10.04.1947
Efri deild: 112. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

221. mál, bifreiðaskattur

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Það gæti kannske verið um það að ræða, að hér ætti að standa í staðinn fyrir „gerðar“: notaðar til fólksflutninga. Mér virðist, að öllum, sem til þekkja, hljóti að vera ljóst, að þessar bifreiðar eru aðallega notaðar til fólksflutninga, til þess að skjótast á þeim. Rúmast í þeim, að ég held, fjórir menn. Ég hygg, að þegar maður lítur annars vegar á þessa litlu bíla, sem eru fluttir til landsins og kannske geta heyrt undir svo kallaða lúxusbíla, og svo aftur á jeppabifreiðarnar eins og þær eru notaðar, þá sé það broslegt að ætla að láta aðra tegundina falla undir bifreiðaskattinn, en hafa hina undanþegna. Þm. minntist á, að jepparnir væru skráðir sem vörubifreiðar í sumum tilfellum, en þeir eru ekki vörubifreiðar. Þeir eru þannig útbúnir, að tengja má við þá bæði dráttarkerru og viss landbúnaðaráhöld, en aðallega virðist mér, að þeir muni vera notaðir á sama hátt og menn nota yfirleitt bifreiðar og eigi þess vegna, hvort sem þeir eru skráðir sem vörubifreiðar eða ekki, að vera háðir sams konar skatti og bifreiðar, sem eru notaðar eins og þeir, aðallega til fólksflutninga. Nú vita menn, að menn geta átt bifreiðar, sem eru öðruvísi gerðar en jeppabifreiðar og þó ekki beinlínis vörubifreiðar, sem líka má nota til þess að flytja varning. En þessar bifreiðar eru aftur í eðli sínu aðallega fyrir fólk, og sama er að segja um jeppana. Það hefði ef til vill verið rétt að setja hér „notaðar til fólksflutninga“. Þó efast ég um það, því að jeppavagnarnir eru upphaflega búnir til til flutninga, eins og menn vita, hafa fæðzt í þennan heim sem litlir vagnar fyrir hermenn, og reynslan af þeim þar hefur sýnt, að þeir koma einnig í góðar þarfir í þágu friðarins, ekki síður en stríðsins. Sem sagt, ég hef litið svo á, að þessir bílar ættu að flokkast í sama flokk og aðrir bílar, sem aðallega eru notaðir til fólksflutninga. Ef Alþ. lítur öðruvísi á þetta, er náttúrlega ekkert við því að segja, en mér virðist, að framkvæmdin á innheimtu skattsins af þessum bifreiðum geti orðið æði erfið, ef á sumar þeirra er litið sem vörubifreiðar, en á aðrar sem fólksbifreiðar, eftir því hvaða nafn þeim er gefið við skráninguna. En á hitt verður að líta, sem reynslan sýnir og allir vita, að þessir vagnar eru notaðir aðallega til fólksflutninga í skemmri og lengri ferðir og þykja mjög þægilegir til þeirra hluta, ekki sízt fyrir það, að þeir komast oft hæglega eftir lítt færum vegum, þar sem öðrum bifreiðum er ófært, og hafa þeir reynzt vel í okkar landi, þar sem vegirnir eru sums staðar þannig, að venjulegar bifreiðar eiga þar erfitt yfirferðar.