10.04.1947
Efri deild: 111. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (279)
221. mál, bifreiðaskattur
Pétur Magnússon:
það er sama um þetta frv. að segja og það, sem hér var síðast til umræðu (frumvarp um gjald af innlendum tollvörutegundum). Fjárhagsnefnd hefur athugað það, og fjórir af fimm nm. leggja til, að það verði samþ. Frv. er borið fram í sama tilgangi og hitt frv., eða til þess að auka tekjur ríkissjóós. Í frv. er lagt til, að ýmsir tekjuliðir verði hækkaðir. Þeir tekjuliðir eru í fyrsta lagi tekjur af hjólbörðum og gúmmíslöngum, tollur af þeim vörum var 1 kr. af hverju kg, en hér er lagt til, að hann verði hækkaður í 3 kr. af kg. Þá er gert ráð fyrir, að skattur af fólksbifreiðum hækki í 36 kr. af hverjum 100 kg af þunga bifreiðarinnar. Þessi skattur var áður 6 kr. af leigubílum, en 12 kr. af einkabílum af hverjum 100 kg. Þetta gjald er ráðgert hér, að verði jafnt bæði af leigubílum og einkabílum, og sýnist mér það eðlilegt. því hefur að vísu verið hreyft, að einkabílar væru meira notaðir í lúxus en aðrir bílar, en hins vegar mun hið sanna vera, að flestir bílar munu mest notaðir til þarfa, en hvorir tveggja nokkuð til skemmtunar. Þá er í þriðja lagi sú tegund bíla, sem ekki notar benzín, skatturinn á þeim er ákveðinn 90 kr. af hverjum 100 kg af þunga þeirra. Þessi skattur er svo miklu hærri vegna þess, að benzínhækkunin nær ekki til þeirra. Þá er loks lagt til, að skattur á bifhjólum verði hækkaður í 60 kr. Þar er fylgt sömu reglu og í tollunum yfirleitt, að upphæðin er yfirleitt þrefölduð. Loks er lagt til. að 8. gr. l. frá 1932 verði felld úr gildi, þar sem það ákvæði hefur hvort sem er ekki verið framkvæmt undanfarið. Að öðru leyti vísa ég til þeirra aths., sem fram hafa komið. Ég endurtek það, að 4 af 5 nm. mæla með frumvarpinu.