07.05.1947
Neðri deild: 123. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1679 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

197. mál, síldarniðursuðuverksmiðja ríkisins

Frsm. minni hl. (Áki Jakobsson) :

Herra forseti. Ég vildi segja nokkur orð út af því, sem fram kom hjá hæstv. fjmrh. Hæstv. ráðh. reyndi að færa rök fyrir því, að breyta bæri stjórn verksmiðjunnar og taldi, að með því yrði fyrirkomulagið einfaldara. Hann tók til máls vegna þess, að ég spurði, hvort halda ætti framkvæmdum áfram eða hvort ætti að stöðva þær, og kom þá fram hjá honum, að stjórnin ætlar að stöðva þessar verksmiðjubyggingar, og fannst honum það glæpur að ráðast í þetta svona óundirbúið. Hann vildi ekki, að sérstök stjórn hefði umsjón með þessu og vildi gera málið einfaldara með því, að stjórn S. R. hefði þetta með höndum, og er það einfaldara, ef á að stöðva málið, því að þegar stjórn S. R. hafði gert sínar athuganir, var meiri hl. hennar á móti því að hefja framkvæmdir um byggingu verksmiðjunnar, en hins vegar var óttazt, að ekki væri hægt að stöðva málið, ef sérstök stjórn er fyrir verksmiðjuna. Þetta var staðfest af hæstv. fjmrh., og er það út af fyrir sig gott að fá slíka staðfestingu, þó að mikið sé gumað af því, að tryggja eigi framkvæmd nýsköpunarinnar. En hér er það staðfest, að það á að stöðva byggingu þessarar verksmiðju og svo á að leggja tunnuverksmiðjuna undir síldarútvegsnefnd, sem engan áhuga hefur sýnt, þótt þar sé geysimikilvægt mál á ferðinni, því að framleiðsla okkar er mikið undir því komin, að vel takist í því efni. Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði hrúgað upp mörgum nefndum, en ekki hugsað um að útvega fé. En þær n., sem ég skipaði, voru aðeins tvær, og voru þær skipaðar samkv. l. um tunnusmíði og síldarniðursuðuverksmiðju og með samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Það, að ekki var útvegað fé, er hart að heyra frá hæstv. fjmrh., þar sem flokkur hans fór með fjárveitingarvaldið og stöðvaði fé til þessara hluta. Nú er talað um fjárskort, og til að sjá, hvort það hefur við rök að styðjast, þarf ekki annað en að ganga hér um bæinn og sjá allar villurnar, sem nýbúið er að byggja, og getur ríkisstj. ekki afsakað sig með því, að engir peningar séu til, því að aldrei hefur verið auðveldara að útvega fé til að koma þessu upp en nú. En meining stjórnarinnar er að hindra, að atvinnuvegirnir séu byggðir upp, því að það þjónar betur hugmyndum hennar um atvinnuleysi, þar sem hún sér ofsjónir út af kjörum verkalýðsins. Þá kvartaði hæstv. ráðh. um það, að stofnað væri til skulda í sambandi við þessar verksmiðjur, og ég veit, að það er óþægilegt fyrir ríkisstj. að stöðva verkið, þegar búið er að hefja framkvæmdir við verksmiðjurnar, enda yrði það illa séð af íbúum Siglufjarðar og Akureyrar, ef hætt verður við allt saman. Það liggur þá á borðinu, að ríkisstj. vill stöðva verksmiðjubyggingarnar, og kemur ákafi hennar bezt í ljós að leggja þessi mál undir þær stofnanir, sem engan áhuga hafa sýnt á þeim. Ég vil nefna eitt dæmi um það, hvernig ríkisstj. ætlar að stöðva allar framkvæmdir. Það er í sambandi við lýsisherzluverksmiðjuna. Í tíð fyrrv. ríkisstj. var ákveðið að byggja þessa verksmiðju og var helmingur véla keyptur að ráðum beztu manna og samningar undirritaðir af sendiherra okkar í London, Stefáni Þorvarðarsyni. En þegar núv. ríkisstj. hafði tekið við, þá fellur fyrsta greiðslan, 380 þús. kr., og líður og bíður og engin greiðsla fer fram, og það er fyrst nú fyrir skömmu, að þetta var borgað. Þessar vélar voru keyptar s. l. haust og verða tilbúnar í apríl næsta ár, en aðrar af vélunum eru auðsmíðaðar.

Ekki hefur það enn þá verið gert, þótt sannanir liggi fyrir um það, að hert lýsi seljist fyrir margfalt hærra verð. Og þrátt fyrir aflabrest á síldarvertíð þá hefðum við getað fengið fyrir hert lýsi samsvarandi upphæð í erlendum gjaldeyri og glæsilegasta síldarvertíð færir þjóðinni með núverandi fyrirkomulagi. Og er svo hæstv. fjmrh. segir, að verið sé að stofna ríkissjóði til skulda með þessu fyrirtæki, þá er nú nýbúið að borga lýsisherzluvélarnar, og ef hæstv. ráðh. hefur hug á að selja þær, þá get ég upplýst, að það er ekki hinn minnsti vandi að losna við slíkar vélar.

Hæstv. fjmrh. sagði, að ég hefði vanrækt peningahlið málsins í þessu sambandi. Það er furðulegt, að hæstv. ráðh. skuli segja þetta, þar sem hann stóð við hlið Péturs Magnússonar í nýbyggingarráði, en það var ég sem flutti frv. á þingi. fyrir nýbyggingarráð. Það er því úr hörðustu átt komið, að ég hafi ekki séð um peningahlið málsins.Og núv. ríkisstj. er til orðin vegna þeirra manna, sem kusu að stöðva atvinnuna í landinu, en vildu um leið leyfa verzluninni að taka fjármagnið í sínar hendur. Og þess vegna varð baráttan á síðasta þingi um stofnlánasjóð sjávarútvegsins, sem endaði með sigri þeirra manna, sem ekki vildu afhenda lánsfé og form. nýbyggingarráðs. hefur nú brugðizt og gengið í lið með þeim mönnum, og þeir menn, sem treystu form. nýbyggingarráðs, og lögðu allt sitt í sjávarútveg, þeir eru nú illa sviknir af hæstv. fjmrh. Það situr því sízt á hæstv. fjmrh. að segja, að ég hafi vanrækt peningahlið málsins. Það var annað, sem brást, og þjóðin mun krefjast þess, að fjármagnið verði sett í atvinnutækin, en ekki í alls konar brask.

Þá veittist hæstv. fjmrh. að dr. Jakob Sigurðssyni og sagði, að það væri eins konar menntamannshroki í honum og að hann hefði hvergi komið nærri athugunum á þessu máli. Þetta er vitleysa, og er hæstv. ráðh. hér aðeins að skeyta skapi sínu á einhverjum.

Þá gerðist hæstv. ráðh. drýldinn og sagði, að það væri hyggilegt að koma upp niðursuðuverksmiðjum einna líkustum S. Í. F. verksmiðjunni. Það er nú einn kapítuli þessa máls og er bezt, að hæstv. ráðh. og þeir í stjórn S. Í. F. viti það, að sú verksmiðja hefur fremur orðið til ills en til góðs. Þetta er úrelt verksmiðja með úreltum tækjum. En þrátt. fyrir það að 25% dósanna skemmist frá þessari verksmiðju, þá tapar hún ekki. Þetta sýnir aðeins hve möguleikarnir eru miklir.

Hæstv. fjmrh. sagðist hafa kynnt sér, hvernig Svíar hefðu byrjað starfsemi sína með rekstur niðursuðuverksmiðja. Þeir hefðu ekki byrjað stórt, heldur í smærri stíl og þreifað sig síðan áfram. Þetta er alveg rétt, en það var fyrir 30 árum, og það er ekki rétt að feta í fótspor þeirra varðandi þessi mál og taka upp aðferðir, sem nothæfar voru fyrir 30 árum. Nei, við verðum að hefja þessa starfsemi hér hjá okkur með nýjustu tækni. Annað er vonlaust, og ef við höfum ekki fullkomnari. vélar en Svíar, þá eigum við erfitt með að keppa við þá. Og þau lönd, sem hafa orðið á eftir í tækni, hafa getað náð sér vel upp með því að byrja framleiðslu með nýjustu vélum og vinnutækni. Nærtækt dæmi um þetta er, hvernig Þýzkaland tileinkaði sér reynslu Englendinga í iðnaðinum. Nú getum við byggt á reynslu Svía. En ef við förum að byrja niðursuðu á sama hátt og Svíar hófu hana fyrir 30 árum og þreifa okkur síðan upp, þá er þetta fyrirtæki vonlaust og sýnir aðeins, að meiningin er að reyna að stöðva þessar framkvæmdir, og hæstv. ráðh. er seinheppinn í rökum sínum.

Við Íslendingar erum búnir að starfrækja niðursuðuverksmiðjur í 20–30 ár, en þrátt fyrir þær tilraunir höfum við staðið í stað, en Svíar hafa stórhagnazt á því að kaupa hráefni af Íslendingum, og þeir hafa tekið megingróðann af vinnu Íslendinga. Og það er bersýnilegt, að hæstv. ríkisstj. ætlar að halda þessu fyrirkomulagi. Það er leikur einn að koma upp á 5–10 árum niðursuðuverksmiðjum og niðurlagningu á saltsíld, en það þarf að hefja þessar framkvæmdir strax.

Þá sagði hæstv. ráðh., að útvega þyrfti markaði, áður en farið yrði út í þetta. Þetta sýnir nú aðeins, hve röksemdalaus hæstv. ráðh. er, og hæstv. fjmrh. veit, að sölumaður var sendur suður til Svisslands með sýnishorn af niðursuðuvörum. Er hann kom heim úr ferð sinni, kom hann með pöntun, sem mundi taka mörg ár að framleiða. Menn vilja ekki kaupa nokkrar dósir, þeir vilja kaupa mikið magn í einu. Niðursuðuverksmiðja sú, sem þessi maður var umboðsmaður fyrir, er búin að framleiða á 5 mánuðum um 5 tonn, en svo er óskað eftir 500 tonnum, sem taka mundi 6–7 ár að framleiða með svipuðum afköstum, og það er útilokað að tryggja markaði fyrir vöru, sem ekki er farið að framleiða. Af því að við höfum hráefnin og getum keypt fullkomnustu vélar, amerískar vélar, þá á nú að hefjast handa án tafar. Það mun ekki vanta markað fyrir niðursuðuvörur og markaður fer þverrandi fyrir saltfisk, ísfisk og harðfisk. Lítill vandi er að hraðfrysta og minni vandi er að sjóða niður. Menn vilja ekki lengur saltfisk, harðfisk og jafnvel ekki ísaðan fisk. Vandræðin stafa ekki af því, að kaup sé of hátt, og þótt það lækkaði um helming, þá værum við samt í vanda. Vandinn er sá, að okkur vantar framleiðslutæki til þess að geta selt vörur okkar, hraðfrystihús, lýsisherzluverksmiðju og niðursuðuverksmiðju. Og að þessu fengnu er hægt að treysta því, að nægur gjaldeyrir verði alltaf til.

Ég get ekki látið það hjá líða að leiðrétta hér að nokkru hæstv. fjmrh., svo að ummæli hans lægju ekki ósvöruð, þótt hæstv. ráðh. væri ekki viðstaddur, en hann reyndi að klóra í bakkann, og hann var að gera hlut, sem hann hefði fyrr fordæmt, og orð hans og ummæli munu koma óþægilega fyrir þeim, er tóku loforð hans hátíðleg áður og alvarlega um lán til báta og skipakaupa og annarra greina sjávarútvegsins.