27.01.1947
Neðri deild: 59. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1682 í B-deild Alþingistíðinda. (2799)
133. mál, bæjarstjórn á Sauðárkróki
Flm:
(Steingrímur Steinþórsson) : Herra forseti. Við þm. Skagf. flytjum á þskj. 301 frv. til l. um bæjarstjórn á Sauðárkróki. Fylgir því allýtarleg grg. frá hreppsn. Sauðárkrókshrepps, og auk þess eru þar prentuð tvö fskj., sem sýna nokkuð þróun þessa máls heima í héraði. Það kemur fram í grg. frv., að hreppsn. Sauðárkrókshrepps óskar eftir því, að Sauðárkrókur fái bæjarréttindi og sett verði löggjöf um þetta á þeim grundvelli, sem þetta frv. hefur verið samið. Er frv. sniðið eftir nýjustu l. um bæjarstjórnir, og er þar sérstaklega farið eftir l. um bæjarstjórn Ólafsfjarðarkaupstaðar, sem er nýjasta löggjöfin um þessi efni. Er aðeins breytt út af henni, þar sem sérstök ástæða er til að orða ákvæði öðruvísi. Það skal tekið fram, að hér er ekki um neina óeiningu að ræða — eins og fram kemur í grg. og fskj. — milli sýslun. Skagafjarðarsýslu og hreppsn., og veit ég ekki annað en að á milli þessara aðila hafi alltaf ríkt ágæt samvinna. — Það, sem hér er til grundvallar, er, að það er að verða ómögulegt fyrir hina þúsund íbúa Sauðárkrókshrepps að fara með stjórn hreppsfélagsins á þann hátt, sem verið hefur og verður að vera, þegar um hreppsfélag er að ræða, en ekki bæjarstjórn. Mun þetta vera meginástæðan fyrir því, að hreppsbúar óska nú eftir því, að Sauðárkrókur verði gerður að sérstöku bæjarfélagi með þeim réttindum og skyldum, sem því fylgir. Þetta mál lá fyrir sýslun. Skagafjarðarsýslu árið 1940, og er á fskj. I. prentaður útdráttur úr sýslufundargerð um þetta mál. Varar sýslun. að vísu við, að þetta verði gert, nema Sauðárkrókur telji víst, að honum henti betur að fara þessa leið, og hygg ég, að fram komi í grg. skoðun hreppanna utan Sauðárkróks um, að þeir vilji ekki standa í vegi fyrir því, að Sauðárkrókur verði sérstakt bæjarfélag, séu ákveðnar óskir uppi um það. Hins vegar líta sumir þannig á, að ekki sé heppilegt að kljúfa stærri fjárhagslega heild á þann hátt, sem gert er með þessu, og geri ég ráð fyrir, að margir séu uggandi um, að þetta verði til að styrkja hvorugan aðila fjárhagslega, og kemur þetta fram í bréfi sýslumanns Skagafjarðarsýslu, sem prentað er á fskj. II.
Við flm. þessa frv. óskum eftir því, að sú n., sem fær málið til meðferðar, flýti afgreiðslu þess, eftir því sem hægt er, og að það verði afgr. á Alþ. því, sem nú stendur yfir. Vil ég svo leyfa mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. félmn.