20.03.1947
Efri deild: 98. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2867)
10. mál, útsvör
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :
Ég vildi benda á, að hér liggur aðeins fyrir nál. minni hl. allshn. og hvort ástæða væri til að taka málið á dagskrá fyrr en nál. meiri hl. liggur fyrir. Ég vil ekki út af fyrir sig neita um afbrigði, en gæti ekki orðið samkomulag um að bíða þar til meiri hl. hefur skilað áliti sínu og forseti gæfi frest í málinu?