14.05.1947
Efri deild: 132. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (2842)
209. mál, Egilsstaðakauptún í Suður - Múlasýslu
Gísli Jónsson:
Ég skal verða við tilmælum hæstv. forseta að lengja ekki mjög þessar umr.
Ég get ekki fallizt á það sjónarmið, sem hv. frsm. hefur rakið hér í þessu máli, og vil ég benda á í sambandi við það, að ég tel mjög eðlilegt, að vatnsveitan öll verði reiknuð hreppnum, eins og hún hefur kostað, en hreppurinn leggi síðan vatnsskatt á þær opinberu byggingar, sem notuðu veituna, og sama er að segja um rafveituna. Um vegagerðina er öðru máli að gegna. Það gæti orðið samkomulagsatriði, hvernig sá kostnaður kæmi niður. Ég held, að það sé miklu heppilegra vegna fordæmis, að mín till. verði samþ., og vænti ég því, að d. fallist á hana, eins og hún liggur fyrir.