29.04.1947
Efri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1643 í B-deild Alþingistíðinda. (2738)
109. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Þetta stóra og leiðinlega mál er bæði margþætt og flókið og þess vegna ekki nema eðlilegt, að það sé rætt nokkuð í þessari hv. d., eins og gert var í Nd. Þar sem mér finnst ekki fullkomlega upplýst, hvernig samninga fyrrv. ríkisstj. gerði við þessa byggingarn., vil ég leyfa mér að gera fyrirspurn til ráðh. Mér hefur skilizt, að fyrrv. ríkisstj. hafi falið þessari umræddu n. allar framkvæmdir og þá með fullri ábyrgð. Ég hef heyrt fyrrv., atvmrh. álasað fyrir þetta mál, en ég get ekki séð, að þessi mistök hafi á, nokkurn hátt verið þessum ráðh. að kenna, nema þá að honum hafi mistekizt með val á mönnum í byggingarn. Það er ekki vegna þess, að ég sé að verja sérstaklega þennan ráðh., heldur hitt, að það er ekki hægt að ætlast til, að ráðh. fylgist með öllu í framkvæmd þeirra verka, sem ráðuneyti hans, hefur með höndum. Ábyrgðin hlýtur að hvíla á n., og því vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Hvaða ráðstafanir hefur núv. ríkisstj. gert til þess að láta viðkomandi sæta ábyrgð? Ég vil benda á hliðstætt mál, en það eru togarakaupin í Englandi. Ég átti sæti í þeirri n., og töldum við okkur hafa mikla ábyrgð á öllum kaupunum, enda krafðist nýbyggingarráð allra gagna í þessum kaupum, allra samninga, um leið og þeir voru gerðir, og fylgdist yfirleitt nákvæmlega með öllum kaupunum. Nú er það kunnugt, að tveir þeirra manna, sem sátu í þessari byggingarn. síldarverksmiðjanna, eru háttsettir starfsmenn hins opinbera í öðrum greinum. Annar gegnir þýðingarmiklu embætti við atvinnudeild háskólans, en hinn er við vélaeftirlit. Störf hins síðar nefnda hafa hvað eftir annað brugðizt, og nægir að nefna í því sambandi mistökin á Ingólfsfirði, sem voru svo stórkostleg, að þau voru nærri búin að velta um fyrirtækinu, sem að þeim stóð. Það verður vissulega ámælisvert, að ráðh. skyldi taka slíkan mann í byggingarn. Nú vil ég að lokum leyfa mér að spyrja fjmrh., hvort ríkisstj. hefur kynnt sér þá samninga, sem gerðir voru milli verktaka og byggingarn., og ef svo er, hvort verktakar hafi ekki neina ábyrgð á mistökum eins og þeim, að mjölhúsið hrynur. Ef þetta hefur ekki verið athugað, þá tel ég nauðsynlegt, að það verði gert eins fljótt og auðið er.
En mér er líka kunnugt um það, að þegar menn semja um slíkt, ber viðkomandi aðili ábyrgð gagnvart kaupanda, þannig að efni og vinna sé fyrsta flokks og að ekki sé svikizt um að vinna verkið og láta af hendi það efni, sem tilskilið er samkvæmt samningnum. Viðkomandi verkstjóri tekur þá jafnan á sig þá ábyrgð að sjá um, að vinnufólkinu sjálfu sé þannig stjórnað, að úr því fáist fullkomin afköst. Ég tel því nauðsynlegt að fá upplýst, hvort sú hlið samningsins hefur verið uppfyllt eða hvort nokkuð hefur verið samið um það, þegar verktaki tekur að sér þetta verk. — Þetta er annað það, sem ég vildi fá upplýst. Í þriðja lagi vildi ég svo fá að vita, hve mikið verksmiðjan eða ríkisstj. skuldar viðkomandi aðilum, hve mikið fé hún skuldar þeim mönnum, sem hafa ekki uppfyllt þessa samninga, ef nokkrir samningar hafa verið um verkið. Ég held, að þeir muni enn ekki hafa fengið sínar greiðslur að fullu, og ef svo er ekki, fyndist mér ekki úr vegi að fá það að fullu rannsakað, hvort ekki liggi einhverjar veilur hér á bak við, hvort þessir aðilar hafi uppfyllt þessa samninga, áður en greitt er til þeirra eða ríkisstj. gefur ábyrgðarheimild fyrir fénu. Ég vil ekki binda þetta við afgreiðslu málsins út af fyrir sig. Ég sé ekki annað en það megi afgreiða málið, ef ráðh. lýsir yfir því, að þessi mál skuli athuguð, áður en hann greiðir upphæðina út.
Þá hefði ég óskað eftir, að meiri grg. hefði verið gefin frá hendi núv. verksmiðjustjórnar en gert er í bréfinu til ráðh. Mér er ekki kunnugt um það, hve stórir olíugeymarnir eru, sem ætlazt er til, að byggðir séu, en mjög þætti mér óeðlilegt, ef hér er um að ræða meira en 300–400 þús. kr., og sama er að segja um olíukyndingartækin.
Svo kemur kostnaður við að fullgera verksmiðjurnar, ýmsar lagfæringar. Mér hefur skilizt af umr., sem farið hafa fram í Nd. um þetta mál, að þetta sé ekki veigamikið atriði, sem geti kostað mjög mikla peninga. Hins vegar er gert ráð fyrir að kaupa hús handa verksmiðjustjóranum á Skagaströnd, en mér finnst, að þetta komi ekki verksmiðjunni við og þetta atriði megi því bíða.
Þá er það síðast sjötti liðurinn. Mér finnst, að það væri mikils vert fyrir okkur að vita, hvað þessi liður raunverulega kostar. Maður hefur séð það í blöðunum, að þetta geti kostað milli 1 og 2 millj. kr., og verður manni þá á að spyr ja : Borgar það sig að vera að braska í því að laga þessa geymslu aftur? Gæti ekki eins komið til mála að athuga, hvort ekki mundi borga sig bezt að byrja að byggja þetta hús aftur frá grunni? Það er nauðsynlegt að fá það upplýst, hver hefur tekið á sig þá ábyrgð að panta svo stórt hús sem hér um ræðir, reikna það út og selja það ríkisstj. Eða er einhver maður, sem stendur á bak við ábyrgðina, eða hefur ríkið gert þetta?
Þá vildi ég fá upplýst: Hvað hefur þessari n., sem hefur unnið þetta verk, verið greitt fyrir starf sitt, og hefur það fé þegar verið greitt? — Ég verð að segja, að allt þetta mál bendir til þess, að alveg óhjákvæmilegt sé fyrir Alþ. og hæstv. ríkisstj. að setja sakamálsrannsókn á þetta mál, og ég vildi heyra það frá hæstv. ráðh., hvað hafi verið rætt um það atriði, því að hér virðist vera svo skefjalaus meðferð á ríkisfé, að það verði engan veginn þolað af Alþ. að láta það ganga svona óátalið. Verðhækkanir þær, sem talað hefur verið um á þessu tímabili, geta á engan hátt réttlætt það, sem hér hefur skeð. Það hljóta að vera einhverjar aðrar orsakir, sem liggja til þessarar dæmalausu útkomu á þessu máli, og það virðist vera skylda hæstv. ríkisstj. að gera tafarlaust ráðstafanir til þess, að sakamálsrannsókn verði sett á þá aðila, sem hér hafa verið að verki. Það virðist vera eina leiðin til þess að geta fyrirbyggt, að slíkt geti komið fyrir aftur, að gera þá aðila, sem eru á háum launum hjá ríkinu, ábyrga fyrir þeim störfum, sem þeir hafa innt af höndum.