22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1662 í B-deild Alþingistíðinda. (2773)
197. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Þar sem forseti hefur orðið við tilmælum um, að þriðja málið á dagskránni fengi að halda áfram, án þess að minni hl. flytti sitt sjónarmið í málinu, þá sé ég ekki annað en að í síðara tilfellinu sé rétt að taka tillit til óska minni hl., og hefur þá forseti fullnægt óskum beggja aðila með því að taka 2. málið af dagskrá.