuleg, ef þau væru tekin alvarlega. Og þó að þessir sænsku blaðamenn hafi verið miður vandaðir, þá eru kollegar þeirra á Íslandi miklu óvandaðri. Nú er jafnvel svo langt gengið í þessu blaði, að því er haldið fram, að ég hafi sagt í viðtali við sænska blaðamenn, að flugvöllurinn í Keflavík væri upplögð stöð til þess að eyðileggja bæði Sovétríkin og England. En þetta voru hugleiðingar hins „góða nazista“, eins og til orða er tekið í Þjóðviljanum, sem skrifaði í sænskt blað umrædda grein, sem ritstjórarnir íslenzku eru nú að eigna mér, þ. e. ummælin, þó að hann taki skýrt fram sjálfur, að þetta séu hans eigin hugleiðingar. Ef nú þetta, sem Þjóðviljinn sagði um þetta atriði í gær eða fyrradag, væri tekið trúanlegt, að ég hefði sagt, að flugvöllurinn í Keflavík væri upplagður til þess og þá væntanlega til þess byggður að nota hann, þegar til þess kæmi, til þess að eyðileggja atvinnukerfi Bretlands og Sovét-Rússlands, þá mætti nú segja, að þar væri haldið fram dálítið hættulegum hlut, sem gæti verið hættulegur bæði viðskiptum okkar við Sovétríkin og England. En blað hv. 2. þm. Reykv. hikaði ekki við í sinni hatrömmu árás að ganga lengra en hinn „góði nazisti“ í Svíþjóð, þótt óvandaður væri, í því að eigna mér ummæli, sem ég aldrei nokkru sinni hef talað. Maður gæti ályktað og manni þyrfti ekki að koma það á óvart, að til væru óvandaðir blaðamenn í Svíþjóð, þegar maður þreifar á því daglega og les í Þjóðviljanum, að það er notað hvert einasta tækifæri til þess að tortryggja Ísland sem ríki og íslenzk stjórnarvöld og hið íslenzka Alþ. á þann hátt að reyna að koma því að, að við höfum gengið í þjónustu erlends stórveldis gegn öðru stórveldi. Ef slíkum fullyrðingum væri trúað, sem væru í Þjóðviljanum, væri það vissulega hættulegt fyrir viðskipti okkar, m. a. við Sovét-Rússland. En ég vil ganga út frá því, að umboðsmenn Sovét-Rússlands muni ekki mikið upp úr því leggja, sem í Þjóðviljanum stendur um þetta, því að það er nauðsynlegt, að þessir umboðsmenn liti réttilega á þessi skrif í Þjóðviljanum, ef þau eiga ekki að vera hættuleg afstöðu okkar gagnvart Sovét-Rússlandi. Ég verð að segja það, að með því áframhaldi, sem er í Þjóðviljanum til þess að reyna að koma því inn, bæði í Íslendinga og jafnvel erlenda menn, að íslenzka ríkisstj., bæði fyrrv. og núverandi, og íslenzka löggjafarþingið geri yfirleitt allt, sem þessir aðilar geti, til þess að aðstoða ákveðið stórveldi til árása á annað stórveldi, þá geta þær blekkingar orðið hættulegar, ef á þær er lagður nokkur trúnaður. En ég hygg, að það muni nú vera svo, að menn að gefnu tilefni verði varfærnir að trúa þessu. Ágætt dæmi um ábyggileik þessara frásagna í Þjóðviljanum er einmitt Þjóðviljinn í dag, samanborinn við þá skýrslu og skýringar og frásögn, sem hæstv. utanrh. hefur komið með hér á þingi, því að af þeirri skýrslu, sem styðst við skjöl og skilríki, má sjá, að allar ásakanir Þjóðviljans í dag eru annaðhvort vísvitandi rangar eða þá byggðar á svo mikilli fljótfærni og svo miklu fleipri, að þær eru alveg ósæmilegar.

Ég mun á þessu stigi málsins ekki sjá ástæðu til að hafa þessi orð mín fleiri. Ég geri ráð fyrir því, að við og við gefist tilefni hér á Alþ. og á annan hátt til þess að afhjúpa þær rangfærslur, sem fram eru bornar af flokki hv. 2. þm. Reykv., sérstaklega varðandi afstöðu íslenzka ríkisins út á við. Það má margt segja um afstöðu til málefna inn á við og er ekki svo alvarlegt, og það er ekki mjög óeðlilegt, þó að um þau sé deilt. En einhver ofurlítill snefill af ábyrgðartilfinningu ætti að vera til hjá manni eins og hv. 2. þm. Reykv., sem gjarnan hefði viljað vera utanrh. í dag, ef hann hefði átt sér þess nokkurn kost. (EOl: Ég hef aldrei sótzt eftir því.) Hann auglýsti sig, að því er sagt var, sem utanrh. í norsku blaði.

Ég held þess vegna, að ef hv. 2. þm. Reykv. og sálufélagar hans vilja leita sér skjóls og styrks meðal þeirra manna, sem þeir stimpla sem „góða nazista“, þeirra manna, sem staðnir eru að því að fara með rangt mál, þá sé þeim það velkomið — og verði þeim að góðu.