29.04.1947
Efri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í B-deild Alþingistíðinda. (2735)

109. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Frsm. (Bernharð Stefánsson) :

Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykv., sem er form. fjhn. og frsm. í þessu máli, er lasinn í dag, og bað hann mig að gera grein fyrir nál. Frv. fer fram á lántökuheimild handa ríkissjóði vegna byggingar hinna nýju síldarverksmiðja á Siglufirði og á Skagaströnd, og hækki upphæðin úr 27 millj. upp í 38 millj. króna. Er frv. var gengið gegnum Nd. og var vísað til fjhn. þessarar d., kom fyrir sá atburður, sem frægur er orðinn, að þak á húsi verksmiðjunnar á. Siglufirði hrundi. Af þessum ástæðum og enn fremur af grun um, að ekki væru öll kurl komin til grafar, sendi fjhn. málið til umsagnar ráðh. sjávarútvegsmála, og ráðgaðist hann við stjórn síldarverksmiðja ríkisins, og er birt á þskj. 721 bréf frá stjórn verksmiðjanna, þar sem hún óskar, að ábyrgðin hækki enn um 5 millj., eða upp í 43 millj. kr. Auk þessarar ástæðu telur stjórn síldarverksmiðjanna aðrar ástæður til að hækka enn lántökuheimildina. N., að minnsta kosti meiri hl. hennar, sýndist, úr því sem komið var, að ekki væri annað að gera en reyna að ljúka verkinu burt séð frá því, hvort mátt hefði komast af með minna, ef rétt hefði verið á haldið, þá væri ekki annað að gera en fara eftir till. verksmiðjustjórnar, og ber því n. fram á þskj. 721 till. um, að lántökuheimildin hækki úr 38 millj. í 43 millj. kr. Einn nm., hæstv. forseti þessarar d., skrifaði að vísu undir nál, með fyrirvara, og gerir hann að sjálfsögðu grein fyrir þeim fyrirvara við þessa umr. Ég held, að ég þurfi ekki að taka fleira fram fyrir hönd n., enda ekki við því búinn, því að það var ekki fyrr en rétt fyrir matartíma að hv. 1. þm. Reykvíkinga bað mið að hafa framsögu. En frá sjálfum mér vildi ég segja, að saga þessa máls er á eina leið öll. Fyrst er veitt 10 millj. kr. lántökuheimild og þá eftir þar til gerðri áætlun. Haustið 1944 er svo borin fram, að tilhlutun stjórnar þeirrar, er þá tók við, till. um að hækka heimildina í 20 millj. kr., og fyrir um það bil einu ári, þá bar hv. fyrrv. atvmrh., Áki Jakobsson, fram frv. um að hækka heimildina enn um 7 millj. kr. og segir þá orðrétt: „Framkvæmdin er nú það vel á veg komin, að nokkurn veginn má sjá, hver byggingarkostnaðurinn verður,“ og gerði hann þá ráð fyrir, að 27 millj. mundu nægja. Sami ráðh. þar svo í haust fram till. um að hækka heimildina enn upp í 38 millj. kr., og við nánari athugun stjórnar síldarverksmiðjanna kemur í ljós, að enn vantar 5 millj. kr. til að fullgera verksmiðjurnar. Þó að margar áætlanir hafi reynzt of lágar um ýmsar framkvæmdir, þá held ég að sú saga, sem ég nú hef rakið, sé algerlega met um það, hve áætlanir hafa reynzt óábyggilegar. Og það er álit mitt, að þó að allt hafi hækkað í verði, t. d. síðan fyrsta áætlunin var gerð, þá séu þessar miklu hækkanir ekki eðlilegar, og allt þetta hlýtur að vekja grun um, að að ýmsu leyti hefði betur mátt á halda, enda var við þessar framkvæmdir viðhöfð alveg sérstök aðferð. Það var skipuð byggingarnefnd til að sjá um verkið í stað þess, að stjórn síldarverksmiðjanna hefur áður haft yfirstjórnina á hendi, þegar reistar hafa verið nýjar verksmiðjur, og það liggur fyrir, þó að smáræði sé, að kostnaður vegna þessarar h. er orðinn furðanlega hár. Eins sýnist leikmönnum, að komast hefði mátt af án hinna miklu umboðslauna, sem greidd voru, og því er ekki að neita, að margar sögur hafa gengið um starfshætti við byggingu verksmiðjanna. Þó að sögum sé að vísu varlegt að treysta, þá sýnir kostnaðurinn, sem orðinn er svo gífurlegur, að ekki muni öllu logið. Það er sagt, að ákaflega mikið hafi verið um nætur- og helgidagavinnu, sem greidd var miklu hærra kaupi en dagvinna, og misjafnar sögur hafa gengið um það, hvað hafi verið unnið stundum í þessari nætur- og helgidagavinnu. Ég hef heyrt frá allgóðum heimildum um ungling, er vann í tvo mánuði og kom með 7 þús. kr. fríar í vasanum, og er vafasamt, þó að nýsköpunin sé mikil, að landið þoli, að einum eða neinum sé greitt slíkt kaup. Sagt er einnig, að múrarameistari hafi haft 25 þús. kr. á mánuði, en vitanlega geta svona sögur verið orðum auknar, en samt er þetta svo furðulegt, að Alþ. verður að gera ráðstafanir til að athuga þetta mál. En það er engin bót að skilja við byggingarnar hálfkaraðar. T. d. verður að koma þakinu á mjölhúsið og fullgera verksmiðjurnar, og til þess er nú talið að vanti 5 millj. kr. Því virðist auðsætt að heimila verði þessa 5 millj. aukningu, svo að ljúka megi verkinu, því að ekkert gagn er í því að binda 38 millj. kr. framlag þarna, ef verksmiðjurnar geta svo ekki afkastað því, sem ætlazt er til. Það er ekki einu sinni víst, hvort þetta nægir, en ætla mætti, að þetta verði í síðasta sinn, sem farið er fram á heimild til lántöku vegna byggingar þessara verksmiðja.