20.03.1947
Efri deild: 98. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (2874)
10. mál, útsvör
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :
Ég verð hér að svara til sakar. En hv. þm. Barð. (GJ) hefur hér ruglað saman eins og áður meðferð málsins og því, hvernig hann álítur, að efnisleg afgreiðsla málsins eigi að vera. Á undanförnum þ. hefur málið verið afgr. með rökst. dagskrá, eftir að búið hefur verið að athuga það. Ástæðan til þess, að málið hefur dregizt, er ekki sú, að það hafi verið látið dragast og ekki, að það hafi verið legið á því, heldur sú, að starfandi hefur verið mþn. til þess að endurskoða útsvarsl., sem átti að skila störfum í fyrravetur, og n. áleit ekki óskynsamlegt að fresta að taka afstöðu um þetta atriði, þangað til álit mþn. lægi fyrir, og var það í ætluninni um þetta, sem málið var dregið. En ég skal játa, að nýtt viðhorf kom fram, eftir að dregizt hafði fram á sumar, að mþn. skilaði af sér, því að nm. álíta, eftir að þeir taka sæti í niðurjöfnunarn. Rvíkur og Hafnarfjarðar, að þeir muni hafa svo mikið að gera, að þeir geti ekki skilað fyrr en í sumar, og þá er rétt að athuga, hvort hægt er að afgreiða málið frá þessu þ., annaðhvort sem ályktun eða með rökst. dagskrá.
Hitt fyndist mér fróðlegt, að fá frekari gögn um það, hvað n. hefur hugsað sér um þetta atriði, því að þótt hún sé ekki búin að skila áliti, þá er hún búin að vinna í þessu í marga mánuði, og skilst mér, að það gæti orðið mjög til upplýsingar fyrir d., hvort þessi breyt., sem hér er hreyft, muni verða í samræmi við þær till., sem hún gerir, og mundi ég skora á n. að afla þessara upplýsinga, um leið og ég skora á hana að hafa alla varúð við afgreiðslu málsins, því að ég held, að málið sé flutt af misskilningi og held, að þetta sé ekki það, sem fyrir þm. vakir. Það skiptir því ekki miklu, hvort málið er tekið á dagskrá eða ekki.