20.03.1947
Efri deild: 98. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (2873)

10. mál, útsvör

Gísli Jónsson:

Ég held, að það sé eitthvað annað, sem vakir fyrir hæstv. utanrrh. en að fá eitthvað að vita um málið, því að hann hlýtur að vita eitthvað um það, þar sem hann hefur farið með það í 2 ár. Málið hefur tafizt í n. frá formlegri afgreiðslu í 3 ár, 2 ár undir hans stjórn og í vetur undir stjórn annars. Það er ekki hægt að ætlast til, að ég beygi mig undir þetta, en mér finnst rétt að gefa form. tækifæri til að ræða við þá nýju nm. í n.