05.03.1947
Neðri deild: 86. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (2933)

92. mál, tannlækningar

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég á sæti í þeirri n., sem hefur fjallað um þetta mál, og hef þess vegna kynnt mér málið nokkuð.

Ég hygg, að það gæti verulegs misskilnings í málflutningi formælenda frv. Af hálfu þeirra hefur verið lögð á það megináherzla annars vegar, að sú breyt., sem lagt er til, að gerð verði á löggjöfinni, feli í sér réttlætismál gagnvart 3–4 einstaklingum. Hins vegar hefur verið lögð áherzla á það af hv. 5. þm. Reykv., að hér væri um að ræða hagsmunamál tannlækna og þeir stæðu gegn þessari breyt. Ég hygg, að hvort tveggja sé algerður misskilningur. Hér er um að ræða fyrst og fremst prinsippmál, það, hvort eðlilegt sé, að tannlæknar og tannsmiðir starfi á sama staðnum samtímis að því að setja gervitennur og tanngarða í fólk. Hér er um að ræða spurningu um það, hvort tannsmiðir skuli fá heimild til að starfa sjálfstætt að því að setja tennur í fólk, þó að tannlæknir sé á staðnum, eða ekki. Í okkar löggjöf hefur því verið slegið föstu, að það, að smíða og setja tanngarða í fólk, sé tannlækna verk, sem þurfi sérþekkingu tannlækna til að inna af hendi. Mér vitanlega var, þegar tannlæknal. voru sett, enginn verulegur ágreiningur um, að þessi regla væri skynsamleg. Svo var hins vegar ákaflega mikill skortur á tannlæknum, og því var gerð sú undanþága 1932, að tannsmiðum væri heimilt að inna þessi störf af hendi, þar sem ekki næðist til tannlæknis. Jafnframt var ákveðið, að kæmi tannlæknir, þá væri rétt að láta meginregluna gilda. Það, sem fyrir löggjafanum vakti, var einungis það, að hagsmunum þeirra, sem þyrftu á þessu að halda, væri betur borgið, ef tannlæknir annaðist það en tannsmiður, ef völ væri á báðum á sama staðnum. Ég held því, ef við lítum á eðli málsins eingöngu, þá sjáum við, að það er þetta, sem fyrst og fremst er um að ræða, en ekki hagsmunamál fyrir tannlækna eða sanngirnismál fyrir þrjá til fjóra einstaklinga. Á Norðurlöndum hefur alls staðar nema í Danmörku verið sama skipun á þessu og hér, þ. e. a. s. í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er löggjöfinni hagað eins og hér, af því að það er álitið tannlækna verk að smíða og setja tennur í fólk, en tannsmiðum óheimilt að vinna sjálfstætt að þessu. Í Danmörku eru ekki nein ákvæði í l., sem banna tannsmiðum að smíða eða setja tennur í fólk, en það fyrirkomulag hefur gefizt mjög illa, og Danir vilja koma í veg fyrir, að þeir geri það mjög almennt. Þetta hefur valdið óánægju og verið dönsku heilbrigðisstj. verulegt áhyggjuefni, því að erfitt er að koma í veg fyrir, að tannsmiðir fari út fyrir sinn verkahring, og nokkrum sinnum hefur komið til mála að banna tannsmíðum að gera þessi verk, þó að ekki hafi orðið úr því hingað til, af því að tannsmiðastéttin er fjölmenn, en þetta hefur alltaf haft vandræði í för með sér. Ég hygg því, að óhætt sé að fullyrða, að ef þetta frv. verður samþ., þá er það spor aftur á bak frá því, sem verið hefur.

Það er alveg misskilningur, sem haldið hefur verið fram af hálfu formælenda frv., að hér sé eingöngu um að ræða, hvort 3–4 menn eigi að fá að halda áfram að vinna sitt verk eða ekki.

Brtt. minni hl. gengur út á að heimila þeim tannsmiðum, sem þegar hafa starfað sjálfstætt, að gera það áfram. Það er rétt, að hér er eingöngu um að ræða þrjá eða fjóra menn, sem nú hafa fengið undanþágu, en það er mikill misskilningur að halda, að ef þeir fá þennan rétt áfram, þá verði hægt að einskorða hann við þá framvegis. Það er vitað mál, að ef tannsmiður setur sig þar niður, sem enginn tannlæknir er, og starfar þar 3–4 ár, þá nær engri átt annað en veita honum sams konar rétt og hér er um að ræða til að starfa áfram, jafnvel þó að tannlæknir væri þá setztur þar að, en þá er búið að brjóta þá grundvallarreglu, sem löggjöfin byggist á, að þetta sé læknaverk og eigi að vinnast af læknum. Ástandið mundi því verða þannig í mörgum bæjum, að þar mundi starfa bæði tannlæknir og tannsmiður samtímis að þessu verki. Það er því mikill misskilningur, að hér sé um að ræða hagsmunamál tannlækna. Þar er aðeins um að ræða hagsmunamál þessara 3–4 manna, sem starfa nú sjálfstætt móti hagsmunum allra hinna.

Þá er eitt atriði enn. Ég held, að mér sé óhætt að segja, að ef þetta nær fram að ganga, þá verði það til þess, að landlæknir mundi ekki sjá sér fært að mæla með því að veita ný leyfi til tannsmiða til að vinna tannsmíðaverk sjálfstætt. Afleiðingin verður því sú, ef till. minni hl. er samþ., að þá kemur greinilega í ljós, að það er mjög andstætt hagsmunum tannsmiða í heild, þar sem þeir, sem lokið hafa prófi og eiga nú rétt á að starfa sjálfstætt, mundu ekki geta fengið þau leyfi framvegis.

Ég held, að það sé líka rétt að vekja athygli á því, að hér er um að ræða mikið hagsmunamál dreifbýlisins eða staða utan Reykjavíkur og kaupstaða, sem þegar hafa tannlækna. Ef frv. eða brtt. minni hl. verður samþ., þá mundi það þýða það, að flestir þeir tannsmiðir, sem nú hafa leyfi, mundu nota sér það, fara á einhverja staði og setja sig þar niður, og þá mundu tannlæknar ekki verða fáanlegir til að koma þangað. Það er því líklegt, ef frv. eða brtt. minni hl. yrði samþ., þá mundu tannsmiðir setjast að í kaupstöðunum utan Reykjavíkur og stærstu kaupstaðanna, en það yrði til þess, að tannlæknar yrðu ófáanlegir þangað um ófyrirsjáanlegan tíma. Það er rétt fyrir þá, sem láta sig hagsmuni dreifbýlisins skipta, að gefa þessu mjög rækilegan gaum. Það má einnig á það benda, að þessi hætta er nú þegar fyrir hendi utan Reykjavíkur. Vestmannaeyingar hafa sent áskorun um að láta frv. ekki ná fram að ganga. Tannlæknirinn í Vestmannaeyjum er nýlátinn, en erfiðleikar fyrir Vestmannaeyjar að fá tannlækni, ef tannsmiður sezt þar að og fær að starfa þar áfram, þó að tannlæknir kæmi þar. Þetta hafa Vestmannaeyingar gert sér ljóst, og þess vegna senda þeir áskorun að láta frv. ekki ná fram að ganga. Aftur á móti er sjálfsagt og eðlilegt að koma í veg fyrir, að tannsmiðir verði óeðlilega háðir tannlæknum, en það verður bezt gert með því móti að skipuleggja nám tannsmiða og gera þeim kleift að koma sér á fót sem stétt og gæta hagsmuna sinna gagnvart tannlæknum. Því vil ég ekki andmæla því, að séð sé svo um, að tannsmiðir verði ekki óþarflega háðir tannlæknum og njóti ekki hjá þeim réttmætra kjara. Það er sjálfsagt að hjálpa þeim á allan hátt til að njóta réttar síns í þessu sambandi til fulls.

Hv. 5. þm. Reykv. gat þess áðan, að núverandi skipun á löggjöf um þetta efni væri eindæmi, þetta þekktist ekki á neinu öðru sviði löggjafarinnar. Þetta er mikill misskilningur. Ég get nefnt eitt dæmi, sem er alveg hliðstætt þessu, en það er afstaða augnlækna annars vegar og gleraugnasala (optikera) hins vegar. Ef einhver þarf að fá sér gleraugu, verður hann að fara til augnlæknis og láta hann mæla augun og segja fyrir, hvernig þau skuli vera. Síðan smíðar gleraugnasalinn (optikerinn) þau. Mér er ekki kunnugt um, að nokkrum manni hafi dottið í hug að breyta þessari skipan. Þó hafa heyrzt raddir um, að óeðlilegt sé, að þeir, sem smíða gleraugu, verði að gera það eftir augnlæknis fyrirsögn, það sé því eðlilegt að láta þá, sem þurfa að fá gleraugu, koma beint til gleraugnasalans, en augnlæknirinn sé þar óþarfur milliliður. Heilbrigðisstj. og yfirvöldin hafa alltaf verið á annarri skoðun. Þau segja, að nauðsynlegt sé, að augun séu mæld af augnlækni og hann kveði á um gerð gleraugnanna. Nákvæmlega það sama er hér um að ræða. Meginreglan gerir ráð fyrir, að tannlæknir segi fyrir um, hversu tennur skuli gerðar, en síðan smíði handverksmaður tennurnar. Sú afstaða er nákvæmlega sú sama, og fleiri dæmi mætti nefna þar til samanburðar. Mér þætti fróðlegt að vita, hvort flm. vilja veita optikurum leyfi til þess að smíða gleraugu. Við meiri hl. n. lögðum til, að frv. yrði afgreitt með rökst. dagskrá, en nú hefur það komið í ljós, að hið mesta kapp ríkir um málið. Brtt. okkar meiri hl. n. er m. a. á þá leið, að tannsmiður skuli hafa leyfi áfram til að smíða tennur, ef hinn aðkomni tannlæknir veitir honum ekki kost á þeim kjörum, sem heilbrigðisstj. telur hæfileg. Þetta ákvæði vildum við hafa til þess að tryggja það, að tannsmiðir bæru ekki skarðan hlut frá borði. Einnig má geta þess, að í launalögunum nýju eru og sanngjörn ákvæði varðandi tannsmiði, og meiri sanngirni en fram kemur í þessu hvoru tveggja finnst mér tannsmiðir ekki eiga heimtingu á. Hins vegar tel ég það rétt, að sett yrðu ákvæði um nám tannsmiða. Svo gætu þeir skipulagt stétt sína og bundizt samtökum um að gæta réttar síns fyrir tannlæknum, og við teljum það hægt með því, að tannsmiðir fái hæfileg kjör hjá tannlæknum. En verði það ekki, skuli tannsmiðir mega starfa áfram og keppa við tannlæknana.