11.04.1947
Neðri deild: 110. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
221. mál, bifreiðaskattur
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. — Eins og frv., sem var til umr. hér næst á undan (frv. um gjald af innlendum tollvörutegundum), er þetta frv. líka borið fram til þess að afla ríkissjóði aukinna tekna af bifreiðaskatti, hjólbörðum og gúmmíslöngum. það benzíngjald, sem er nefnt í frv., er óbreytt frá því, sem er í núgildandi l. Benzíngjaldshækkunin kemur fram í till. um hækkun á vörumagnstollinum, sem var hér á ferð. Gúmmítollurinn og bifreiðaskatturinn hafa haldizt óbreyttir síðan 1932 þrátt fyrir stórmikla lækkun á verðmæti peninga, þannig að ef miðað er við þær verðlagsbreyt., sem orðið hafa síðan, er hér um raunverulega lækkun að ræða. Um bifreiðaskattinn er það að segja, að hann er hækkaður, og eins og frv. ber með sér, þá er ekki gerður munur á því, ef bifreiðar eru fólksflutningabifreiðar, hvort það eru einkabifreiðar eða stöðvarbifreiðar. Samkvæmt skýrslum lögreglustjóra voru skrásettar hér á landi um miðjan febrúar s.l. 712 leigubifreiðar til mannflutninga og 3.022 einkafólksflutningabifreiðar, þar með taldar jeppabifreiðar. Tekjuauki samkvæmt þessu frv. ætti því að verða 1.566 þús. kr., en öll tekjuaukningin samkvæmt frv. mundi verða um 2 millj. króna. Ég vil ekki fullyrða um það að svo komnu, en grg. er næg ábending um það. Um þörfina fyrir því að fá auknar tekjur, líka á þennan hátt, þarf ég ekki að ræða, það hefur komið nægilega fram undir umr. um önnur tekjuaukafrv.
Ég vil mælast til þess, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. að þessari lokinni og til fjhn.