22.04.1947
Neðri deild: 117. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1662 í B-deild Alþingistíðinda. (2774)
197. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins
Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :
Herra forseti. Ég vil ítreka það, að ég óska þess, að málið haldi áfram. Þetta mál hefur nokkrum sinnum verið tekið af dagskránni og lítur ekki út fyrir, að það sé til annars en að tefja málið, en ég er reiðubúinn að fresta umr. um málið þar til við 3. umr., svo að hv. þm. Siglf. geti komið fram og skýrt afstöðu sína gegn frv.