07.02.1947
Neðri deild: 68. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (3001)

151. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :

Herra forseti. Sjútvn., sem flytur þetta mál, hefur athugað frv. á milli umr., en tíminn hefur reynzt of skammur til þess að leggja fram brtt., en n. mun nú bera fram skrifl. brtt., og mun ekki verða erfitt að átta sig á þeim. Í fyrsta lagi er lagt til, að aftan við 11. gr. bætist nýr málsliður, og er tilefni þess aths. hv. þm. V-Húnv., er umr. fóru hér fram um samábyrgðina, og þessum hv. þm. þóttu útistandandi iðgjaldagreiðslur óviðunandi. En hvernig má þá koma í veg fyrir, að menn trassi að greiða iðgjöld? Það er óþægilegt fyrir samábyrgðina, ef vanskil eiga sér stað, en það er skoðun okkar, að ekki beri að knýja fram skynsemina í þessum efnum nema að því leyti, að eitthvað lægi við gagnvart aðilum sjálfum og vátryggjendur misstu öll réttindi, ef þeir greiddu ekki iðgjöld. Það eru að vísu viðurlög um þetta í 11. gr. 7. tölulið, að tjón, sem kynnu að verða meðan áfallin iðgjöld eru ógreidd, verði ekki greidd, en þó megi félagsstjórnin víkja frá þessu. Þess vegna viljum við í stjórn félagsins nema þetta ákvæði í burtu, en nú viljum við bæta aftan við 9. málsgr. l1. gr., að þar komi nýr málsliður, er hljóði svo: Iðgjald skal greiða fyrir fram fyrir ákveðið tímabil í senn, eftir því sem ákveðið er í reglugerðum. Nú er iðgjald ekki greitt innan eins mánaðar frá gjalddaga, og skal þá ekki bæta tjón, sem verður eftir þann tíma, þar til iðgjald er greitt. — Ef þetta ákvæði kemst inn, þá má gera ráð fyrir því, að menn stæðu í skilum og að svo yrði þá á litið, að meðal rekstrarkostnaðar útgerðar séu vátryggingargjöld ávallt reiknuð þar með, en vátryggingarfélög hafa ekki viljað viðurkenna það og það er engin goðgá, þó að lögð sé áherzla á, að lánsveðin séu í gildi. Ég vil þó taka það fram vegna ummæla hv. þm. V-Húnv., um breytingu á l. um samábyrgðina, að fjárhæð endurtrygginga verður að skoðast í sérstöku ljósi, en gjalddagi hlýtur þar að verða allmismunandi.

Þá leggjum við til, að við 30. gr. 3. málsgr. á eftir orðunum „Vátryggingarfélag hefur lögveð í skipi“ bætist inn í málsgr. orðin: og lögtaksrétt. — Við lítum svo á, að gjöld þessi skuli hafa lögtaksrétt, en ýmsir dómarar hafa ekki viðurkennt lögtaksrétt gjaldanna, og er því útlátalítið að bæta þessu inn í greinina.

Og ég vil svo leyfa mér að afhenda forseta þessar skrifl. brtt. og vænti, að hann leiti afbrigða fyrir þeim.