24.05.1947
Sameinað þing: 61. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (2653)

Þinglausnir

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans til okkar þm. Ég vil þakka honum fyrir réttláta og ágæta fundarstjórn og hygg, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þm. Ég óska honum gleðilegrar hátíðar og árna honum og fjölskyldu hans allra heilla og bið hv. þm. að taka undir þær óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum sínum.]