18.04.1947
Efri deild: 120. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1716 í B-deild Alþingistíðinda. (2897)

10. mál, útsvör

Ásmundur Sigurðsson:

Það er aðeins af því, að ég tók þá afstöðu til málsins, sem nál. ber með sér, að ég segi örfá orð. Ég vil taka það fram, að ég er andvígur þessari brtt. hv. 7. landsk., en það er ekki fyrir það, að ég geti ekki viðurkennt, að það þurfi að gera einhverja breyt. á þessum ákvæðum útsvarsl. Það verður væntanlega gert í sambandi við þá endurskoðun, sem nú fer fram á l. En ég er á móti því að fella þessi ákvæði alveg niður, vegna þess að mér er kunnugt um, að það eru til sveitarfélög, þar sem mikil atvinna er stunduð úr öðrum sveitarfélögum og þeir, sem hana stunda, gera kröfu til þess, að sveitarfélagið bæti atvinnuaðstöðuna á staðnum þeirra vegna, og það er reynt að gera það. Þess vegna er ekki óeðlilegt, að sveitarfélagið hafi einhverjar tekjur af þeirri atvinnu, sem þeir vinna þar.

Ég vildi aðeins taka þetta fram. Verði brtt. frá, hv. 7. landsk. samþ., mun ég greiða atkv. á móti frumvarpinu.