02.05.1947
Neðri deild: 120. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1667 í B-deild Alþingistíðinda. (2782)
197. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins
Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :
Þegar frv. þetta kom hér til 2. umr., var frsm. minni hl. sjútvn., hv. þm. Siglf., ekki viðstaddur. Ég lýsti þá yfir, að ég mundi geyma mér mína framsögu fyrir meiri hl. n., þangað til hann hefði tækifæri til að vera viðstaddur, eða jafnvel til 3. umr. Þó hófust þá umr. um þetta mál og stóðu alllengi. En þar sem þær umr., sem fyrr við þessa 2. umr. voru um málið hafðar, voru frekar til þess að tefja málið en til að upplýsa það, leiði ég þær hjá mér.
Ég get að mestu látið nægja að vísa til þeirrar grg., sem fylgir þessu frv. frá hæstv. ríkisstj. og einnig til nál. Þar eru taldar upp þær ástæður, sem ríkisstj, telur sig hafa til þess að óska eftir því við sjútvn., að hún flytji þetta frv. En ástæðurnar eru einkum þær, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins hefur haft undirbúning undir stofnun niðursuðuverksmiðju á Siglufirði með höndum um alllangt skeið og mun vera búin að koma þeim undirbúningi svo langt, að hún hefur sérstaklega styrkt kunnáttumann í þessu efni til náms erlendis og síðan haft þann kunnáttumann við starf á Siglufirði um tveggja ára skeið. Að öðru leyti er á það bent, að síldarverksmiðjur ríkisins höfðu haft þennan undirbúning með höndum og voru búnar að koma honum langt áleiðis, þegar núgildandi l. um niðursuðuverksmiðju á Siglufirði voru samþ. Þær hafa skrifstofu opna allan ársins hring á Siglufirði og hafa þar framkvæmdarstjóra. Einnig má geta þess, að þær hafa yfir miklu afli að ráða, bæði hitaorku og raforku, sem yfirleitt mætti nota mjög hagkvæmlega fyrir svona verksmiðju.
Meiri hl. sjútvn. telur öll rök hæstv. ríkisstj. fyrir þessu máli hníga á þá átt, að samþykkja beri þetta frv. óbreytt og að samþykkt þess muni geta orðið til þess bæði að koma þessu máli á heilbrigðan grundvöll, þannig að rekstur þessa fyrirtækis yrði ódýrari en ella yrði, og eins til hins, að reksturinn mundi geta orðið allmiklu tryggari þarna á ýmsan hátt, ef hægt væri að sameina starfskrafta síldarverksmiðja ríkisins við starfskrafta þá, sem. þessi verksmiðja hefði yfir að ráða.
Menn héldu því fram sumir í upphafi 2. umr. um þetta mál, að ríkisstj. með því að óska eftir að þetta frv. væri flutt, gerði sér vonir um að getakomið í veg fyrir, að þessi verksmiðja yrði reist. En ég hygg, að slíkar ásakanir séu algerlega rangar. Og það er alveg fjarri því, að. verið sé að útiloka einn eða annan flokk frá aðstöðu til þess að hafa réttmæta hönd í bagga um stjórn þessa fyrirtækis,. þar sem vitað er, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins er þingkjörin, kosin hér á hæstv. Alþ. með hlutfallskosningu, og þar sem líka vitað er, að einn af skeleggustu baráttumönnum Sósfl. á Siglufirði situr í stjórn síldarverksmiðja ríkisins. — Ég get að öðru leyti látið nægja að vísa til grg. og nál. og óska, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.