10.04.1947
Efri deild: 112. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (284)
221. mál, bifreiðaskattur
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Það er rétt hjá hv. þm. Barð., að jeppabifreiðarnar eru í grg. taldar með þeim bifreiðum, sem eru ætlaðar til fólksflutninga, og mér virðist, að reynslan sýni það og sanni, að jepparnir séu ekki sízt notaðir til þeirra hluta. Hitt kann að vera, að sérstaklega í sveitum séu jepparnir að einhverju leyti notaðir til annars. Að hvað miklu leyti er mér ekki unnt að dæma um, en ég skal lýsa yfir því, að þegar þetta frv. var samið og undirbúið til þess að leggja það hér fram fyrir hæstv. Alþ., var gengið út frá því, að þessir jeppar væru skoðaðir sem fólksbifreiðar.