24.02.1947
Neðri deild: 80. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1729 í B-deild Alþingistíðinda. (2927)
92. mál, tannlækningar
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Þetta mál kom fyrir nokkrum dögum síðan frá n. Því hefur verið frestað eftir minni ósk, af því að ég hef verið að kynna mér málið, þar sem ég var því ókunnugur áður. Ég hef verið að athuga nýja tilhögun á því, sem ég hef ekki enn athugað til hlítar. Þess vegna hef ég beðið um að fresta málinu. En ég býst við, að áhugamenn um þetta mál þurfi ekki að bera kvíðboga fyrir, að það dagi uppi. Það er svo langt eftir af þinghaldinu, og ég geri þetta ekki til að tefja málið, heldur af þeirri ástæðu, sem ég hef nú greint.