20.11.1946
Efri deild: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1695 í B-deild Alþingistíðinda. (2849)

10. mál, útsvör

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þann 16. okt. s. l. var vísað til hv. allshn. 10. máli, á þskj. 12, sem er frv. til l. um breyt. á l. nr. 106 23. júní 1936, um útsvör. Þetta mál hefur nú legið rúmar fjórar vikur hjá hv. allshn. án þess að gefið hafi verið út nál. eða málið tekið til umr. Eins og kunnugt er, liggja ýmis mál oft tímunum saman hjá nefndum, og er það iðulega óviðunandi. Ég vildi nú leyfa mér að fara fram á það, að hæstv. forseti sæi um, að málið fengi sem fyrst framgang og yrði sem fljótast afgr.