16.05.1947
Efri deild: 133. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (2951)
92. mál, tannlækningar
Frsm. (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Ég skal ekki þreyta umr. um þetta mál. Það ber raunverulega lítið á milli í málinu. Ég heyrði, að hæstv. menntmrh. var efnislega á móti málinu, og telur hann, að hér sé verið að gefa tannsmiðum meiri réttindi, en þetta er á misskilningi byggt. Hér er eingöngu verið að staðfesta þau réttindi, sem tannsmiðir hafa haft. Þau hafa verið tímabundin, en hér er staðfest, að þau gildi áfram. Má í þessu sambandi taka hliðstæð dæmi um skipstjóra, vélstjóra og fleiri atvinnugreinar, þar sem slíkir menn hafa fengið réttindi til sinna starfa, þótt gerðar hafi verið þyngri kröfur til nýrra manna í sömu greinum. Veit ég ekki til, að nokkurn tíma hafi verið takmörkuð réttindi þeirra, sem á undan hafa komið, heldur hafa þeir haldið óskertum réttindum á sams konar skipum og þeir hafa áður verið á.
Varðandi það atriði, sem fram kom hjá hv. 3. landsk. þm., hv. frsm. minni hl., að hann væri hræddur um, að þetta mundi tefja fyrir því, að fullkomnir tannlæknar kæmu á hina ýmsu staði, ef tannsmiðir væru þar fyrir, vil ég benda honum á þá staðreynd, að hér getur ekki verið um að ræða nema aðeins eina konu, sem sé þá, sem nú er starfandi tannsmiður á Akranesi, og hygg ég varla, að hún mundi fara að flytja sig til Ísafjarðar, þótt tannlæknirinn þar sé að flytja þaðan, eða til nokkurs annars staðar. Þá þarf hann heldur ekki að óttast, að kona sú á Sauðárkróki, er ég gat um, tæki sig upp eftir 20 ár og færi að keppa við ungan tannlækni á Ísafirði. Það getur því ekki verið um að ræða nema þessa einu konu á Akranesi, og þótt Ísafjarðarkaupstaður hafi mikið aðdráttarafl, býst ég ekki við, að hann dragi til sín þennan tannsmið frá Akranesi. Ég skal svo ekki þrátta um málið, en mér finnst eðlilegt, að frv. verði samþ. og að þessi réttindi tannsmiða verði ekki staðbundin. Þótt svo fari, að till. hv. 3. landsk. þm. og hv. 4. landsk. þm. verði samþ., mun það þó ekki verða til þess, að ég verði á móti frv., en óska eftir því — og við, sem gefum út álitið —, að frv. verði samþ. óbreytt, m. a. vegna þess — og þar sem viðurkennt er af n., að þetta sé réttlætismál, og ekki ber meira á milli en ég hef tekið fram — að óheppilegt er að taka þá hættu að fara að senda málið milli d., þar sem það hefur verið eitt mesta hitamál þ., og ef málið yrði nú sent hv. Nd. með breyt., gæti það orsakað, að málið dagaði uppi eða yrði fellt þar. Það skyldi þó ekki vera einmitt þetta, sem vakir fyrir hv. 3. landsk. þm., að koma því aftur til hv. Nd., svo að ugglaust sé, að það nái ekki fram að ganga? — Vil ég leyfa mér að beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að þar eð Sjálfstfl. er á fundi og þm. hans geta þar af leiðandi ekki mætt hér við atkvgr., að hann fresti atkvgr., þar til þeim gefst kostur á að taka þátt í henni.