29.04.1947
Efri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1650 í B-deild Alþingistíðinda. (2742)
109. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :
Herra forseti. Hér hafa nú nokkrir hv. þm. rætt þetta mál og ekki að ófyrirsynju, og virðast skoðanir manna í meginatriðum fara mjög á einn veg, sem mig undrar ekki.
Að því er snertir fyrirspurnir hv. þm. Barð., þá get ég satt að segja úr fáu leyst. Ég skal þó segja það, að mér er kunnugt um það, að þessar verksmiðjur eru byggðar með kolakyndingu, eins og verksmiðjur hafa verið, en það er uppi sú stefna nú að koma upp olíukyndingu í verksmiðjum. Um hina hliðina er mér persónulega ekki kunnugt, og ætla ég, að það geti enginn fullyrt, því að ég hef ekki persónulega haft kynni af þessum málum. En hitt er það; að ég hef, eða ríkisstj., sem um þessi mál fjallar, verið að stríða í því að reyna að fá upplýsingar um það, hvernig á þessum mistökum stendur, mér liggur við að segja, í hverju þessi ósköp eru fólgin. Það er eðlilegt, að þetta hneyksli hv. þdm. og alla þjóðina. Ég hef verið að stíga fyrsta sporið í þessu efni með því að skipta um yfirstjórn yfir verkinu, að svo miklu leyti sem það er óunnið. Það kom ekki til þess beinlínis að víkja byggingarn. frá. Ég sýndi henni fram á, að ástandið væri óþolandi, og þeir féllust á, að það væri eins gott, að þeir væru látnir hætta. Landssamband íslenzkra útvegsmanna eða stjórn þess skrifaði ráðuneytinu bréf og gerði svipaða kröfu og hv. þdm., allir þeir, sem talað hafa að undanteknum hv. forseta, hafa gert, sem sé þá, að ýtarleg og gagngerð rannsókn fari fram á því, hvað valdi hinum stóraukna kostnaði og að því er virðist miklu mistökum við byggingu þessara verksmiðja. Ráðuneytið hefur getað orðið við þessum áskorunum og hefði sjálfsagt gert það, þó að þessar áskoranir hefðu ekki komið fram, því að ég er sammála hv. þdm. um það, að svona hlutir eru svo vaxnir, að það er ekki hægt að komast hjá því og er ekki nema sjálfsagt, að rannsókn fari fram. Þá rannsókn hef ég í byrjun falið þeim, sem eiga að taka á móti, þ. e. a. s. stjórn síldarverksmiðjanna. Ég hef fengið lögfræðinga og lagt fyrir byggingarn. að afhenda öll gögn í hendur þessarar nýju yfirstjórnar. Ég er ekki fær að segja um það, á hvaða stigi eigi að fara lengra og láta hefja sakamálsrannsókn. Það mundi tæplega nokkur gera á þessu stigi. Hitt kemur svo í ljós við þessa rannsókn, er getur orðið þess eðlis, að frekari og víðtækari rannsókn verði að fara fram og þá ef til vill sakamálsrannsókn. En byggingarn. hefur verið látin fara frá og afhenda öll gögn í hendur hinnar nýju stjórnar, sem tekur við öllum framkvæmdum og fjárráðum yfir þessum verksmiðjum, og auk þess hefur stjórn síldarverksmiðjanna verið falið af sérstaklega gefnu tilefni frá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna að láta fara fram rannsókn á orsökum þessara misfellna. Skýrsla um þær verður svo lögð fram í ráðuneytinu á sínum tíma og ef til vill birt almenningi þegar í stað, en sjálfsagt að birta hana hinu háa Alþ. og gefa öllum almenningi kost á að kynnast henni. Mér er ekki kunnugt um fjárhaginn, hef ekki kynnt mér bókhaldið, en ef þess væri sérstaklega óskað, mundi ég láta rannsaka það fyrir 3. umr., þar sem öll gögn eru nú komin í hendur hinna nýju stjórnenda, en máske að það yrði einhverjum erfiðleikum bundið, þar sem form. er nú á Siglufirði í sérstökum erindagerðum.
Hv. þdm. hafa krafizt rannsóknar á þessum málum, og er ég þeim algerlega sammála persónulega, og mun ég, ef til minna kasta kemur um framkvæmdir, gera það, sem ég get, til að þessi rannsókn verði framkvæmd, sem krafizt er af útgerðarmönnum og réttilega af öllum þeim, sem hugsa alvarlega um opinber mál, þar sem mjög ríður á, að ekki skorti samvizkusemi og þekkingu.
Það er ergilegt að heyra það, sem fram kom, sérstaklega hjá hv. þm. Str., sem benti á mörg dæmi um þetta óskaplega sleifarlag við verk fyrir hið opinbera. Við vitum vel, að ein afleiðing hins óeðlilega ástands, sem verið hefur undanfarið hjá þjóðinni, er það, sem kalla mætti verksvik. Menn kvarta yfir þeim og þjást undir þeim, ef þeir þurfa að láta vinna eitthvert verk, hvort sem er í smáu eða stóru, og þegar þetta ófremdarástand nær inn á svið opinberra mála, þá eru þau dæmi, sem hafa verið nefnd, svo hræðileg, að ekki er furða, þó að menn reki í rogastanz og spyrji, þegar þetta endurtekur sig hvað eftir annað, hvort ekki sé hægt að vekja ábyrgðartilfinningu hjá þeim, sem ráðin hafa. Það mætti minna á ýmislegt í þessu sambandi, t. d. landssmiðjuna. Það er dapurlegt, þegar búið á Hvanneyri skilar af sér á þriðja hundrað þúsund kr. taprekstri, og svo mætti lengi telja. Það er full þörf, að við gefum gætur að þessum táknum tímanna og reynum að beita áhrifum okkar í þá átt, að úr ábyrgðarleysi, kæruleysi og eyðslu dragi í opinberum málum, því að við höfum oft tækifæri til þess að vera vitni þess hér á hinu háa Alþ., hversu þessir eiginleikar birtast í miklum mæli í þjóðfélaginu, verða þjóðinni til byrði og þegnunum til margfaldra útgjalda.
Mig skyldi ekki undra, þó að það væri rétt, sem hv. þm. Str. sagði um byggingarkostnað síldarverksmiðja í Noregi og á Íslandi, og er það fullkomlega athugunarvert, ef það er mælikvarði á, það, hvað framleiðslan kostar í Noregi, samanborið við það, sem hér er. Þá er þetta eitt með öðrum af umhugsunarefnum fyrir þjóðina á þessum tímum, þegar okkur hættir svo mjög við að gera lítið úr örðugleikunum og gleyma því, að við eigum erfiða aðstöðu í þessum efnum, ef svo fer fram, sem nú hefur verið um hríð.
Ég þykist hafa gert nokkuð og nóg í bili, að ég hygg, til að kippa málunum í þann farveg, sem hv. þm. krefjast. Sakamálsrannsókn virðist mér ekki koma til mála, fyrr en það hefur verið rannsakað, hvar mistökin liggja.
Að því er snertir löggjöf um þetta atriði, sem hv. þm. Str. minntist á, skal ég játa, að ég er ekki rétti maðurinn til þess að segja um þá hluti, en ég held, að hv. þm. Str. hafi mikið til síns máls. Það er ekki óeðlilegt, að menn spyrji, hvort hægt sé að gefa rangar upplýsingar annaðhvort af kæruleysi eða vanþekkingu, án þess að það á neinn hátt geti orðið til áfellis. Þessar spurningar hljóta að vakna, og er það ekki nema eðlilegt, þegar svona hlutir koma fyrir.
En við vitum líka, að á þeim árum, sem hv. þm. Str. fór með stjórn landsins, var þessu ábótavant. Það vildi sækja í það horfið, að áætlanir stæðust ekki, þær voru of lágar, en þá voru vitanlega ekki önnur eins endemi á ferðinni og nú er. En gagnvart þessu er eðlilegt að krefjast þess, að gagngerð rannsókn fari fram.
Ég vil svo endurtaka það, að þó að frv. yrði stöðvað, yrði ekkert við það unnið. Þessum málum verður að koma í viðunandi horf. Við þessa framleiðslu eru tengdar miklar vonir, og ætti nú ekki að eiga langt í land, að byggingu verksmiðjanna ljúki. Ég vona því, að hv. d. sjái sér fært að greiða fyrir málinu, en ég skal, ef hv. þm. Barð. óskar eftir frekari upplýsingum, sem hægt er að fá fljótlega, gangast fyrir því, að það verði gert fyrir 3. umr., en hitt hlýtur hv. dm. að vera eins ljóst og mér, að rannsókn á hinum smærri atriðum er vitanlega ekki lokið á svo skömmum tíma.
Hv. frsm. þótti það undarlegt, að einhver tregða hefði verið á afhendingu skjala, en það hlaut þann endi, a. m. k. enn sem komið er, að til úrskurðar kom ekki, en milli nefndanna hefur um tíma verið taugastríð, og hefur það haldið áfram, og ósamkomulag um gerðabók, sem ekki fékkst fram, og átti að fá fógetaúrskurð um það, en af því að form. var á Siglufirði, þá virtist mér þetta ekki svo bráðáríðandi, að ég kaus heldur að reyna að bíða, svo að ekki þyrfti til úrskurðar að koma, og bað ég því fulltrúa minn að fara þess á leit við báða aðila, að málinu yrði frestað, þar til form. kæmi heim, og vona ég fastlega, að þá gangi saman.