18.04.1947
Neðri deild: 116. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (2635)

Olíustöðin í Hvalfirði

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Það er aðeins að gefnu tilefni frá hv. 2. þm. Reykv., af því að hæstv. forsrh. er ekki viðstaddur, en af því að fundartími er löngu liðinn, skal ég aðeins láta nægja að minnast á eitt atriði af því, sem þessi hv. þm. sagði hér. Hv. þm. sagði, að Alþfl. hefði alltaf verið á móti, að nokkrir samningar væru gerðir við Rússa, og sagðist vita, að hæstv. forsrh. hefði beitt sér fyrir, að þeir tækjust ekki. Ég lýsi þetta vísvitandi ósannindi hjá hv. þm. Ég veit, að Alþfl. hefur aldrei beitt sér á móti því, að þessir samningar væru gerðir. Ég hef beitt mér gegn því, að Rússar væru einu viðskiptamenn Íslendinga, og það er annað. Það hefur ævinlega verið ósk Alþfl. að hafa vinsamleg skipti við Rússa eins og aðra. Þetta er óvandaður málflutningur, en þó ekki óvandaðri en annar málflutningur sósíalista um þessi mál fyrr og síðar. Þessu vildi ég ekki láta ómótmælt.