12.02.1947
Neðri deild: 72. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (2963)

165. mál, fóðurvörur

Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti. Eins og hv. frsm. tók fram, er hér um nýmæli að ræða, þar sem þetta frv. er. Ég vil, um leið og frv. er vísað til 2. umr., benda í fullri vinsemd á einn vankant í 2. kafla frv. Þar er tekið fram, að ekki megi selja fiskimjöl á innlendum markaði, sem hefur inni að halda undir 50% af hráeggjahvítuefni. Til þess að fá úr þessu skorið þarf vitanlega að fara fram efnarannsókn, en eggjahvítumagnið er alls ekki fyrsti mælikvarði á fóðurgildi mjölsins, heldur saltinnihaldið. Saltinnihaldið má ekki fara yfir 3%, til þess að mjölið sé sæmilegt fóður, en venjulega innihaldið er 1½%. Ég veit til þess, að mjöl hefur verið selt með 8% saltinnihaldi. Að vísu var það ekki ætlað til skepnufóðurs, en af því að harðindi voru, var það notað, og við athugun kom í ljós, að svona mikið saltinnihald var blátt áfram eitur.

Þetta vildi ég aðeins benda n. á, en ég mæli með frv. og tel það til bóta.