17.04.1947
Sameinað þing: 43. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (2640)
Orðsending ítalska stjórnlagaþingsins
forseti (JPálm) :
Mér hefur borizt bréf frá utanrmn., sem ég hef látið þýða á íslenzku. Bréf þetta hljóðar þannig á íslenzku :
„Orðsending ítalska stjórnlagaþingsins til löggjafarþinga sameinuðu þjóðanna.
Ítalska stjórnlagaþingið hefur falið mér að koma til löggjafarþinga allra sameinuðu þjóðanna málaleitun, sem skýrir hug og óskir allrar þjóðarinnar um að milda þegar ströngustu skilmála friðarsamnings vors og þá einkum, að komizt verði hjá landaafsali, sem er svo mikið áfall fyrir þjóðarmetnað vorn, niðurlægingu þeirri, sem ítalski landherinn, flotinn og flugherinn, sem börðust hraustlega við hlið bandamanna, hafa orðið að þola, og loks, að ekki verði framfylgt fjárhagskvöðum og viðskipta, sem þjóð, er hefur orðið fyrir eyðileggingum styrjaldar og er nú að leitast við að rétta við, getur ekki risið undir.
Löggjafarsamkoman fer enn fremur fram á, að viðurkennd verði sú grundvallarregla, að unnt sé að endurskoða friðarsamning vorn með friðsamlegum gagnkvæmum samningum milli þeirra landa, er hagsmuna hafa að gæta, og innan vébanda sameinuðu þjóðanna, og lætur í ljós þá trú, að löggjafarþing þeirra þjóða, sem þátt tóku í styrjöld fyrir frelsi og réttlæti, muni taka til íhugunar þessa málaleitun ítölsku þjóðarinnar og gefa henni betra tækifæri til að festa í sessi nýja lýðveldið og lýðræðisskipulagið með þjóðfélagslegu öryggi og árangursríku starfi.
Undirskrift:
Terracini
forseti ítalska stjórnlagaþingsins.“