13.05.1947
Efri deild: 131. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (2832)
209. mál, Egilsstaðakauptún í Suður - Múlasýslu
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Mig undrar nokkuð á því, að málið skuli vera komið svo langt sem raun ber vitni um, án þess að allshn. hafi nokkuð við það að athuga, eins og hv. frsm. gat um. Ég vil leyfa mér að benda á hliðstæð lög um Höfðakaupstað. Þau fengu meðferð í fjhn. En nú þykir ekkert athugavert við það, að allshn. ber fram í Nd. frv., sem kostar ríkissjóð ótakmarkaðan fjölda millj. króna, og lætur í nál. fylg ja aðeins nokkrar línur með frv. Við afgreiðslu frv. um Höfðakaupstað var þó sá varnagli settur, að þar er í 1. gr. takmarkað það fé, sem ríkissjóður leggur fram, við 5 millj. kr. En hér eru engin takmörk sett, bókstaflega engin. Það getur vel orðið 1 millj., 5 millj. eða jafnvel tugir millj. króna. Við þetta hefur hv. frsm. ekkert að athuga.
Nú er mál þetta raunverulega þríþætt. Í fyrsta lagi að því er snertir skiptingu hreppanna: Í fylgiskjölum með frv. í grg. þess koma fram mótmæli frá báðum hreppunum. Ég tel rétt að greiða fyrir því, að upp vaxi þorp við Egilsstaði, en ég álít, að taka eigi tillit til réttar þeirra manna, sem hér hafa mótmælt. Næsti þáttur er sá, að hér er ríkisstj. heimilt að kaupa mikil og víðtæk lönd. Ég hef haldið, að þegar slíkar heimildir eru gefnar, þá ættu þær að sæta athugun af fjhn. Ég veit ekki um það, hvort hæstv. fjmrh. hefur verið spurður um málið; ég hefði ekki talið óeðlilegt, að hann segði til um það atriði, hvort óhætt væri að kaupa þessi lönd. Nú vil ég ekki setja mig upp á móti því. Og ég tel nauðsynlegt að kaupa upp þau lönd, sem hér er farið fram á. En ég hefði hins vegar óskað eftir því, að málið væri afgr. á þinglegri hátt, t. d. hefði ég talið eðlilegra að ráðgast við fjhn. um málið. Þriðji og veigamesti þátturinn kemur fram í 3. gr. frv., þar sem ríkisstj. skal gangast fyrir stofnun kauptúnsins, og er henni heimilt að verja til þess fé úr ríkissjóði. Hér eru engin takmörk sett, ekkert sagt um það, við hve háa upphæð er átt, hvort það er ein millj. kr. eða hundrað millj. kr., aðeins ákveðið, að stofna skal kauptúnið og verja fé ... (PZ: Til þeirra framkvæmda, sem í lögum þessum greinir.) Það kemur ekki heldur fram, til hvaða framkvæmda samkv. 6. gr. Hún ákveður, að ríkisstj. komi upp nauðsynlegu gatnakerfi, en það segir ekkert um það, hvort það eigi að vera moldargötur eða götur, þar sem hver meter kostar 300 kr. Svo lætur hún leiða vatn til kauptúnsins, gera skólpræsi og setja upp rafstöð, en það segir ekkert um það hvað ... (PZ: Þetta er allt búið.) Nú, þetta er allt búið, segir hv. frsm. Þá er eðlilega rétt að láta það koma fram í frv. eða grg. fyrir því. Þar sést ekkert annað um kostnað en að sett hafi verið upp dálítil mótorstöð í þorpinu og hún stækkuð allverulega á árinu 1946, og kostnaðinn við hana áætlar rafmagnseftirlitið yfir 300 þús. kr. En ekkert er sagt um það, hvort það verði nægilegt þörfum íbúanna. Það kemur ekki fram. Það getur verið, að hv. þm. geti sagt um það. Þá segir einnig um það hér, að kostnaðurinn við vatnsleiðsluna hafi numið yfir 120 þús. kr. Það er líka sagt, að vatnsleiðslan sé ónóg. Enn fremur segir, að eftir sé að leggja skólpveitu, það sé aðkallandi og hún verði dýr. Ekki er búið að leggja þann hluta. Enn fremur segir, að götur sé ekki búið að leggja enn þá, og munu þær verða dýrari en svo, að hreppurinn fái undir þeim kostnaði risið. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að bæta inn í frv. takmörkunum á fjárupphæðum, eða að ákveðnu fjárframlagi sé veitt til þessa.
Þá er annað atriði, sem ég vildi benda á hér, varðandi 8. gr. Það er um afhendingu þessara mannvirkja. Þar stendur, að „þegar ríkissjóður hefur komið upp vatnsveitu, skolpveitu og rafveitu í Egilsstaðakauptúni, skal afhenda þau fyrirtæki öll með sérstökum samningi hreppsnefnd Egilsstaðahrepps, er þá tekur við rekstri þeirra og viðhaldi á eigin ábyrgð með sama hætti og tíðkast um rekstur sveitarfélaga á slíkum fyrirtækjum.“ En hins er ekki getið, hvort afhendingin verði ríkissjóði að skaðlausu með greiðslufresti. Ég tel, að hér eigi að koma fram, að fyrirtæki þessi séu afhent ríkissjóði að skaðlausu. Ef það er ekki gert og þessi fyrirtæki afhent hreppsnefndinni endurgjaldslaust eða með einhverjum sérstökum samningum, þá má sannarlega vænta þess, að víðar komi fram kröfur um slíkt. Það eru ekki lítil fríðindi handa einu þorpi að leggja götur, rafmagn o. s. frv. og síðan afhenda þetta endurgjaldslaust viðkomandi aðila, til stórkostnaðar fyrir ríkið. Þá eru það aðrir þegnar, sem bera þá ábyrgð. Þetta gætu ekki verið einu dæmin, með Höfðakaupstað og Egilsstaðakauptún. Og fleiri hreppar mundu þá sennilega koma á eftir. Og nauðsynlegt væri þá að bæta úr skipulagi vaxandi þorpa, sem eiga sama rétt til fjárhagslegs stuðnings.
Ég vil óska, að n. athugi þessar ábendingar, og sjái hún ekki ástæðu til breytinga, þá mun ég bera fram brtt. sem fer í þá átt, að Alþ. ákveði á hverjum tíma, hve miklu fjárframlagi skuli varið til þessara framkvæmda. Og eins við 8. gr. þá brtt., að þessi fyrirtæki skuli afhent með samningi ríkissjóði að skaðlausu. Ég vil, í sambandi við þetta, leyfa mér að benda á, að nú þegar er búið að ákveða með sérstökum lögum, hverrar aðstoðar héruðin skuli njóta við að koma upp raforkuverum, og þykir mér einkennilegt, ef hér er lengra gengið. Er ríkisstj. heimilt, samkv. þeim l., að ábyrgjast allt að 85% af stofnkostnaði slíkra framkvæmda. Eins er með aðstoð til vatnsveitna. Og ég býst nú við, að það verði að l., hvernig slíkan styrk skuli veita, og þykir mér eðlilegt, að þessi styrkur sé í samræmi við þau lög, — raforkulögin. Þetta þótti mér rétt að láta koma fram við þessa umr. Mundi mér þykja vænt um að heyra hjá hv. frsm., hvort ekki væri rétt að fresta málinu og athuga það betur. Þetta er ekki sagt vegna þess að ég sé á móti málinu. Ég tel það merkilegt. En ég tel jafnsjálfsagt, að það sé ekki gert takmarkalaust fremur en í sambandi við Höfðakaupstað, þegar hv. þm. þótti þá nóg um.