12.02.1947
Neðri deild: 72. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (2964)
165. mál, fóðurvörur
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson) :
Herra forseti. Ég er þakklátur hv. þm. Ak. fyrir ábendingu hans, en þar sem aðeins verður seld 1. flokks vara ætti þetta atriði að vera tryggt, en það eru vissulega dæmi þess, að í 1. flokks mjöli komi „smápartí“, sem eru miklu verri, og hefur það valdið óánægju. Ég skal svo ekki lengja umr. frekar, en þakka hv. þm. Ak. fyrir bendingu hans, og n. er til viðtals um málið.