10.04.1947
Efri deild: 110. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (276)
221. mál, bifreiðaskattur
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
það gegnir sama um þetta frv. eins og hitt, að það er fram komið í því augnamiði að afla ríkissjóði tekna. Hér er um aukinn bifreiðaskatt að ræða, en hann er nú fremur lágur, enda lögin um hann frá 1932. það er ekki þægileg skylda að þurfa að gera till. um aukna skatta á þegnana, en nauðsyn brýtur lög. Hins vegar mun það flestra manna mál, að bifreiðaskatturinn sé óþarflega lágur og ekki muni rétt að ganga fram hjá því, þegar um aukna tekjuöflun sé að ræða. Ég skal svo ekki ræða frekar um þetta að þessu sinni.