14.05.1947
Efri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1692 í B-deild Alþingistíðinda. (2840)
209. mál, Egilsstaðakauptún í Suður - Múlasýslu
Frsm. (Páll Zóphóníasson) :
Út af umr. hér í gær um þetta mál hef ég leitað eftir þeim upplýsingum, sem hv. þm. Barð. taldi mjög skorta, um kostnað við þessar framkvæmdir. Það er í stuttu máli um þær að segja, að þarna hefur verið byggður læknisbústaður og dýralæknisbústaður. Hjá ríkisbókhaldinu er kostnaður við dýralæknisbústaðinn bókaður á 194263,67 kr., en við læknisbústaðinn eitthvað kringum 400 þús. kr. Ég hef ekki getað fengið að vita hjá vegamálastjóra, hvernig það er með veginn, sem búið er að leggja, sem er kringum 1 km. vegamálastjóri er veikur, og þeir, sem eru á skrifstofunni, vita ekki um það, en mér er nær að halda, en það er ég ekki viss um, að hann hafi verið færður á læknabústaðina, af því að hann liggur eftir endilöngu væntanlegu þorpssvæði og endar við læknabústaðina. Er það þá það, sem gerir þá eins dýra og raun ber vitni. Vatnsveituna er búið að leggja, og til hennar hafa verið útborgaðar 133208 kr. Auk þess mun vera óborgað til Ingólfs Esphólin fyrir pípur 71208 kr., eins og þær kostuðu komnar á Reyðarfjörð, og auk þess pípur af minni gerð, væntanlega fyrir leiðslur milli húsa, 4 þús. kr., sem er ekki búið að greiða, og vera má, að eitthvað fleira sé ógreitt til vatnsveitunnar, svo að hún verði dýrari en þetta. Hjá ríkisbókhaldinu eru færðar aðeins 100 þús. kr. á rafveituna, en rafmagnseftirlitið hefur lagt fram 120 þús. kr., og er búizt við, að þegar búi?i er að fullgera hana, kosti hún 320–330 þús. kr. skólpveita, sem búið er að gera, er ekki nema frá fáum húsum. Hún hefur verið talin með dýralæknis- og læknisbústaðnum, en ekki sérstaklega reiknuð sem framlag. Vegna þess að þessar aðgerðir, sem þarna hafa verið gerðar og ætlazt er til, að ríkið geri, áður en hreppurinn tekur við þessum verkum, eru að nokkru leyti gerðar vegna þeirra opinberu bygginga, sem þegar er búið að gera, og að öðru leyti vegna annarra opinberra bygginga, sem talað er um að gera þarna, svo sem allsherjarmiðstöðvar fyrir símstöð fyrir Austurland, svo sem miðstöðvar fyrir rútubílferðir til og frá og um Austurland, en því húsi er ætluð lóð í horninu á krossgötum, þar sem aðalgöturnar eftir þorpinu skerast og krossgötur héraðsins koma saman, og vegna þess að nokkuð af þessu er talið kostnaður við þær opinberu aðgerðir, þá taldi Jónas Guðmundsson, sem frv. samdi, og hæstv. félmrh., sem það las yfir, að réttara væri að ákveða ekki neitt um það, með hvaða hætti þorpið yfir tæki þessar eignir, heldur yrði samkomulag um, hvað mikill hluti af vatnsleiðslunni yrði talinn vegna kostnaðar við læknabústaðina og hvað mikill hluti af veginum yrði talinn þeim, og þess vegna er gr. orðuð eins og hún er. Með tilliti til þessa þá held ég, að ekki sé ástæða til þess fyrir hv. þm. Harð. að halda till. sinni til streitu. Ég held, að það væri eðlilegra að hafa um það samkomulag, að hvaða leyti þessar framkvæmdir teljast gerðar fyrir þessi opinberu hús, sem þar eru og eiga að koma, og að hvað miklu leyti fyrir þorpið. Þetta verður alltaf matsatriði og samkomulagsatriði, þegar þorpið tekur við þessum verkum. Það er engum blöðum um það að fletta, hvað vatnsveitan kostar. Eins og fyrrv. landbrh. og fjmrh. sagði í gær við mig og hv. þm. Barð., þá þarf miklu víðari pípur en ef vatnsleiðslan hefði aðeins verið fyrir læknabústaðina, en annar yrði kostnaðaraukinn ekki. En á þá þorpið að taka við allri vatnsleiðslunni með kostnaðarverði, eða á það að taka við því, sem hún er dýrari en hún hefði orðið, ef hún hefði verið lögð aðeins fyrir þessi tvö hús, sem ríkissjóður á að sjá um að öllu leyti og hefur séð um að öllu leyti? Þetta er matsatriði, og í frv. er það lagt í hendur ráðh. og hreppsn. að semja um það. Ég held því, að það sé engin þörf að fá brtt. hv. þm. Barð. samþ., nema því aðeins að hann vilji slá föstu, að hreppsn. borgi þessar framkvæmdir allar, hvort sem þær eru vegna opinberra bygginga eða þorpsins í heild, en ég geri ekki ráð fyrir, að hann vilji það. En ef hann hugsar sér það þannig, að dregið sé frá kostnaðarverði það, sem honum finnst sanngjarnt að áætla, að þessar framkvæmdir kosti vegna hinna opinberu bygginga, en hreppurinn taki við hinu, þá erum við komnir að sömu niðurstöðu og hugsað er samkvæmt gr., svo að þar ber hvort tveggja að sama brunni.
Ég skal svo ekki orðlengja um málið frekar. Ég vona að mönnum sé ljóst, hvar þetta stendur nú, hvaða fé er í þetta komið og hvernig það hefur verið fært.