15.04.1947
Efri deild: 118. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1702 í B-deild Alþingistíðinda. (2878)

10. mál, útsvör

Frsm. minni hl. (Hermann Jónasson) :

Það stóð svo á með þetta mál, að því var frestað fyrir nokkru. Allshn. hefur nú rætt það og komst loks að samkomulagi í morgun, og er nál. nú í prentun. Forseta var tilkynnt þetta áður en fundur hófst. (Forseti: Það hefur ekki verið gert). Það er einkennilegt, þar sem það var gert áður en fundur hófst. (Forseti: Ég hef ekki heyrt það). En það skiptir ekki máli, þó að forseti heyri illa, ef málið verður tekið út af dagskrá.