10.04.1947
Efri deild: 112. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (289)
221. mál, bifreiðaskattur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Það, sem mér finnst leiðast við þetta frv., er það, að hér er ráðgert að leggja þennan háa skatt jafnt á lúxusbifreiðar og þær fólksbifreiðar, sem eru í góðri og gildri atvinnunotkun. Einhver hefur flutt hér á Alþ. frv. um lúxusbílaskatt, og hlýtur því að mega draga mörk milli lúxusbifreiða og hinna, sem eru notaðar í þágu atvinnulífsins. Ég er því óánægður með það, að hér skuli ekki vera gert upp á milli bifreiða atvinnulífsins og hinna, sem sannanlega eru lúxusbifreiðar. Ég hefði talið betra, að hér hefðu verið mörk á milli í þessu skattafrv., en það er ekki.
Viðvíkjandi c-lið, sem hér hefur verið gerður að umræðuefni, að því er snertir jeppana, er upplýst, að ætlunin er að skattleggja þá eins og fólksflutningabifreiðar almennt, hvernig sem notkun þeirra er háttað. Því er þó ekki að neita, að þessar bifreiðar voru fyrst og fremst fluttar hingað til lands sem vinnutæki í sambandi við landbúnaðinn, og þær eru víða notaðar til þess að flytja afurðir frá framleiðslustað til sölustaðar, notaðar í sambandi við plóg og herfi, og mælir engin sanngirni með því, að þær séu skattlagðar á sama hátt og lúxusflakkið í landinu. Hvað sem því líður, að jeppabifreiðarnar séu upphaflega gerðar sem fólksflutningavagnar, sem er vafasamt, því að þær voru ekki síður notaðar til þess að flytja vörur í stríðinu, þá er það staðreynd, að þessir vagnar eru víða notaðir til alls konar landbúnaðarstarfa, og mér finnst, að þegar þeir eru notaðir á þennan hátt, eigi ekki að skattleggja þá eins og fólksbifreiðarnar, heldur eigi þeir að vera utan við þetta frv. og gera eigi mun á því, hvort þeir eru fólksflutningsvagnar í kaupstöðum eða slík vinnutæki í sveitum. Það er t.d. hægt að fá þetta alveg fram með breyt. á c-lið á þann hátt að skjóta inn í, að af þeim bifreiðum, sem aðallega eru gerðar og notaðar til fólksflutninga, skuli greiða þennan skatt, en af hinum, sem notaðar eru í þágu landbúnaðarins, skuli gjaldið ekki innheimt.
Annars held ég, að skemmtilegra hefði verið en þetta skattafrv. viðvíkjandi bifreiðunum, að ríkisstj. hefði tekið í sínar hendur einkasölu á bifreiðum og fylgt slíkri löggjöf að vísu með meiri myndarskap en dæmi eru til, að slíkri löggjöf hafi verið fylgt hér áður, og stórfelldara tekjuöflunarfrv. hefði það sennilega orðið en það frv., sem hér liggur fyrir og áætlað er, að muni skila ríkissjóði um 2 millj. kr. tekjum. — Það er ástæða til að taka fram, að það er full þörf á að koma í veg fyrir það prang með bifreiðar, sem á sér stað í þjóðfélaginu og er svo viðurstyggilegt, að þeir, sem njóta þeirrar náðar að fá innflutningsleyfi fyrir bifreiðum, geta tekið 15–20 þús. kr. gróða af slíkum tækjum, og virðist öllum lögreglustjórum landsins um megn að sjá svo um, að slíkt eigi sér ekki stað. Með þessu einfalda móti er hægt fyrir mann t.d. hér í Reykjavík að afla sér á einu bretti. með því að fá innflutningsleyfi fyrir bifreið og selja hana, margfaldrar fjárfúlgu á við það, sem hægt er að vinna sér inn í sveita síns andlitis með eins árs striti. Vafalaust mætti koma í veg fyrir slíkt, og ég hygg, að það væri auðveldara, ef ríkið hefði allt innflutningsvald bifreiða með höndum heldur, en ef þetta væri í höndum fjölda margra innflytjenda, eins og nú er. Þetta er vissulega hlutur, sem þyrfti að laga og er blettur á þjóðfélaginu eins og nú er, en eins og ég drap á áðan, er það meginagnúinn á þessu máli, að ekki er gert upp á milli þeirra fólksflutningabifreiða, sem eru í þjónustu atvinnulífsins, og hinna, sem eingöngu eru notaðar sem lúxustæki, þar sem kannske 4–5 bifreiðar eru í eigu einnar og sömu fjölskyldu, eingöngu notaðar í lúxusflakk. Þarna teldi ég líka ástæðu til þess að gera upp á milli fyrir löggjafann, en það vottar ekki fyrir því í þessu frv.
Ég býst við, að þar sem ekki er hægt að komast hjá því að viðurkenna hina miklu þörf ríkissjóðs fyrir auknar tekjur og ekkert tóm gefst til þess að bera fram brtt., sem væru gagnhugsaðar, þar sem málið ber svona fljótt að, sé ég ekki, að um annað sé að gera en gefa ríkisstj. þess kost að afla tekna í ríkissjóð með þeim leiðum, sem hún leggur til. Annars væri henni meinað að leggja forsvaranlegan, fjárhagslegan grundvöll að rekstri ríkisins nú síðar á þessu ári. — Vil ég svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta hina skriflegu brtt., sem ég hef gert við c-lið 1. gr. frv.