05.03.1947
Neðri deild: 86. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1730 í B-deild Alþingistíðinda. (2931)
92. mál, tannlækningar
Sigurður Kristjánsson:
Ég er meðflutningsmaður að þessu frv., sem hér um ræðir og er prentað á þskj. 150. Þó að frsm. minni hl. og samgmrh. hafi lagt þau atriði fram í þessu máli, sem nokkru skipta, þá vil ég, að gefnu tilefni af hálfu frsm. meiri hlutans, segja nokkur orð. Hann talaði mikið um misrétti, sem minni hlutinn vildi skapa með sinni tillögu. Þetta orð misrétti er mörgum viðkvæmt, eins og eðlilegt er, þegar um slíkt er að ræða, en það er bara ekki um neitt slíkt að ræða af hálfu minni hlutans. Það er annað, sem hér kemur til greina, og það er bezt að segja það, eins og það er. Það eru til tvær stéttir manna, annars vegar tannlæknar, en hins vegar tannsmiðir, og það er togstreitan á milli þeirra, sem hér kemur fram. Tannsmiðir læra sitt fag og taka próf í því, en svo á bara ekki að leyfa þeim að stunda sitt fag nema undir umsjón annarra. Í bréfi frá landlækni til heilbr.- og félmn. er meira að segja gengið svo langt, að hlutverki tannsmiða er líkt við nuddarastarf. Mér finnst eðlilegra dæmi um það, sem hér um ræðir, að t. d. verkfræðingur eða arkitekt, sem hefur umsjón með einhverri byggingu, ætti sjálfur að inna af hendi veggfóðrun, en slíkt er auðvitað fjarstæða.
Það hefur verið látið skína í það hér í umr., að það gæti verið hættulegt að láta tannsmiði starfa öðruvísi en undir stjórn lækna. Það er eins og gervilimasmiður mætti ekki stunda sitt starf, nema læknir væri við smíðina með honum. Ég veit ekki til, að það hafi komið til greina, að tannsmiðir hefðu leyfi til þess að draga tennur. Nei, það er aðeins farið fram á, að þeir fái að smíða tennur í þá menn, sem læknar hafa tekið tennur úr eða þeir á annan hátt misst tennur sínar.
Landlæknir segir í bréfi sínu, að það hafi verið veitt leyfi til handa tannsmiðum vegna vöntunar á tannlæknum, og hann réttlætir það. En svo er bara farið fram á, að þessi réttindi verði af þeim tekin, þegar minnst varir. Nú er það ástand í raun og veru enn ríkjandi, að tannlækna vantar víðast hvar á landinu nema í Reykjavík. Fólk úti á landi verður því í flestum tilfellum að fara hingað til Reykjavíkur til þess að fá smíðaðar tennur. Það er því sýnilegt, að meiri hl. n. er ekki að berjast fyrir hagsbótum almennings,. heldur virðist þar um að ræða baráttu fyrir hagsmunum einnar stéttar. Fyrir nokkrum árum var mjög hátt verð á gervitönnum, en þá settu tannsmiðir það niður um allt að 75%. Þeir þóttu þá vargar í véum. Nú er verð gervitanna um 1000 kr. Ég skal ekki segja um, hvað það ætti að vera með hæfilegri álagningu, en víst er um, að það er mjög mikið of hátt. Þetta mikla verð er einmitt vegna ónógrar samkeppni og kúgunar stéttarsamtaka, og það er þetta, sem meiri hl. n. vill vernda. Ég þarf ekki að bæta við þær skýringar, sem minni hl. n. hefur gefið. Það sér hver maður, að það er hart fyrir þá, sem öðlazt hafa rétt til starfs í þeirri grein, sem þeir hafa lagt fyrir sig, og reynzt vel í því starfi, en svo á allt í einu að svipta þá þessum rétti og þeim sagt að vera vinnukona hjá öðrum. Og þetta á einmitt að gera, meðan skortur er á þessum starfsmönnum.
Ef þingið gerir skyldu sína í þessu máli, er ekki hægt að láta við það sitja að framlengja heimild þessara tannsmiða. Það verður að setja sérstaka löggjöf, eins og minni hl. n. bendir á. Það þarf að setja sérstaka löggjöf um tannsmiði og réttindi þeirra og gera þá hliðstæða við aðra sérfróða menn til að stunda sína sérgrein sjálfstætt, ef þeir fullnægja skilyrðum, sem sett eru fyrir, að þeir fái vottorð um sína kunnáttu. Það er enginn vafi, að þessir menn vinna sín verk með fullkominni kunnáttu og fullkomlega til hagsbóta fyrir almenning.
Ég sé, að það eru komnar tvær nýjar brtt. Ég veit ekki, hvað fast þeir halda á að mæla með þeim. Mér sýnast þær heldur lítilfjörlegar. Þær eru aðeins um það, að þegar búið er að svipta þessa fjóra menn atvinnu, sem hafa haft samkvæmt l. heimild ráðh. til að stunda atvinnu sína sjálfstætt, þá skuli þeir sitja fyrir vinnu hjá tannlækni, sem kynni að vilja setja sig niður og gera upptækt hreiður þeirra. Það er ólíklegt, að hv. flm. vilji fylgja þessum till. mjög fast, og mér sýnist ekki ástæða til fyrir hv. þd. að sinna þeim.
Ég sé, að það er orðið ákaflega þunnskipað hér á þingbekkjum. Málið er búið að dragast lengi, svo að ég vil ekki fara fram á frest á málinu. Hv. frsm. meiri hl. er ekki viðstaddur, hefur verið kallaður upp í hæstarétt, og mér er sagt, að hann verði þar í dag. Það er ótækt, að málið dragist lengur. Ég vil því ekki fara fram á að atkvgr. verði frestað, heldur mælast til þess við hæstv. forseta, að hann reyni að ná alþm. saman, áður en atkvgr. fer fram.